Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1929, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.04.1929, Blaðsíða 2
70 B J A R M I lærisveinarnir hlupu að flytja tíð- indin. Jeg held mig að þessam vottum. Peir voru einlægir, hrekklausir menn. Þeir voru reyndir menn. Þeir vissu hvað þeir sögðu. Finna ekki allir, hvilíkt líf er í páskasögunum um hinn upprisna Jesúm? Par er ekki efinn. Par er sigurvissan. Þetta voru hin miklu tíðindi. Dauðinn gat ekki haldið Jesú. — Glaðir lærisveinar sögðu frá þessu. Það er langt síðan þeir sögðu frá því. En oss þykir vænt um þá, af þvi að þeir skýrðu frá þessu. Það er eins og vjer þekkj- um þá svo vel. Jeg mun ekki treysta betur frásögn annara manna. Vjer þekkjum svo vel Pjetur og Jóhannes, og hina glöðu fjelaga þeirra. Það er einn liður í páskagleði vorri að hugsa um gleði þeirra. Já, hvilik gleði fyrir þá að eiga að mæta hon- um í Galíleu, og hin óviðjafnanlega gleði, að fá að koma heim til hans að jarðlífi og jarðnesku stríði loknu. Þetta er enn hið mikla gleðiefni, að mega flytja þenna boðskap: Hjer er um liðna tið að ræða, sannan viðburð. En hjer er einnig um sæla framtíð að ræða, í Ijósi páskatrúar- innar. — Vjer lítum aftur til hins fyrsta páskadags og fram til hins síðasta páskadags hjer á jörð, er lífið sigrarí fullkomnun sinni, og lærisvein- anna fjöld heilsar konungi sínum og frelsara. Þá er dauðinn uppsvelgdur í sigur. Ó, hugsum um þann fraintíðar páskadag, í hvert sinn er vjer göngum út að gröfunum. — Konurnar fóru að líta eftir gröfinni. Það gera svo margir enn í dag. Lítum eftir gröf- inni í trú á viðburð hins /grsta páskadags og hugsum um sigurdýrð hins siðasta páskadags, er vjer ásamt fylkingum Guðs barna heilsum hin- um upprisna frelsara. Hann fór á undan. Vjer á eftir. Eins og höfuðið, þannig limirnir. — En milli þessara tveggja daga skal eitt gert. Einu skal haldið áfram. Það skal haldið áfram að flytja mönnum tíðindin um hinn mikla páskasigur. Hvað á jeg að gera á þessum páskum? Halda áfram að segja frá þessu. Engillinn sagði: Farið nú með skyndi og segið lærisveinum hans: Hann er upprisinn frá dauðum. Og þær skunduðu burt. Pær hlupu að flytja lærisveinunum tíðindin. Frá þeim degi til þessa dags hefir aðferðin verið hin sama. Hún er hin sama enn. Páskaboðskapur er fluttur þeim, sem eiga að hlaupa aö flytja mönnum hin merkustu tíðindi. — Það var ekki sagt við mig, er jeg var sendur með páskaboðskapinn: »Reyndu að sanna mönnum þetta«. Það var sagt: »Segðu frá því«. Guð ábyrgist, að það er satt. Hann hefir sýnt, að hann kannast við þenna boðskap og gefur honum sigur. Pegar jeg var barn og hlustaði eftir kirkjuklukkunum á jólum og páskum, þá heyrðist mjer þær segja: Gleðileg jól, gleðilega páska. En á siðari árum heyrist mjer þær segja: Segðu frá þvi, seg nú frá. Nú segi jeg frá. Oss er gefin sönn- unin, hún er oss gefin í orðum Jesú sjálfs. Pað er sönnun anda og kraftar. En hinir sannfærðu eru sendir. Jeg er sendur til þess að segja þjer frá þessu: Jesús er sannarlega upprisinn. Og þessi hefir aðferðin ávalt verið. Jesús dó á vordegi einum, í aug- sýn margra. Á þriðja degi er þegar lítill hópur Iærisveina, sem veit að hann er upprisinn. Sjö vikum seinna miklu fleiri — og nú segja þeir hik- laust frá þvi, og enginn getur komið með sönnun á móti þeim. Upp frá því hjelt söfnuðurinn áfram að flytja þenna boðskap — ekki í leyni, þannig að nokkrir inn-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.