Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1927, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.12.1927, Blaðsíða 2
230 B J A R M I 11. Um kirkjusönginn töluðu ýmsir auk frummælendanna. Allir voru þeir sammála ura þýðingu hans, og allir þökkuðu sjera Halldóri á Reynivöll- um hinn óþreytandi áhuga hans á því máli. Við þær umræður flutti Ólafur Björnsson erindi það, sem Bjarmi flytur nú. 12. Launamálum presta var þá bætt inn á dagskrá. Sra Fr. Rafnar á Útskál- um var flutningsmaður þess og flutti tillögu þá, sem hjer fer á eftir. Þótti sumum ræðumönnum undirbúningur málsins oí lítill og kváðust því ekki greiða atkvæði um það. Hinir voru þó miklu fleiri sem fanst öll sann- girni mæla með óskum prestanna. Lítið vit væri að launa prestum ver en ýmsum verkamönnum, og þó segja mætti að ónýtir prestar ættu engin laun skilið, ætti slíkt jafnt heima um hverja aðra starfsmenn þjóðarinnar. Enginn yrði betri prestur, þótt þjóð- fjelagið kæmi honum í fjárhagsvand- ræði. Prestum væri ætlað að hughreysta og gleðja, en mættu þá ekki eiga í meira basli en flestöll sóknarbörn hans. Fundarstjóri, sem kvaðst kunn- ugur flestum prestum landsius, mælti eindregið með málinu, enda þótt hann játaði að æskilegra hefði verið að forgöngumenn þess meðal presla, hefðu komið fyr með það á fundin- um svo að hægt hefði verið að setja nefnd í það áður en tillaga kom fram. 13. Um kirkjugarðsmálið urðu engar umræður, af þvf að þá var svo langt liðið á daginn. Pessar tillögur voru samþyktar, allar í einu hljóði: I. Sameiginlegur fundur presta og sóknarnefnda í Reykjavík 18.—20. okt. 1927 skorar á alþingi að bæta kjör sóknarpresta svo verulega að þeim sje gert fært að helga sig prests- starfinu eingöngu, en þurfi ekki að eyða starfskröflum sínum til annars. II. Fundurinn lætur í ljós þá ein- dregnu ósk til þeirra manna, er vinna að fyrirhuguðum breytingum á Helgi- siðabókinni og ráða þeim til lykta, að viðhafa hina mestu varúð við þær breytingar og forðast að gera nokkrar tilslakanir í þágu hinnar vaxandi lausungar í trúmálum í land- inu. III. Fundurinn lætur i ljósi þá ein- dregnu ósk, að reynt verði að styðja sem best að lcikmannastarfsemi til eflingar lifandi kristindóms meðal safnaðanna, og aö slík starfsemi verði hafin í söfnuðunum með þeim hætti, sem tiltækilegast þykir á hverjnm stað. Jafnframt óskar fundurinn þess, að prestar, sóknarnefndir og safnaðar- fulltrúar greiði sem allra besl fyrir mönnum, sem fara um sveitir til að vekja og glæða trúarlíf manna á hrein- um evangelisk-lúterskum grundvelli, enda hafi þeir til þess starfs með- mæli frá biskupi, prófasti eða sókn- arpresti eða einhverjum öðrum góð- kunnum evangelisk-lúterskum trú- málaleiðtoga. IV. Fundurinn skorar á alla, sem hlut eiga að máli að gæta betur rjetts helgihalds og telur æskilegt að sum- ardagurinn fyrsli verði meir friðaður en verið hefir. Forstöðunefnd fundarins var end- urkosin í einu hljóði: Árni Jónsson kaupmaður, formaður fríkirkjusafn- aðarins í Rvík, Ólafur Björnssou, kaupm. sóknarnefndarmaður Akra- nesi, Sigurbjörn Á. Gíslason og Sig- urbjörn Þorkelsson kaupm. úr sókn- arnefnd dómk.safnaðarins og Sigur- geir Gíslason verkstjóri safnaðar- fulltrúi í Hafnarfirði. Pá voru kosnir í gestanefnd: Sig- mundur Sveinsson dyravörður, Sig-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.