Bjarmi - 14.03.1928, Blaðsíða 1
BJARMI
= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XXII. árg.
Reykjavílí, 14. mars 1928
10. tbl.
„Sæll er sá lýður, er þekkir fagnaðarópið, sem gengur í ljósi augiitis þíns, Drottin“.
Sálm. 89, 16.
t
Haraldur prófessor Níelsson
aDdaðist að kveldi þann 11. þ. m.
Var skorinn upp tveim dögum áður.
Hann fæddist á Grímstöðum á Mýr-
um 30. nóv. 1868. Foreldrar hans
voru Níels bóndi Eyjólfsson og Sig-
ríður Sveinsdóttir prófasts á Staða-
stað Níelssonar. Hann varð stúdent
1890 og kandídat frá Hafnarháskóla
í ársbyrjun 1897 og tók öll sín próf
með háum einkunnum. Síðan vann
hann að biblfuþýðingunni í mörg ár,
einkum Gamlateslamentisins og leysti
það starf prýðilega af hendi. Enda
þótt einhver ágreiningur kunni að
vera um þýðing fáeinna ritninga-
staða þar, og Halldór heitinn Frið-
riksson hefði ýmislegt að athuga við
fyrstu þýðingar sýnishornin, þá
mun alment svo á litið, að allur frá-
gangur á Gamlatestamentis-þýðing-
unni sje aðal-þýðandanum til stór-
sóma. — Nýjatestamentis-þýðingin,
sem ritstjóri þessa blaðs er enn sem
fyr mjög óánægður með, kemur ekki
þessu máli við.
Árið 1908 varð hann kennari við
prestaskólann og vígðist sama ár að
Holdsveikrasjúkrahúsinu. Árið eftir
28. mai 1909 \ar hann skipaður 2.
prestur við dómkirkjuna samkvæmt
kosningu safnaðarins, en slepti því
embætli um haustið vegna veikinda
í hálsi og tók aftur við kensluslörf-
um við prestaskólann. Guðfræðispró-
fessor varð hann er háskólinn var
stofnaður 1911 og var háskólareklor
er hann andaðist.
Síðari árin flutli hann guðsþjón-
ustur i Fríkirkjunni í Rvík anDan
hvern sunnudag þegar heilsa og á-
stæður leyfðu, studdur til þess af
frjálsum samtökum ýmsra bæjarbúa,
sem hölluðust að trúmálastefnu hans.
Hann skrifaði fjölda ritgerða og
blaðagreina og ýms rit, einkum til
sóknar og varnar spiritísma, og enn
fremur ræðusafnið »Árin og eilífðin«.
Mælskumaður var hann þjóðkunnur
og mesti áhugamaður að hveiju sem
hann starfaði.
Hann var tvíkvæntur; fyrri kona
hans var Bergljót Sigurðardóttir pró-
fasts Gunnarssonar. — Lifa 5 börn
þeirra.
Síðari kona hans var Aðalbjörg
Sigurðardóttir er lifir mann sinn með
2 börnum þeirra.
Eins og þjóðkunnugt er var ágrein-
ingur mikill milli trúmálastefnu Har-
alds prófessors og þessa blaðs. En
ljúfast er mjer að minnast nú eldri
líma, fyrstu áranna, sem við þekt-
umst. þegar jeg kom, óþroskaöur
stúdent, á prestaskólann haustið 1897,
var H. N. nýkominn frá háskólan-
um, ötull og áhugasamur; þótti mjer
mikils vert að kynnast honum, og
áttum við samleið um margt næstu
árin. Tveir einir andmæltum við í