Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1919, Page 8

Bjarmi - 01.01.1919, Page 8
4 BJARM I vonaði að nú mundi bún sofna; þegar hún leit upp aflur, var hún öllu rólegri í bragði: »Mjer er það hugfró að segja þjer frá þessu, Ragnar«, sagði hún. »Jeg gæti ekki dáið með öll þessi ósköp í liuganum, — allar þessar myndir úr liðna tímanum. Jeg hefi lifað í gáska og gjálífi. Pahhi bannaði mjer aldrei neilt, og svo komst jeg upp á lagið — seint úti á kvöldin, — á liverri skemtun með kærulausum gárungutn, strákum og steipum, sem aldrei gera annað en »drepa tímann«. Hún brosti raunalega : »Drepa tím- ann! Veistu hvað það þýðir, Ragnar ?« Nei, þú veist það ekki, hugsjónamenn drepa ekki tímann, — slæpingjar einir gjöra það, um leið og þeir drepa hið nýtilegasta í sjálfum sjer, með því að ala önn fyrir girnduin sínum og fýsn- um«. »Rlessuð, reyndu nú að fara að sofa«, sagði Hagnar aftur. »Við skuluin tala betur um þella ait á morgun. Nú skal jeg reyna að raula kvöldvers fyiir þig, en þú ált að hugsa uni það, að við erum öll í alvalds hendi Drottins, sem vakir yfir velferð okkar. Hann vill vissulega ekki dauða syndugs manns, heldur að hann snúi sjer og lifi«. Hún starði á hann, eins og hún ælti örðugt með að skilja orð hans. Svo lók hún ulan um hending á hon- um og hvíslaði þreytnlega: »Syngdu þá versin hennar mömmu!« »Vertu Jesús minn hjá mjer, mig lát aldrei sleppa þjer. Bjartan, hlýjan hústað þjer, bú þú nú í hjarla mjer. Heimur gleði enga á, upp sem fylli hjartans þrá, en við brjóst þitt ástvin minn, á jeg þegar himininn. Hún lá með aftur augun á meðan Ragnar raulaði erindi þessi, og stór tár runnu ofan kinnar hennar. »Pakka þjer fyrir«, sagði hún. »Gott væri að vera orðinn barn«. Stundarkorni síðar stóð Ragnar upp úr sæti sínu, Helga var stein- sofnuð, hún dró andann rólega og hrærði hvorki legg né lið. Ragnar lagðist út af í legubekk, sem stóð gegnt rúminu. Hann var þreytlur og ællaði að sofna, en svefn- inn flýði fyrir margvislegum hugsun- um. Síðastliðni dagurinn með öllum atburðum lians birtisl í liuga Ragn- ars, frá því fyrst urn morguninn að stúlka ein æði fasmikil og frekjuleg, að honum þótti, kom inn í herbergið hans og bað liann að koma og ráð- stafa syslur hans. sem væri orðin mjög vcik, — alt til þess að hann sat lijer við rúmið hennar á sjúkra- húsinu. Hann hefði fengið leyfi til að vaka yfir henni um nóttina. Og nú hafði bann fengið að skygn- ast inn í hugskot hennar, því þó að hann öðru hvoru reyndi til að telja sjer trú um að flest af því sem hún var að segja, væri marklaust óráðshjal, þá gat hann þó ekki hrundið þvi frá sjer, að ýmislegt af því, sem hún hefði verið að tala um, væru sönn atriði úr eigin lífi hennar. Aumingja Helga lilla! IJað var raunalegl að hugsa til þess að hún liafði leiðst afvega í Ijettúð og gáleysi, en með Guðs hjálp vonaði Ragnar að nú yrði breyling á þessu. Hún liafði minst á dauðann. Ragnar reis sjálfrált upp við olnboga og lagðí liluslirnar að andardrætti hennar. Svo lagðist hann út af aflur, og heit bæn steig upp frá brjósti lians fyrir veiku systurinni. Undir morguninn kom hjúkrunar- konan inn, hún varð hýr á svipinn þegar hún sá hvað Helga svaf vært.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.