Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1927, Qupperneq 5

Bjarmi - 01.03.1927, Qupperneq 5
B J A R M I 57 varpaði dálitlum skugga yíir hann, og festi minningarnar enn betur. Pað var sunnudagur. Við ætluðum til kirkjunnar, giftingin átti að fara fram eftir messu. Ekki var það á- formað að halda neina veislu, en við áttum von á bróður mínum og mág- konu og fáeinum kunningjum heim með okkur frá kirkjuDni, svo að Helga hafði viðbúnað nokkurn, að þeim yrði veitt sæmilega. Ábýlisjörð okkar var, eins og þeg- ar hefir skiiist á sögu minni, afskekt heiðarbýli og langur vegur til bæja, eyðilegt var þar þó engan veginn. — Bærinn stóð og stendur enn í grænu dalverpi með grösugum hlíðum á þrjá vegu, þær voru skjólgarðar við næðingum, stormurinn gat þolið og hamast í fjallinu fyrir ofan, en heim til okkar náði hann ekki. Það var oft unaðslegt á Núpi — ekki síst á kveldin þegar kyrt var og sólin seig i vestri á bak við háa jökulþakta hnjúka, sem setti dreyrrauða við kveldkossa sólarinnar, en skuggarnir í dalabotnunum föðmuðu hlíðarnar á meðan áraldan hjalaði hljótt við sefið hjá árbakkanumf* framundan bænum. Við Helga lifðum vissulega marga sæluslund við skrautbúinn barm fóstru okkar. En þetta eru útúrdúr- ar frá því, sem jeg ætlaði að segja frá. — Jeg hefi alla-jafna verið ár- risull maður, og þennan dag fór jeg á fætur fyrir aliar aldir. »Morgun- stund gefur gull í mund«, þegar hreint og hressandi fjailaloftið fylti mig af heilnæmi og nýju lífsmagni, og aldrei hefi jeg fundið betur ná- vist Drottins en á dýrðlegri morgun- stund, hvort sem það var heiðbjört sumarsólin, sem skein í heiði, eða tindrandi vetrarstjörhur, sem lýstu bláan himinbogann. Við áttum langa leið fyrir hönd- um til kirkjunnar og þurftum að komast snemma á stað. Jeg sókti hestana í tæka tíð, og við vorum ferðbúin snemrna. Heiga var hýr á svipinn þegar hún kom út á hlaðið aö heilsa upp á Skjóna sinn, og færði honum um leið vænan mjólkursopa og smjörklípu, sem tekið var þakksamlega við. wÞú sparar ekki við Skjóna«, sagði jeg hlæjandi. »það er hátíðisdagur i dag«, svar- aði Helga i gæluróm og strauk um brjóstið á klárnum, um leið og hún leit á mig brosmildu augunum fögru. »Heldurðu að Sjóni minn verði ekki að njóta þess ofurlítið með okkur?« Nokkru fyrir dagmál hleyptum við úr hlaði. Jeg man það lengst hvað Skjóni bar fimlega fæturna með hring- aðan makkann og eldsnör augun, sem brunnu af ákefð og metnaöi. »Han er ekki latur sá skjótti núna«, sagði jeg eftir fyrsta sprettinu. »Jeg er hálfhræddur um þig á honum«. »Hræddur um mig á Skjóna«, hafði hún upp eftir mjer og hló hjartanlega. »Hann er ofsafenginn klárinn, þeg- ar þvf er að skifta«, sagði jeg, »og biessuð gáðu nú að því að hleypa ekki galsa í hann«. Helga hló aftur. »Ertu hjartveikur í dag, góði?«, sagði hún, og reið fast npp að hliðinni á mjer. »Dreymdi þig illa í nótt?« bætti hún við glettn- islega. »Sei, sei, nei, mig dreymdi alls ekkert í nótt«, svaraði jeg. »En það kemur vökunni við, þetta með Skjóna þinn. Haltu vel við hann. Hleyptu honum ekki um of. Það verða sjálf- sagt fleiri á ferð, þegar nær dregur kirkjunni, fólk fer á kreik í góða veðrinu, og ef að við lendum i sam- reið, væri líklega rjettara að við skiftum um hesta. Klárinn minn veröur aldrei mjög baldinn þótt hann sje vel viljugur«.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.