Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.01.1924, Side 10

Bjarmi - 01.01.1924, Side 10
6 BJARMI sjálfum höf. nýja testamentisins. — Prófessorinn segir í fyrnefndum rit- dómi: að bókin sje einkar hentug fyrir kenslubók í skóla, — og finnur það að bók Jóns Helgasonar fyrver- andi prestaskólakennara, að hún sje úrelt eftir 17 ára tíma, hvað þá heldur fræði Lúthers, eftir því nær 400 ár. En nú liggur næst að spyrja próf. H. N. — er Guð þá umbreytingu undirorpinn — að það skuli geta orðið úrelt, sem bygt er á orði hans, — þess Guðs, sem út gaf lögmálið, og sem vjer vitum og trúum, að sje eilífur og óumbreytanlegur, og segir ekki Kristur: »að hinn minsti bók- stafur lögmálsins skuli ekki úr gildi numinn«, og að hann sje »ekki kom- inn til að uppleysa, heldur uppfylla það«, svo að það er mjög hætt við, að við þessa nútíma spekinga verði sagt líkt og Fariseana forðum: »þjer villist og þekkið ekki ritningarnar«. Jeg vona, að allir greindir og gætnir alþýðumenn láti ekki hrekja eða af- vegaleiða sig af þeim eina og rjetta vegi sannleikans, sem Jesús Kristur hefir vísað oss, og látið vísa fyrir munn sinna postula, er þeir hafa oss skrifað eftir sig látið, og sem er á fastari rökum bygður en svo, að nokkrir nútíma spekingar fái honum raskað; því jeg held þar um mætti segja, sem skáldið kveöur: »þeim líðst svo sem hann — lofar framt, lengra komast þeir ekki«, og betra er prest- laus að vera, heldur en hafa þann prest, sem innleiðir í söfnuð þann er honum er á hendur falinn meira van- traust og ýmsar trúarvillur hinnar mannlegu speki, heldur en Guðs hreina og ófalsaða orð, eins og það boðast oss i heilagri ritningu; og ber sjerstaklega nauðsyn til að vara hina uppvaxandi kynslóð við slíkum voða. En hvað rjettmæti kenningar þeirra viðvíkur, sem biblían beðar oss, læt jeg mjer nægja, að tilfæra það, sem Páll postuli segir: »En þó að vjer eður engill frá himnum boðaði yður náðarlærdóminn öðru vísi, en jeg hefi kent yður, hann sje bölvaður, og það læt jeg yður vita, bræður, að sá lær- dómur. sem jeg kendi, er ekki af mönnum, því hvorki hef jeg numið nje lært hann af mönnum, heldur fyrir opinberun Jesú Krists«. Enn fremur langar mig, að minn- ast lítið eitt á andatrúna eður dul- speki eða hvað það er nefnt; vjer erum svo ókunnir þar, að vjer vitum ekki hvernig sá vísdómur er fram- leiddur, en heyrt höfum vjer, að það gerist í myrkri eða dimmu, og sje svo, getur maður ímyndað sjerhvaðan sú speki hefir uppruna sinn, því eitt er víst, að ekki er hún frá Guði, því hann er Ijós og ekkert myrkur er í honum. En sje það nokkuð, þá skyldu menn halda, að myrkrahöfðinginn framleiddi þar einhverja dulspeki til að styrkja þá í vantrúnni, líkt og Sál konung forðum. En eitt er víst, að þeir sem hyggja á þvílíka speki fá aldrei að vita helminginn af því sem satt er, og furðar mig stórlega, að hámentaðir menn skuli geta gert sig svo auðvirðilega að leggja nokk- urn trúnað á slíkan hjegóma — eða vanvirða íslenska tungu með þvílíkum ósóma, í ræðu og riti, og jeg get, að trúarskáldinu okkar góða, mundi ganga það til hjarta, mætti hann líta upp af gröf sinni og litast um, og mjer finst ekki illa til fallið, að enda mál mitt með sjálfs hans orðum: »Gefðu að móðurmálið mitt, minn Jesú pess jeg beiði, frá allri villu klárt og kvitl krossins orð pitt útbreiði um landið hjer lil heiðurs pjer, helst mun pað blessun valda, meðan pín náð lætur vort láð líði og bygðum halda. Kristján Jónsson frá Hælavík.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.