Bjarmi - 15.04.1912, Side 8
64
B J A R M I
segir talsveit frá rekstri málsins í októberblaði
Sameiningarinnar.
Þar segir hann að niðurlagi:
sEftirtektarverðast við þessi niálaferli er af-
staða kennimannahöfðingjanna þriggja úti á
íslandi, að þeir skyldu standa vígbúnir heima
í Reykjavík, ákveðnir að veita öðrum flokkn-
um (meiri hlutanum) lið og líka segja hinum
opinberlega strfð á hendur. Um miðjan
september kom lögformleg tilkynning frá lög-
mönnum verjendanna (meiri hlutans) þess efnis,
að 16. októbermán., kl. io árdegis, myndu
þeir Þórhallur byskup Bjarnarson, Jón prófessor
Helgason og Haraldur prófessor Nfelsson
ganga fram fyrir Jón Jensson dómstjóra á skrif-
stofu Sveins málaflutningsmanns Björnssonar i
borginni Reykjavfk og eiðfesta þar vottorð
(um kenningar sínar) verjendum málsins (meiri
hlutanum) til notkunar. Var nú lögmönnum
sækjenda (minni hlutans) boðið að hlýða á
eiðspjall það hinn tiltekna dag (láta mála-
flutningsmann af sinni hálfu gera það), en
vottorðið skyldi síðar leggja fyrir dómarann,
en hann skyldi beðinn að bíða með úrskurð
sinn, þangað til gögn þessi kæmu. Um vott-
orð þessi hin væntanlegu gátu lögmenn verj-
enda þegar f upphafi máls í Grand Forks (5.
—9. okt), en sfðar, er það kom fram, að
dómari skoðaði kyrkjumálin á Islandi þessu
máli að öllu leyti óviðkomandi, féllu þeir frá
þeim, og kváðust mundu síma til Reykjavík-
ur að hætta við vitnaleiðslu þrímenninganna
þar! 1“
Og það gerðu þeir.
Þessi merkilegu málsúrslit ættu að verða
mörgum manni hér heima hvöt til kynna sér
betur en áður, hvílík þessi svo nefnda nýja
guðfræði er.
Frá Danmörku.
J. C. Christensen, fyrv. forsætisráðherra
Dana, skrifar allmikið um kyrkjumál f blað
sitt „Tiden“, og ekki er hann neitt hrifinn af
nýju guðfræðinni. Hann segir t. d.: „Meiri
hluti þjóðarinnar kærir sig áreiðanlega ekk-
ert um, að þjóðkyrkjan verði eins ogr nokkurs
konar varningsbúð, þar sem alls konar dót
er á boðstólum; enda verðskuldaði hún þá
ekki framar að heita kyrkja.
Það er engum óréttur ger með því fyrir-
komulagi, þvf hér er trúabragðafrelsi. Skyn-
semistrúar-prestarnir geta myndað sérstakt
kyrkjufélag; og hafi þeir örugga trú á mál-
stað sínum, munu þeir sjálfsagt ekki hika eitt
augnablik við bað, þvf þeim hlýlur að vera
óþolandi að sitja lengur f þjóðkyrkjunni með
slæma samvizku.«
Heima. Með mikilli gleði höfum vér
fylgt þeirri bróðurlegu hluttekningu, sem sýnd
hefir verið, bæði hér heima fyrir og í Dan-
mörku, eftirlifandi ástvinum þeirra 27 manna,
sem fórust með fiskiskipinu „Geir“ í vetur.
Konungur vor sendi samhrygðarskeyti og
2000 krónur að gjöf, og að hans dæminu
hafa margir farið í Danmörku og gengist fyr-
ir samskotum, og fengið beztu undirtektir.
Heill sé hverjum þeim vor á meðal, sem
nú rækir líknarskyldu sfna drottins vegna við
ekkjurnar og munaðarleysingjana. Velferð
hvers þjóðfélags er eigi minst undir þvf kom-
in, að það reki lfknarskyldur sfnar við alla
þá, sem nauðstaddir eru; það er verklegur
kristindómur, sem hefir vfsa blessun drottins
í för með sér. —
Um StaOastað sækja prestarnir Har-
aldur Þórarinsson og Haraldur Jónasson,
Jóhannes L. Lynge og Jón N. Jóhannesson.
Afgreiðsla Jtjanna verður á
Laugavey «3 eftir 14. maí ii. k.
NÍTT KIRKJUBLAÐ. Hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristi-
lega menning, 18 arkir á ári, verð 2 kr., í Vesturlieimi 75 cents. Úlgefandi Þór-
hallur Bjarnarson byskup.
SAMEIIVIIVGflIV, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. ísl. í Vesturheimi. Rit-
stjóri: síra Jón Bjarnason i Winnipeg. 24 arkir árg. Verð bór á landi 2 kr. Um-
boðsm. á íslandi S. Á. Gislason, kand. tlieol. Box 62 Rvík. Sími 236. Þcir sem skulda
fyrir blaðið eru beðnir að borga það sem fyrst.
Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík.
Ritstjóri: Hjarni Jónsson kennari, Kárastig 2, Reykjavík.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Bergstaðastig 8.
Prentsmiöjan Gutenberg.