Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.08.1922, Qupperneq 1

Bjarmi - 15.08.1922, Qupperneq 1
BJARMI = KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ = XVI. árg. Reybjavíb, 15. ágúst 1922. 19. tbl. Sœll er sá er gistir i skugga pess almállka. (Sálm. 91, 1). Sadhu Sundar Singh. Úr ræöu lians í Liselund hjá Slagelse 29. maí 1922. Þessu næst ætla jeg að segja yður frá manni einum í Tibet, sem þoldi dauðann fyrir trú sína. Reir ógnuðu bonum og sögðu, að hann mætti ekki boða öðrum orð Guðs. En hann fjekst ekki um það; hann vildi svo feginn þola mikið, sakir frelsara síns; en þá handtóku þeir hann og vörp- uðu honum niður í koldimman kjall- ara, svo að liann handleggsbrotnaði af fallinu; en þá gerðist það máttar- verk, að handlegguriun greri sam- stundis aftur. En engin sjerstök á- hrif hafði þetta á hann; hann lofaði og vegsamaði Guð hárri raustu. Þá færðu þeir hann úr fötunum og tóku að skera í bert hörundið og skáru stykki úr holdi hans; að því búnu stráðu þeir spænskum pipar og salli í sárin. En þrátt fyrir allar þær kvalir, sem hann tók út, þá lofaði hann enn og vegsamaði Guð. í*eir ristu nú sundur tunguna, svo að blóð- ið flaut út af munni hans. Þá ljet hann þá þó skilja, að þeir hefðu rænt hann þeim munni, sem hann hefði haft til að vitna um frelsara sinn, en nú hefðu þeir aftur á móti gefið sjer marga munna, en það væru sin opnu sár og nú vitnuðu þau um frelsarann. Og svo sagði hann þeim frá þeim friði, sem hann ætti nú i hjarta sínu. En þeir skildu hann ekki. Og á andlátsstundinni opnaði hann augun og hann leit á þá með þeim dýrðarljóma í augum, að þeir urðu fullir undrunar. Og síðan sagði hann: »Faðir í þínar hendur fel jeg anda minn«. Og svo fór hann heim. Þeir tóku nú hníf og skáru hann upp, en þeir gátu eigi fundið þann frið i hjarta hans, sem hann hafði verið að tala um, því að friður Guðs er öllum skilningi ofar. Píslarvættis- dauði hans fjekk mjög á marga og enn tala þeir um hina miklu djörf- ung hans í Tíbet. Jeg hitti þenna mann sjálfur, áður en hann var af lífi tekinn og spurði hann um dýpsta leyndardóminn í sálu hans. Hann svaraði mjer því, að hann lifði og drægi anda sinn í Jesú Kristi. Pá var jeg Indverji — nú Krists; las jeg þá af kappi helgirit Indverja, en enga hvíld gat jeg þar fundið sálu minni. Pá fyrst, er mjer lærðist að biðja Krist, fann hjarta mitt frið. Einu sinni kom jeg til sömu borg- ar og þessi píslarvottur, til þess að boða fagnaðarerindið. Þeir hótuðu mjer þá þegar í stað þungri refsingu ef jeg prjedikaði þar; en jeg svaraði þeim, að jeg hefði Guð með mjer og mundi boða fagnaðarerindið með allri djörfung, til þess að sá hinn sanni Jesús gæti fengið bústað í björtum þeirra, og þess væri þeim svo brýn þörf. En þeir vildu ekki af neinu slíku vita og tóku að varpa á mig

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.