Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.11.1929, Page 1

Bjarmi - 15.11.1929, Page 1
SóknarnefndafuDdurinfl í Reykjavík 15.—17. október 1929. Hann fór fram samkvæmt dag- skránni, sem birt var bjer í blaðinu 1, október, nema að því leyti að 2 erindi bættust við, sem þá var ekki búið að tilkynna. — Síra Halldór Jónsson, Reynivöllum, flutti erindi um safnaðarsöng, og ungfrú Laufey Valdimarsdóttir um mæðrastyrki. Aðal-málin, sem mest var rætt um, voru samvinna skóla og lieimila, og áskoranir til kirkjumálanefndarinnar — og komu þær umræður víða við. Fanst sumum í meira lagi óviðfeldið að fræðslumálanefndin skyidi alveg sleppa Jóhannesar-guðspjalli, þar sem hin guðspjöllin eru að nokkru leyti tekin á lesskrá barnaskólanna. — En það sannast, að Jóhannesar-guðspjall heldur velli og lifir þá lesskrá. — Fyrirspurn um kvermálið kom til fræðslumálastjóra, sem tók þált i umræðunum annan daginn. Svaraði hann svo, að ekki væri ætlast til að kver væri kent i barnaskólum, en þó ekki bannað, þar sem tími væri til, að lesskrá full-lesinni, og kenn- arar og börn óskuðu. Frummælandi, fr. Halldóra Bjarna- dóttir, flutti tillögu,sem allir fjellust á, og var á þessa leið: »Fundurinn lítur svo á, að meiri samvinna þurfi að verða milli heim- ilanna og barnaskóla vorra, ef fræðsluiögin eiga að ná tilgangi sínum. — Til að ná þessu marki eru heimsóknir kennara og foreldra-fund* ir nauðsynlegir, — í öðru lagi að foreldrar kjósi fulltrúa úr sínum flokki, er mæti í kenslustundum við og við, svo að nánari samvinna komist á milli skóla og foreldra. í þriðja lagi, að auka þurfi upp- eldisfræðsluna í landinu með náms- skeiðum, verklegum leiðbeiningum, fyrirlestrum og uppeldisritum, og veita í sambandi við þessa fræðslu aðstandenduin leiðbeiningar um fræðslu barna«, í fundarbyrjun var kosin fimm manna nefnd, til að undirbúa tillögur eða áskoranir til kirkjumálanefndar- innar. Voru kosnir: Sira Brynjólfur Magnússon, Grindavík, síra Guð- mundur Einarsson, Mosfelli, Ólafur Björnsson, kaupmaður á Akranesi, Sigurbjörn Rorkelsson, kaupmaður í Reykjavík og Sigurgeir Gislason, verk- stjóri i Hafnarfirði. — Þeir fluttu síðasta fundardaginn þessar tillögur, er allar voru samþyktar:

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.