Bjarmi - 20.12.1918, Side 13
BJARMI
189
Irúmál við yður, sem blaðið heíir orðið
til blessunar. — Jeg veit ekki hvort
kaupendur lians lijer á landi myndu
kaupa hann áfram, ef liann væri prent-
aður vestan hafs, þótt sami væri ritstjór-
inn, enda mundi verð blaðsins þá hækka
um 50 aura vegna burðargjaldsins. Kært
væri mjer ýmsra hlula vegna, að heyra
skoðanir útsölumanna og annara góðra
kaupenda blaðsins í þessum málum.
Annars eiga margir i yðar hóp kærar
þakkir skilið fyrir kaupendafjölgun, skil-
semi, vinagjafir og ágæl brjef. Mjer heflr
ckki unnist tími til að svara þeim öllum,
sem biðu mín frá sumrinu, síst eins vel
og vera bæri. En minnið mig á, ef svar-
ið dregst lengi, og þreytist ekki að greiða
götur blaðsins lil íleiri heimila. Með Guðs
hjálp gæti svo iarið að þjer með því
grcidduð Ivristi veg að einhverju manns-
hjarta á þeim heimilum.
Verð og stærð blaðsins breytist ekkert
næsta ár, og reyna mun jeg að sjá um
að stefnan verði óbreytt, hvernig sem
annars fer.
I fullu trausti til yðar verður upplag
l)laðsins aulcið að mun eftir áramótin,
og allii' nýir skilvísir kaupendur geta
fengið ókeypis í kaupbætir III. eða IV.
árg. iunheftan. Pó verð jeg að biðja nýa
kaupendur í Ameriku að greiða 15 cent
í burðargjald undir þann kaupbætir. Um-
boðsmcnn blaðsins þar veita þvi viðtök-
ur um lcið og blaðið er panlað.
Ennfremur verð jeg að biðja alla þá
sem fengið hafa ofsent einhver tölublöð
þessa árgangs að endursenda þau hið
allra fyrsta á minn kostnað. Sjerstaklega
vantar mig 7. og .9. tölubl. p. á.
Nál. 50 nýir kaupendur bíða eftir þeim,
og þvi er svo mikilsvert að þjer, sem
fenguð send mörg »sýnisblöð« fyrri hluta
árs, eða haldið ekki hlöðum saman, vild-
uð endursenda þau. — Gleymið þessu ekki.
Vinir blaðsins í Reykjavík ættu að fá
hjá mjcr eitthvað af eldri árgöngum
Bjarma og safna síðan nýjum áskrifend-
um, enda velkomið að gefa fátæku trú-
hneigðu fólki þá gömlu árg., sem nóg er
af. Utbreiðsla blaðsins i Reykjavik er
elcki eins mikil að liltölu og víða annar-
staðar, en gctið þjer ekki bætt úr þvi?
Að svo mæltu óska jeg yður öllum
gleðilegra jóla og blessunar Drottins á
komandi ári.
Sigurbjörn A. Gislason.
(?.... ="•..... ■■
Hvaðanæfa.
............ ==_______ —4
» L a n d i ð « hefir nýlega birt fermingar-
ræðu eftir sra Jóh. L. Jóhannsson, þá
síðustu er hann ílutli áður en hann flutt-
ist frá Kvennabrekku. Leyfir Bjarmi sjer
að birta lijer kafla úr henni. Væntanlega
verður bæði þessi ræða sjerprentuð og
kveðjuræða sra J. L. J., sem Landið heflr
sömulciðis flutt, og geta þá lesendur
Bjarma eignast þær.
Ræðukaflinn hljóðar svo:
MÞað hefir nú undanfarið gengið margs-
konar lausung yfir menn í trúarefnum,
svo að allmargir hafa glatað barnatrú
sinni, en þá kemur auðn og tóm í sálina,
sem eigi er unt við að una, með því líka,
að þá vantar samviskufriðinn, er einn
má láta menn Iifa sæla. Nú eru jafnframl
uppi í heiminum ýmsar fáránlegar trú-
málakenningar, undir ýmislegum nöfnum.
og við þeim gleypa þá hinar innantómu
og glorhungruðu sálir, sem nokkurskonar
uppbót fyrir kristnu trúna, er þær hafa
að fullu eða hálfu leyti hafnað. Par verð-
ur þá sálarfæðan ýmiskonar andlegur ó-
þverri i staðinn fyrir lieilnæma kenn-
ingu. Pað fer jafnan likt sem postulinn
segir: »að þegar menn fást ekki til að
trúa hinni heilsusamlegu kristindóms-
kenningu, sem frá Guði er komin og
engan liefir nokkru sinni svikið, þá ofur-
selur Drottinn þá allskonar villufjarstæð-
um«. Varist því að lála tjettúð og laus-
ung tíðarandans, eða dulrænu og hjátrú-
arfullu kenningarnar hans og kreddur
leiða yður burtu frá barnatrú yðvarri.
Forðist að láta ginna yður út í nokkra
villu, hver.su mikil speki og vísindi sem
hún segist vera, heldur skuluð þjer fast
halda við sálulijálplegu kenninguna, sem
yður hefir nú innrætt verið. Dað er
heimska, að hlaupa cftir sjerhverjum
nýjum kenningarþyt og viskuvindi. Hag-
nýlið j'ður þar á móti alt það gott, sem
þessi alvarlegi tími ber í skauti sínu.
Látið orðin yðar jafnan bera vott um
gott lijarta og verkin um kærleiksríkl
liugarfar. Sannkristinn maður er fús til
hluttekningar með þeim, er þrautir líða
i einhverri mynd, og vill ávalt hjálpa,
likt lausnaranum, er gladdist með glöð-
um og hrygðist mcð hryggum. Viðkvæmt