Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1911, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.01.1911, Blaðsíða 9
BJARMI 7 þeir, sem lifa, skuli ekki framar lifa sjálfum sér, heldur honum, sem fyrir þá er dáinn og upprisinn«. (2. Kor. 5, 15). Zóphónías Halldórsson þýddi. Verði þér eftir trú þinni. Fyrir þremur árum síðan, sat ég ein um kveld með lítið veikt barn, sem ég átti. Maðurinn minn, sem var lika lasinn, hafði gengið út. Við átlum engan mat og enga peninga til að kaupa fyrir. Eg vissi að mað- urinn minn gekk fram hjá bakaran- um, en við vorum hrædd við skuldir, svo ég hjóst ekki við, að hann færi þar inn, til þess að fá brauð til láns. Eg féll á kné og bað drottinn, að senda okkur hjálp í neyðinni. Um leið og ég stóð upp aftur, kom tnaðurtnn minn inn úr dyrunum, ég sá undir eins að eitthvað hafði komið fyrir hann. Hann kom til mín, lagði hendur um liáls mér, og sagði: »Góða mín, ég er með mikla gjöf banda þér, nú getum við keypt brauð. Eg vissi mjög vel, að við átlum ekkert brauð, en peningataus gat ég ekki farið inn lil bakarans. En þegar ég var á leiðinni heim, kom P. kandi- dat til mín og gaf mér þenna 5 krónu seðil. Hann og kona hans höfðu komið sér saman um, að þú skyldir fá hann, því þau álitu, að þú liefðir fengið of lítið fyrir vinnu þína«. En hið sanna var þó, að þau höfðu horgað mér betur en allir aðrir. En þannig svaraði drottinn bæn mhini, og við féllum bæði á kné til að þakka honum. Hvað hann vildi verða. Við burtfararpróf í skóla nokkrum, voru lærisveinarnir, meðal annars, prófaðir í trúfræði. Þeir komu upp i niðurlaginu á sögu Abrahams. Þar á eftir spurði kennarinn læri- sveinana, hvað þeir vtldu verða. Ymsar framtíðar vonir komu í ljós. Einn vildi verða hermaður, annar sjómaður, þriðji bakari o. s. frv. Að lokum ávarpaði kennarinn dreng, sem var óframfærinn. »Jæja, Albert, hvað vilt þú verða?« Hann hikaði ofurlítið, svo sagði hann: »Eg vildi helzt verða til blessunar«. G. Á. þýddi. Úr ýmsum áttum, Erlendis. Sjón er sögu ríkari. Danskur rithöfundur, Rósenberg — hefir skrifað mikið í Dannebrog undir dularnafninu Craal — ferðaðist fótgang- andi um Kína í fyrra, og skrifaði þaðan fjölda mörg ferðabréf. Hann mintist vitanlega á kristniboðið og segir meðal annars: „Það er margt ljótt sagt um kristniboðana, jafnvel að þeir hafi verið skuld i blóðsúthellingunum { Boxarauppreisninni- Fólk, sem hefir ekki þekkt Kfna, fremur en barn, hefir haft hleypi- dóma á reiðum höndum. En ráðvandir og sannleikselskandi menn, hafa einnig áfelt kristniboðana í Kína“. — Höfundurinn dregur ekki dulur á, að hann sje sjálfur ókristinn og bætir við: „Jeg var, er jeg kom, fús til að trúa því versta, en lcomst smám saman, en áreiðanlega þó, á aðra skoðun. — Hvar sem eg kom, gat eg nokkurnveginn séð á fólkinu í Kína, hvort þar var eða hafði verið kristni- boði. Ibúarnir eru þar þrifnari, námfúsari, hata minna útlendinga. Allir vita hvar Jesú- tang (Jesú-hús — kristniboðs stöðin) er, og þeir, sem ekki segja meira, segja að minsta kosti: »K r i s t n i b o ð i n n er góður maður". — Ef menn vissu hvað erfitt og gleðisnautt l(f Vesturlandabúa er í uppsveitum Kína, mundu menn tala með rneiri virðingu um kristniboðana«. 222 miljónir bibliur. Biblíufélagið breska skýrir svo frá í ioó. ársskýrslu sinni: Árið 1909 gaf það út 6,620,024 biblíur eða biblíurit., af því voru 843,784 heilar biblíur og 1,198,226 nýja testamenti.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.