Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.01.1911, Qupperneq 8

Bjarmi - 01.01.1911, Qupperneq 8
6 B J A R M I búa sig af stað. 1810 var enginn þarlendur prédikari, nú eru þeir um 98 þúsundir. Nú á kristniboðið og söfnuður þess hjá heiðingjum 400 sjúkrahús, 500 barnahæli, 30,000 skóla, 160 prentsmiðjur og 900 kristi- leg blöð og tímarit; en 1810 var ekkert til af þessu. Þá er munurinn ekki minni, þegar litið er á einstök heiðin lönd. Korea. Kóreubúar tóku ekki vel við kristn- inni. Árið 1884 fengu fyrstu kristniboðarnir að koma þangað og um jólin 1887 urðu þeir, sem fyrstir létu skirast, að stelast til þess að neyta heilagrar kvöidmáltfðar. En hvergi hefur kristniboðinn miðað jafn fljótt áfram, og fáir standa kristnum Kóreubúum jafnfætis að trúaráhuga og fórnfýsi. Þeir eru orðnir 200,000 sem játa kristna trú. Og trú þeirra er meira en varajátning. I fyrra haust settu þeir sér það takmark að vinna miljón manna handa Kristi; „unt er að ná því takmarki á ári“, sögðu þeir, „ef hver fullorðinn safnaðarmaður fær einn nýjan mann í viðbót á hverjum mán- uði«. Þá voru safnaðarmenn alls 80 þús., en nú í ár 200 þúsundir. Margir söfnuðir viija eigi veita nýjum manni viðtöku, nema hann hafi áður snúið öðrum landa sfnum frá heiðni en á þenna hátt verða allir kristniboðar. í sumar héldu Metodistar ársfund sinn í Suður-Kóreu, og sóttu hann um 500 manna, allir á sjálfs síns kostnað og flestii fótgang- andi. Sumir voru fulla viku á ferðinni, 3 biblíukonur gengu 22 mílur enskar vegar og 1 blindur maður var leiddur 5 mílur, til þess hann gæti verið viðstaddur. Á fundinum var vakið máls á því, hve margir vildu gefa guði næstu 3 mánuði til kristniboðs, og 20 gáfu sig fram þegar í stað. »Eg skal vitna um Krist í búðinni minni á hverjum degi«, mælti kaupmaður, „og auk þess verja viku af hverjum mánuði til kristni- boðs". „Eg gef 60 daga«, sagði ferjumaður viðstaddur. „Eg gef allan tímann, nema sunnudaginn«, sagði hinn þriðji, „því þá fer eg sjálfur til kyrkju". „Eg get ekki gefið nema 6 heila daga", sagði verzlunarerndisreki; „en eg skal vitna um Krist, hvar sem eg fer". Lfk voru ummæli hinna, nema hvað einn sagði, að hann vildi verja 60 dögum af hverj- um 90, þangað til miljónin væri komin. Blindi maðurinn bauð fram alladagana og æfina með, kvaðst ekki geta varið tfmanum betur. Gjafa- dagarnir urðu als 2721, og svarár það rúmu 7 ára starfi eins manns. Um sama leyti var annar fundur haldinn í Ryung; þangað komu um 600 karlmenn og vörðu viku til sambæna og biblíulesturs. Þar voru gefnir um 4000 dagar. Fundarmenn keyptu loks um 5000 guðspjallabækur lil út- býtingar hjá sjer. Með öðrum eins liðsmönnnum er hægt að leggja heiminn undir vald Krists, og kristni- boðarnir vænta hins bezta. (Meira). S. Á Gíslason. Hann dó fyrir þig! Nálægt 1850 ferðaðist maður nokk- ur frá Englandi til Kaliforníu, til þess að nema þar gull, því að þar hal'ði fundist gull. Að ári liðnu sendi hann peninga heim til konu sinnar, til þess að liún og barnið þeirra gætu llutt sig til lians. Og fólksflutningaskipið lél i haf með þau ásamt mörgum öðrum. Ferðin gekk vel, þangað til menn vissu eigi fyrri til en kallað var upp og sagt: íiÞað er kviknað í skipinu! Eldur, eldur!« Alt var gert, sem unl var, lil þess að slökkva eldinn, en það kom fyrir ekki. Skipsbátunum var hleypl niður og þeir urðu sökkhlaðnir. Fólkið ruddist óðara niður í þá. Þegar sein- asti báturinn var að því kominn að leggja frá skipinu, þá stóð móðirin ein eftir á þilfarinu með barnið sitt. Hún sárbændi mennina i hátnum að taka sig og barnið. Þá var kallað úr bátnum: »Það getur ekki nema einn fengið rúm í bálnum«. Móðirin bað, en liún fekk enga á- heyrn. Hvað gjörði hún þá? Stökk hún ekki ofan í bátinn og lét barnið sitt verða eftir? Nei. Hún kysti fyrst lilla drenginn sinn, og um leið og hún lét hann síga ofan í bátinn, þá mælti hún: »Ef þú hittir liann föður þinn, þá segðu honum, að eg liaíi dáið fyrir þig«. »Hann dó fyrir alla, til þess að

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.