Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.04.1929, Page 8

Bjarmi - 01.04.1929, Page 8
76 BJARMI dags. Þegar á eftir skipa börnin sjer í flokka, oftast eftir aldri, og talar þá hvei kennari við sinn flokk í 12 til 15 minútur. Hafi salurinn verið fullskipaður börnum, ber nauðsyn til að nokkrir flokkarnir geti leitað til hliðarherbergja. Pegar viðtalsstundin er liðin, er bjöllu hringt, setjast þá öli börnin aftur í fundarsalinn. Er þá sálmur sunginn, stutt ræða flutt á eftir af forstöðumanninum, sálmur sunginn, bæn flutt og útgönguversið sungið. Sjeu sálmar stuttir og engar tafir, stendur þetta alt rúma klukkustund. Alment er litið svo á, að þar sem starfskraftar og húsnæði leyfa, sje æskilegri þessi flokkaskifting og margra manna leiðbeiningar en ein ræða, eða með öðrum orðum: sunnudagaskólar sjeu áhrifameiri en barnaguðsþjónustur. — Auövitað kann þessum sjálfboðaliðum að vera mis- jafnlega vel lagið að tala við börn, en sje þeim áhugamál að hjálpa börnunum til að elska Jesúm Krist og taka framförum yfirleitt í öllu góðu, þá verða vikuiegir undirbún- ingsfundir kennaranna þeim sjálfum til leiðbeiningar, þeir kynnast börn- unum hver í sínum flokki, — sje flokkurinn hæfilega stór (ekki yfir 20) — og verða smámsaman vel færir starfsmenn, þótt viðvaningsbragur sje á ýmsu í fyrstu. Aðalatriðið er að starfsfólkið sje vel kristið fólk, er taki til starfa af trú og kærleika, — og sje vel samhent í þessu starfi. — Það skiftir engu, þótt það hafi ólíkar skoðanir á öðru, t. d. stjórnmálum. — Vonandi lítil ástæða til að vara við þeirri fjarstæðu, að trúað fólk þurfi endilega að fylla sama stjórnmálaflokk. — Hitt er alt annað, að ekki er til neins að ætla sjer samvinnu í trúmálum, nema fult traust og samkomulag sje um það, sem flutt verður. T. d. er alveg óráð- legt að þeir, sem trúa guðdómi Krists og treysta biblíufrásögunum, og hinir, sem efast þar, fari aö vinna saman. Endurskírendur og lúterskir menn geta heldur ekki unnið saman að þessu starfi, nema aðrir hvorir bregð- ist sannfæringu sinni um barnaskirn. Sje sóknarpresturinn vinur efa- semdastefnanna, — er alls ekki ráð- legt að trúað fólk eldri stefnunnar taki nokkurn pátt i þessu eða öðru trúmálastar/i með honum, — enda mun hann sjaldnast óska þess. — Leiti hann sinna jábræðra til sam- starfs og veiti þeim tækifæri til að sýna áhuga sinn í verki. En hins vegar er meir en mál komið til að trúað fólk innan safnaðanna taki höndum saman um starfið meðal barnanna, hvort sem presturinn vill eða má vera að því að vera for- göngumaður, eða ekki. — 1 fjölmenn- ustu og víðlendustu prestaköllunum er engin von að presturinn hafi tíma til að stjórna vikulegum barnasam- komum, en sje hann samhentur starfandi safnaðarfólki, er auðvitað ágætt að hann komi þangað við og við. (Frh.). Vestan um haf. Benjamín Krist- jánsson skrifar til »Strauma« vestan frá Winnipeg, að sjer falli vel við íslenska Únitara par, þeir sjeu af sama sauðahúsi og nýguðfræðingarnir á íslandi, og gremst auðsjáanlega það einurðarleysi, eða hvað það er, sem ekki vill við það rjettnefni kannast. — Síra Fr. A. Friðriksson, prestur »sam- bands-safnaða« í Vatnabygðum í Canada, dvelur nú vetrarlangt við nám í únítar- iskum skóla í Chicago. — Söfnuðir hans veita honum sömu laun og áður, og er það myndarlega gert. Útgefandi: Signrbjörn Á. Gíslnson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.