Bjarmi - 21.02.1928, Blaðsíða 1
BJARMI
=== KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XXII. árg.
Iteykjavík, 21. febr. 1928
7. tbl.
„Drottinn veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim, útbreiðir þjóðirnar og
leiðir þær burt“. — ]ob. 12, 23.
Guðs ríki fyrst.
Þingsetningar-prjedikun i dómkirkjunni
19. jan. 1928, eftir sra Friðrik Hallgrímsson.
nLeilið fgrst ríkis hans
og rjettlœtis, og pá mun
alt petta veitast yður
að auki«. — Matt. 6, 33.
Svo mælti hann, sem kendi læri-
sveinum sínum að biðja: »Tiikomi
þitt riki. Verði þinn vilji, svo á jörðu
sem á himni«.
Hann var að tala um áhyggjur
mannanna, — hugsanir þeirra um
hið marga, sem þeim fanst þeir
þurfa, til þess að geta lifað og starf-
að. Hann viðurkennir fyllilega að
það sje rjettmæt löngun hjá hverjum
manni að hafa það, sem nauðsyn-
legt er til daglegs viðurværis; og
hann segir lærisveinunum, að faðir
þeirra á himnum viti um allar þaríir
þeirra, og hann muni hugsa fyrir
þeim. En svo bendir hann í því sam-
bandi á eitt, sem þeir þurfi öllu
fremur að hugsa um, og það er:
að leita ríkis Guðs og rjettlætis hans.
Með því átti hann við það, að þeir
ættu að meta það mest af öllu, að
vera í því samfjelagi við Guð, að þeir
elskuðu hann, treystu honum og
gerðu vilja hans. — Rað á að vera
hið mikla og æðsta áhugamál hvers
kristins manns, að vera tengdur
skapara sínum og föður þeim bönd-
um, — að kosta kapps um að þókn-
ast lionum með öllu líferni sínu og
vinna að því, að vilji hans verði á
jörðu. Og hver sá maður, sem gengur
í þá samvinnu við Guð, að hið góða
og fagra, hið sanna og rjetta, verði
sigursælt í lífi hans sjálfs og annara
manna, hann vex i sönnu manngildi,
þroskast í öllu góðu, eiguast frið
góðrar samvisku og verður öðium
til blessunar.
Og fyrir milligöngu einstakling-
anna kristnu, — fyrir það, að líf
þeirra er Guði helgað, á þetta sama
að eiga sjer stað í þjóðlífinu. Pjóð-
irnar eiga að leita fyrst ríkis Guðs
I og rjettlætis hans. Rað á að vera
fyrsta og efsta málið á stefnuskrá
hverrar þjóðar, sem kristin vill kall-
ast, að þjóðlífið beri þess sem Ijós-
astan vott, að hún viðurkenni Drottin
Guð sinn og vilja hans æðsta lögmál
sitt. Og sje það gert, þá leiðir af því
ómetanleg blessun á hverju einasta
sviði þjóðlífsins.
Fyrir hverri þjóð liggja margvísleg
verkefni, sem bæði miða að því, að
efla atvinnuvegina, svo að mönnum
geti liðið sem best efnalega, og líka
að því, að efla sanna menningu, svo
að andlegur hagur hennar geti verið
með sem mestum blóma og hún
verði æ færari um að skilja köllun
sína og skipa með sóma sess sinn
meðal þjóðanna.
En í þessari viðleitni verða fyrir
mönnum ýmsir erfiðleikar, sem tefja
fyrir því, að settu marki verði náð.