Bjarmi - 07.03.1928, Qupperneq 5
B J A R M I
69
höfundarins og andríki hins háment-
aöa manns, sem virðist þekkja út í
æsar samtið sína, í hverju henni er
áfátt, hvað hún á við að stríða og
hvers hún einkum þarfnast með. En
það sem þó öllu öðru fremur gerir
postillu þessa svo einkar aðlaðandi
er sá vitnisburður sem hún flytur:
háevangeliskur vitnisburður um náð
Guðs í Kristi og þörf nútímamanna
fyrir þá náð. Jeg efast um, að hægt
sje að benda leitandi sálum, sem við I
efasemdir eiga að stríða, á betri leið-
sögumann en Sam. Stadener.
Að postillan er á sænsku þarf eng-
um erfiðleikum að valda, þvi að
málið á henni er mjög Ijett og auð-
skilið.
Það er sannfæring min, að prje-
dikanasafn þessa hámentaða sænska
kennimannaskörungs eigi brýnt er-
indi til islenskra kennimanna nútím-
ans og að þar veitist þeim margvis-
leg og nytsöm leiðbeining til þess að
skilja vora tíma og hvort erindi vitn-
isburður hinnar gömlu trúar, borin
fram í nútímabúningi, á til hinnar
núlifandi kynslóðar, sem hvorki þyrst-
ir eflir gamalli guðfræði nje nýrri,
heldur eftir þvf, sem fær veitt sál-
unni svölun til eilifs lífs.
Alveg sjerstaklega hygg jeg að prje-
dikanir Stadeners gætu orðið vorri
upprennandi prestakynslóð dýrmætur
leiðarvísir í starfi þeirra innan safn-
aðanna.
Bókin er kostuð af »Svenska Kyrk-
ans Diakonistyrelses Bokförlag Stock-
ho!m« og ætti auðveldlega að fást
hingað um hendur bóksala vorra,
sem selja útlendar bækur.
Dr. J. H.
Til Hallgrímskirkju i Saurbæ:
L. S., Rvík, 5 kr.
Margt er nú skrafað.
Eftir sra Gunnar Árnason.
Niðurl. II.
Mjer virðist alveg keyra um þver-
bak hjá sjera Gunnari Benediktssyni,
er hann í siðasta hluta greinar sinn-
ar fer að reyna að rýra gildi postul-
legu trúarjátningarinnar, með því að
segja að hún feli að eins í sjer auka-
atriði, að því sem trúna snertir, en
eiginlega ekkert af því, sem kristn-
um mönnum er hjaitfólgnast í trúar-
efnum. Hann segir: »En víst er um
það, að í postullegu trúarjátningunni
er fátt eða ekkert að finna af því,
sem kristnum manni lægi fyrst og
fremst á hjarta að vitna um, hvaða
stefnu sem hann tilheyrði. Þar er
þess ekkert getið, að Jesús hafi lifað
og dáið fyrir mennina, — að hann
hafi kent okkur að þekkja föðurinn
á hæðum og æðstu skyldur lífs
okkar. Þar er fórnardauða ekki getið
með einu orði, og ekki heldur að
Jesús lifi, og starfi með kiistni sinni
alla daga, alt til enda veraldar. Með
öðrum orðum : Þar er ekki getið þess
dýrsta og helgasta, sem kristinn
maður á i trú sinni og skoðunum,
í sambandi við Jesú Krist. En hins-
vegar er þar þulið ýmislegt smávægi-
legt, sem engum myndi koma í hug
að fara að minnast á i sambandi við
það helgasta í trú sinni og skoðun-
um, og annað er þar, sem beinlínis
er fjarstæða fyrir öllum þorra íslend-
inga nú á dögum«.
Það væri blátt áfram voðalegt, ef
þetta væri satt. Og enginn skyldi þá
vera fyrri til en jeg, að taka undir
með sjera Gunnari Benediktssyni um
að fella niður postullegu trúarjátn-
inguna.
En sannleikurinn er, að sjaldan