Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1927, Qupperneq 6

Bjarmi - 01.03.1927, Qupperneq 6
B J A R M I 58 »Blessaður vertu«, sagði Helga og hafði mjög gaman af varkárni minni. »Jeg veit að þjer gengur gott eitt til, en heldurðu að mjer sje ekki ó- hætt á honum Skjóna, jeg hefi kom- ið honum á bak fyr en i dag, og hvernig heldurðu að jeg geti látið nokkurn annan hest bera mig inn i hjónabandið?« »Ekki riðurðu á Skjóna þinum inn að altarinu«, sagði jeg og hló. »Nei, nei«, svaraði hún. »Jeg tek svona til orða að gamni mínu, en jeg hefi alt af hugsað mjer að sitja á Skjóna mínum þegar jeg heíi mest við«. Við hjeldum áfram ferðinni um fremur ógreiðan veg, þar til dró lengra ofan eftir sveitinni, þá batnaði veg- urinn og var með köflnm ágætur. það hefir margan manuinn hent, að falla fyrir »freistingum«, sem er sam- fara því, að sitja á góðum hesli, og við Helga urðum í þeirra tölu. Við riðum í loftÍDu, eÍDs og hestarnir kornust, og bágt er að skera úr því hverjum leikurinn var kærastur, klár- unum, eða okkur sjálfuin, en fúsir voru þeir til hlanpanna, og fljótir til spretlanna, það var eins og Skjóni tylti ekki fæti við jörð, ýmist rann hann á hinni fegurstu vekurð, sem jeg heíi sjeð, eða hann þreif til stökksius, með þeirri snerpu og á- kefð, að sá rauði minn drógst langt aftur úr, og taldi jeg hann þó með fljót- ustu hestum, og reið nú sem þjettast, Vegurinn lá um sljetta mcla, og Helga hvarf mjer brátt sjónum. Moldrykið þyrlaðist undan fótum Skjóna, svo að huldi hest og mann. Jeg náði henni þar sem melunum lauk. Við fórum þá af baki og leidd- um bestana á gras, þar sem oft var áð. Helga fór að fljelta hár sitt, sem var farið úr fljettunnm. »Þelta er hrein og beÍD fanta reið«, sagði jeg. »Við megum ekki ráða svona illa, Helga«. »Skjóna minn langaði svo til að hlaupaa, svaraði hún. »Gerði hanc það ekki laglega?« «Það held jeg nú«, sagði jeg. »En þarna kemur fólk. Eigum við ekki að bfða hjer, þangað til það er farið fram hjá, og sjá hverjir það eru?« Helga leit við sem snöggvast. Henni brá, sýndist mjer. »Eru það ekki Dalsfeðgar?« sagði bún, og nú varð röddin snörp og knidaleg. »Ekki sje jeg betur, og einhverjir með þeim. Nei, jeg bíð ekki eftir þeim. Jeg vona að Skjóni minn skili mjer nægilega langt á undan þeim, og losi mig við samfylgd þeirra«. »þeir eru vel ríðandi«, sagði jeg. »Jeg held það verði fult eins jgott fyrir okkur, að bafa þá ^á undac okkur«. »Ekl<i held jeg það«, svaraði Helga. »Þeir á hjerna í ‘móunuin, eins og flestir gera, og á meðan tökum við sprettinu«. Hún vatt sjer á bak, áður en jeg gat komið henni til hjálpar, og Skjóui beið ekki boðanna. Jeg tafðist litiö eitt við beisiið á hesti minum, seœ haiði flækst einhvern veginr. utan um fótinn á honum, og rjett i sömu svif- um og jeg reið á stað, þeyslu þeir Dalsfeðgar að, ásamt piltum, sem jeg þekti ekki. Jeg spretti úr spori, og varö feginn er jeg sá, að þeir stigu allir af Ibaki, eg bjóst við, að þeir hefðu eitthvað meðferðis til hress- ingar, og vonaði að þeim dveldist við það. En ekki varð það lengi, því rjett á eftir hentist Björn fram hjá mjej á Ijón-fjörugum gæðing, sem var sagt, að hann hefði keypt ný- lega úr Skagafirðí.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.