Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1919, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.01.1919, Blaðsíða 11
BJARMI 7 Auðvitað yrði biskup að vera oftar á ferð, eu nú tíðkast, segjum 3. hvert ár. Æskilegast væri, að ferðir biskupsins væru sem pjettastar, pví að það er jeg sanufærður um, að pær mundu hafa blessunarríkar afleíðingar i för með sjer. t*að jTrði vitaskuld kostnaðarsamt. En gæti ekki sameiginlegur kirkjusjóður ann- ast pær ferðir. Það virðist meir ríkjandi skoðanir hjá stjórn kirkjusjóðsins, að safna lionum í fjepyngjur suður i Reykja- vik, en til eílingar guðsríkis á jörðinni. Að endingu vil jeg nú skora á alla dug- lega og áhugasama kristindómsvini, með biskupi í broddi fylkingar, að ræsta nú vel til, og ryðja í brott mörgum prestum, sem nú eru að nafninu til pjónandi, en skipa aftur embættin sönnum áhugam. i trúmálum og duglegum starfsmönnum í kristindóms-málunum. Því það er lýð- um Ijóst, pólt pví miður að fáir liafi prek til að viðurkenna pað opinberlcga, að margír prestar okkar eru til andlegs niðurdreps fyrir málefni Krists. P. II. Athugasemd. Pótt grein pessi sje ærið þungyrt í garð presta, telur Bjarmi eigi ástæðu til að úthýsa henni, en leyfir sjer jafnframt að benda háttvirtum höf. hennar og öðrum á pessi atriði: Pað er óhugsandi að nokkur biskup geti »visiterað« allar kirkjur landsins á hverjum prcmur árum. Vegalengdirnar annars vegar og margháttuð skrifstofu- störf heima fyrir hins vegar hamla þvi. Enda sjálfsagt miklu liklegra til góðs árangurs að biskup fari liægt yíir og kyunist vel í hverju einstöku prófasts- dæmi, en að hann reyni að fara sem lengst yfir og geti svo hvergi neina við- dvöl liaft. — Annað mál væri, ef vígslu- biskupunum væri einnig ætlað að »vísit- era«, en pá yrði að launa peim svo vel að þeir gætu haft aðstoðarpresta til að gegna prestembættinu meðan peir væru i slikum ferðum. Ilinn almenni kirkjusjóður er að lög- um ætlaður eingöngu til kirkjubygginga, en landssjóður greiðir ferðakostnað við embætlisferðir biskups. Það cr alveg rjett að vítavert er hvað margir prestar vanrækja lögboðnar hús- vitjanir; en pvi kvarta ekki hlutaðeigandi söfnuðir cða sóknarnefndir yfir pví opin- berlega? Annars má pví að eins búast við nokkru gagni af húsvitjunum presta, að þeir hafi eitthvert erindi frá Drotni að /liltja. f“vi að hvaða andlegt' gagn er að að pví, pótt prestur komi á bæ og spyrji um aldur fólksins. en tali að öðru leyti ckki um annað en hver annar gestur, og fari svo, »pegar búið er að drekka kafi'- ið«, eins og o/víða á sjer slað? Það má vel vera að rjett væri að veita söfnuðum frekari völd til að losna við áhugalausa presta. Nú er peim það nærri ómögulegt, nema presturinn gjöri sig sekan í einhverju, sem lögin kalla »hneykslanlegt athæfi«. — En eftir und- anfarinni reynslu er harla vafasamt hvern- ig söfnuðir mundu beita pvi valdi. ()g kunnugt cr tnjer um að söfnuðir hafa mjög haktalað prest sinn — og pað ekki að ástæðulausu — og sömuleiðis hall- mælt kirkjus'jórninni fyrir aískiftaleysi, en þegar hún hefir svo loks skorist í leikinn, pá hefir rneiri hluti safnaðanna breitt yfir alt saman og ekki pólt nein ástæða til að svifta prestinn »kjóli og kalli«, — en haldið samt baktalinu áfram! Vitanlcga væri það æskilcgt, ef unt væri að losna við áhugalausu prestana og skipa embættin aftur sanntrúuðum áhuga- sömum mönnum, — en hvar á að taka þá? Bjarmi hefir enga trú á að uppeldi og uppfræðsla yngstu guðfræðinga vorra gjöri þá liklega til að skara mikið fram úr eldri prestast jettinni í kristindómsmál- um. Allskonar efasemdir á Guðs orði ann- ars vegar og liins vegar margháttuð lijá- trú og hindurvitni eru ckki líkleg til að skapa einbeitta og fórnfúsa Icrístindóms- boðendur. Ennfremur mætti á pað minnast hvað llestir söfnuðir pessa lands gjöra lítið eða ekkert fil að hlynna að trúaráhaga presta sinna með sjálfboðaliði við krist- indómsstarfið. Eins eru pau smánarlaun, sem prestum eru retluð, mæta vel fallin lil þess að freista peirra til að hal'a prests- störfin alveg i hjáverkum. Vílanleaa er prestum velkomið að koma að hér í blaðinu athugasemdum við fram- anskráð ummæli okkar P. H. um pá, ef þeir vilja. Ritstjórinn.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.