Bjarmi - 21.02.1928, Page 5
B J A R M 1
53
þess fullviss, að Guð breytir gegn
okkur í kærleika og náð. Jeg er þess
fullviss að fyrirætlanir hans og ráð,
sem eru svo langtum æðri okkar
fyrirætlunum og ráðum, hafi það eitt
að takmarki, að leiða okkur heim í
alsælu hans, — við verðum að láta
hann afskamta okkur tíma og þiggja
hann úr hendi hans, — þakksamlega,
vinur minn, — full þakklætis.
Segðu þeim þetta, Jóhannes, svo
þær skilji það. Berðu þeim kveðju
mína, og segðu þeim frá því, hve
mjer hafi þótt vænt um þær — vænna
en þær ef til vill nokkru sinni rendu
grun f, og að jeg hafi beðið fyrir
þeim, — hverri einstakri — á hverj-
um einasta degi. Seg þeim að jeg
búist við að mæta þeim aftur hjá
Guði.
Segðu þeim einnig, rað alt það, sem
mjer mistókst eða sem þær sáu mig
gera ilt, hafi ekki verið brestur í
kristindóminum, heldur að eins brest-
ir minir, syndir mínar, sjálfselska mín.
Heldurðu að þjer takist að láta
þeim skiljast þetta?
Mintu þær og á að lesa biblíuna
á hverjum degi, og láta svo aldrei
hjá líða, að þær biðjist ekki fyrir.
Eg hefi ámint þær um að gera þetta.
þeim verður að skiljast, að meðan
þær biðja, þá eru þær ekki alveg
horfnar frá Guði.
Utskýrðu það einnig fyrir þeim,
aö þó þær kunni að snúa baki við
Guði, þá þráir hann þær þó alla
daga og vonast eftir þeim, og hann
er aft af reiðubúinn til þess að fyrir-
gefa þeim, sem biðja og biða, af
kærleika sinnar náðar. Þær mega
ekki láta hugfallast þótt sálir þeirra
sjeu orðnar flekkóltar af synd, þær
verða að koma fyrir þvi. Guð hefir
einmitt sýnt okkur í Kristi lifandi
kærleika sinn. Við sjáum, að kær-
leikurinn til allra er þjást, hvort
heldur af synd eða sjúkleika, er meg-
inþáttur í öllu starfi Krists.
Seg þeim það og syng það inn í
hjarta þeirra. Syng aftur og aftur:
»Konungur lífsins«, þeim þykir svo
vænt um þenna sálm, og hann er
svo auðskilinn. Jeg vildi að jeg fengi
að sjá þær allar afturl En Guði sje
lof. það er ekki rödd okkar, sem
þær eiga að hlusta eftir, — Guð
mun sjálfur koma til hjálpar þegar
hans tími er kominn.
Guð er óumræðilegá máttugur og
góður. Jeg finn það betur og betur.
Þín Ingunn.
í Heilsuhælinu »Sólarljós« u/s’23.
í nótt dreymdi mig undarlegan
draum, sem jeg verð að hripa upp
áður en það verður of seint — því
það getur hæglega orðið um seinan
að jeg geri það.
í gær, þegar maðurinn minn var
hjerna, sagði yfirlæknirinn okkur, að
lungu mín mundu ekki þola áreynsl-
una við öndunina mikið lengur en í
tvo mánuði — »ef til vill nokkru
eða jafnvel talsvert skemur, kæra
frú«. Hann komst við er hann sagði
þetta, — og þó hefir hann kveðið
upp dauðadóm yfir svo mörgum, —
en þetta er besti maður.
Að því er okkur snerti — mig og
manninn minn — þá þótti okkur
nærri því raunaljettir að því, að fá
svo skorinorðan úrskurð. Hvorugu
okkar hefir dulist hvernig komið væri,
en vegna kærleika okkar, höfum
við reynt í lengstu lög að hugga hvort
annað og vonast eftir bata. Nú get-
um við horft framan í sannleikann
og verið í einu og öllu f fullu sam-
ræmi við eðli okkar, en i því er
fólgin mikil hvíld. í gær fundum
við hve sæl við erum i raun og veru,
er við leituðum okkur sætis í furu-
I skóginum hjer við heilsuhælið. Við
/