Bjarmi - 15.06.1919, Qupperneq 8
104
ÖJARMl
skreytt sig með. Nú var hann ríkur með
ríkum og voldugur með volduguma, (bls.
41). Föðurástin olli því. Hún var stórvelrii
í lífi hans, sem afmáði alt gamalt og
gjörði það nýtt.
Bernskuárum »Klöru Gullu« er snildar-
lega vel lýst. Heimilið hennar er fátæklegt,
einfalt og óbrotið, en roðað af sólskini
barnæsku og barnsástar, hún fellur sem
lilý gróðurdögg á hrjóstugt hjarta Jóns
gamla, og tengir hann æ traustar óvið-
jafnlega barninu; það er samgróið hjarta
föðursins, liugsunin um barnið elur og
endurnærir eldheita og óslökkvandi föð-
urástina, uns hún að lokum útrýmir allri
heilbrigðri hugsun 'og festir barnalegar
draummyndir í huga gamla mannsins.
Víða er í sögu þessari Iátlaust gaman
og djúp alvara svo sameinuð að lesand-
inn hlýtur að lesa hana brosandi með
tár i augum. En þegar enginn fallegi
draumurinn um hana Klöru Gullu rætist,
og allar óteljandi vonirnar, sem við hana
voru tengdar, verða að engu, þá dregur
höfundurinn lesandann ofan í neyðardjúp
föðurhjarta, sem brestur af harmi.
Þannig lýkur sögunni eftir að vitfirring
og allskyns mæða hefir ásótt gömlu
hjónin í Fellskoti og Klara Gulla hefir
horfið burt frá æskuheimili og foreldrum.
Hún talar máli föðurástarinnar þessi
saga, og væri vel að sem flest ungmenni
vor vildu Iesa hana með athygli; vera
kynni að einhver kannaðist þar við sína
eigin sögu að meira eða minna leyti, og
efalaust getur hin gullfallega saga skýrt
og minnt lesandann á þakkarskuld við
eigin föður eða móður.
Giiðrún Lúrusdótlir.
Hvaðanæfa.
Heima.
Prestaslefnan (Sýnódus) verður haldin
í Reykjavík 26.-28. þ. m. Magnús dócent
Jónsson prjedikar í fundarbyrjun í dóm-
kirkjunni og 2 eða 3 erindi verða llutt i
kirkjunni í sambandi við Sýnódus, en
annars verða fundahöldin i húsi K. F.
U. M. — Síra Arne Moller, sem mikið
hefir um ísland skrifað, og síra Haukur
Gislason frá Kaupmannahöfn, eru báðir
væntanlegir liingað með Gullfossi, og
verða að sjálfsögðu á Sýnódus, — Hitt
er orðum aukið, að norrænn presta-
fundur verði lijer í sumar, og scnnilcga
hætta sænsku guðfræðingarnir við að
koma í þetta sinn, sem hingað ætluðu.
Síra Ólafur Slephensen hefir verið sett-
ur prestur að Bjarnarnesi í Ilornafirði og
fluttist þangað austur nú með Sterling.
Vestan um haf.
Iíirkjiiþing Veslur-íslendinga (hið 35.)
verður haldið i Árborg, Manitoba 25.—
30. þ. m.
Adam Porgrímsson, gagnfræðingur frá
Akureyri, sem verið hefir undanfarin ár
við guðfræðisnám i Chicago, var prest-
vígður 4. f. m. í Winnipeg af forseta
Kirkjufjelagsins. Verður hann prestur i
Marrows-bygðum nálægt Manitoba-vatni.
Konan hans og 4 börn þeirra fóru vest-
ur um haf með Lagarfossi siðast. —
Bjarmi óskar þeim allrar blessunar.
Alhent ritstjóra Bjarma siðan seinast
var auglýst:
Til Hallgrímskirkju: Frá Gísla (áheit)
20 kr., frá prófasti Jóni Sveinssyni, Akra-
nesi 28 kr. 50 a.
I Jólakvcðjnsjóð: Frá börnum í prcsta-
kalli sira V. I. Sigurðssonar, Desjamýri
9 kr. 61 a.
Bjarma borguðu: S. J., Grindavik, 10.—
13. árg, 10 kr., V. J., Geirshlið, 13. árg.,
4 kr., S. Guðmundsd., Vestmannaeyjum,
13. árg., 10 kr., I. Sigurðsson, Rvík, 3
eint. 13. árg., 8 kr., A. A., Laugarnesi, 13.
árg., 10 kr.
í Jólakveðjusjóði eru nú 93 kr. 87 a.,
og er það alt of lítil upphæð til þess að
hægt sje að kaupa vandað isl. málverk
til endurprentunar. Komi engin veruleg
samskot mjög bráðlega, verður ekki hægt
að senda dönskum börnum neina mynd
um næstu jól.
Vegna margra fyrirspurna skal þess
getið hjer, að jeg er ekki búinn að fá
svar Kirkjufjelagsins íslenska vestan hafs
um hvort það gengur aö þeim skilyrð-
um, sem jeg setti upp, þegar köllunar-
brjefið kom að vestan í vetur, og veit
jeg því ekki enn, hvort jeg fer eða verð
kyr. S. .1. Gislason.
Prontsmiðjan Gutenberg.