Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.03.1927, Page 2

Bjarmi - 01.03.1927, Page 2
54 RJARMI nemenda var ekki heldur há fyrst í stað. Það virtust því litlar lfkur til að fyrirtæki þetta mundi langætt. Forgöngumenn voru þó öruggir, því að þeir vissu að Guð var í verki með þeim. Og að baki þeim stóð trúað fólk iunan safnaðanna um land alt og bar fram staríið með bænum og aðstoð. Prófessorarnir voru dugnað- armenn og vel að sjer, en það sem mestu skifti var, að þeir voru trúað- ír menn. t*eir unnu því brátt traust og kærleika nemenda sinna. Og hjer blómgaðist trúarlifið, en við háskól- ann fór þvi síhnignandi. Nemendur frá þessum árum eiga margar ógleym- anlegar endurminningar írá samlíBnu í skólanum. Starfið tók nú að aukast ár frá ári. Nemendum fjölgaði, Ijárhagur skólans batnaði og hann gat nú veitt allgóðan námsstyrk. 1913 fjekk hann rjett til að halda próf og hann hefir nú smám saman öðlast óll hinsömu rjettindi og háskóladeildin, þó mjög hafi það mætt mótspyrnu af hálfu nýguðfræðinga. Lengst af hafa þó allir guðfræðisnemar orðið að stunda »kennimannlega guðfræðia við há- skólann, og hinar mikilvægustu grein- ar námsins, prjedikun og sálgæslu, hafa þannig verið í höndum nýguð- fræðinga. En 1925 veitti stórþingið skólanum rjett til að stofna kenni- mannlega deild. Guðfræðisdeildirnar eru nú með öllu skyldar að skiftum og stúdentar geta valið á milli þeirra. Mun það að líkindum frernur draga úr kirkjudeilunni en auka. Húsakynni skólans bötnuðu. Hann eignaðist allstórt hús á góðum stað i miðbænum, með fyrirlestrarsal, samkomusal, lestrarstofum og bóka- safni. Og sifelt fjölgaði nemendum, einkum þó síðustu árin. Tala þeirra er nú á 3. hundrað og meira en */s hlutar þeirra stúdenta, sem guðfræð- isnám stunda i Noregi, láta innrita sig i Safnaðarprestaskólann. Eigi mun lengi þess að biða, að bót ráðist á prestaeklunni hjer í landi. Að því er námið snertir jafnast skólinn fyllilega við háskóladeildina og nemendur standa að engu leyti háskólanemendum að baki. 1924 gat hann í fyrsta sinn veitt einum nem- anda hina sjaldgæfu einkunn »lauda- bilis med indstilling«, háskóladeildin hefir ekki veitt þá einkunn siðan 1909. Efni til verðlaunaritgerðar gaf hann í fyrsta sinn 1923, ogverðlaun- in hlaut einn nemenda. Og einn af nemendunum frá fyrri árum varð doktor teol. 1924 og er nú dócent í kirkjusögu við skólann. Prófessorarnir eru 6. Má að nokkru minnast 3 þeirra. Dr. O. Moe er for- maður skólans og prófessor í Nýja testamentisfræðum. Hann virðist eiga í miklum önnum, því að oftast er hann á hlaupum. Hann kemur með asa miklum inn i fyrirlestrasalinn og hefir fyrirlestur sinn svo ótt að erfitt er að færa i letur. En smám saman verður hann rólegri. Hann er mjög vel að sjer, og fyrirlestrar hans ern svo nákvæmir og efnismiklir að illt þykir að muna alt. Hann hefir skrif- að ágæta bók um Pál postula. Dr. O. Hallesby er prófessor í trú- fræði og siðfræði og mjög vel látinn Hann er hávaxinn og virðulegur, en um leið svo alúðtegur og brosandí að hann er hugljúfi allra slúdenta. Hann er svo rólegur og gefur sjer svo gott næði, að ætla mætti að hann hefði lítið að gera. En það er víst öðru nær. Mest er hann kunnur fyr- ir drengilega vörn gegn nýguðfræð- inni. Hann hefir einnig ritað margar bækur kristilegs efnis og þykja þær frábærlega góðar. Ræðumaður er hann með afbrigðum og flest sam- komuhÚ3 eru of lítil, þegar hann tal-

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.