Bjarmi - 15.11.1929, Side 3
B J A R M I
199
unglinga og alþýðuskólum, — þar
sem kennari fær eigi haft söngkenslu
á hendi, — og fólki, sem tekur þátt
f kirkjusöng, undirstöðuatriði í söng
og söngfræði og lög við fögur ljóð,
einkum ættjarðarkvæði og sálma-
söng«.
12. »Þar sem víða er fengin reynsla
fyrir því, að konur hafa unnið ágætt
starf til að prýða og fegra kirkju sína,
skorar fundurinn á sóknarnefndir
landsins að gangast fyrir kosningu
kirkjunefnda í hverri sókn til að
fegra og prýða kirkju sína«.
Eftir erindi Laufeyjar Valdimars-
dóttur um mæðrastyrki, var samþykt.
»Fundurinn er því einróma með-
mæltur að sett verði lög um mæðra-
styrki og heitir því máli fylgi sínu«.
Umræðurnar út af erindi síra Ei-
riks Albertssonar um kristindóm og
bókmentir beipdust mjög að því hvað
allskonar slæmar »bókmentir«, inn-
lendar og erlendar væri óhollur lest-
ur. Fjekk ritgerð Forbergs Fórðar-
sonar um kristnihald vandamanna
hans og sveitunga, þung ámæli ýinsra
ræðumanna og »Iðunn« litlar þakkir
fyrir flutninginn. — En aðrir mint-
ust á klúryrtar sögur og sum kyn-
ferðismálaritin, innlend og erlend,
sem verið er að útbreiða. — T. d.
hafa smábóka-auglýsingar, meinleys-
islegar, birst í ísl. blaði frá dönsku
óþverra forlagi, og ungt fólk langt
uppi í sveitum glæpst á að panta
þaðan, og fengið heim til sín »hrein«
saurrit.
Mönnum var fullljóst að það er
ekki besta ráð gegn útbreiðslu slíkra
bóka að telja þær upp og setja þær
á nokkurs konar »svarta lista«, þvi
að fyrst og tremst vekur það forvitni
ýmsra, og getur fjölgað lesendum, og
auk þess jafnan álitamál ura suraar
bækur, hvar eigi að telja þær. Hitt
þótti meir um vert að hvetja lestrar-
fjelög til almennrar varúðar i þessu
efni og reyna að fá bóksala til að
hafna sölu á hverri þeirri bók eða
riti, sem þeir teldu sjálfir óheillavæn-
legt eða myndu ekki kjósa að fjöl-
skylda þeirra læsi. Fyrir því voru
þessar tillögur samþyktar:
1. »Að gefnu tilefni leyfir fundur-
inn sjer að mælast til þess við alla
bóksala landsins, að þeir foiðist
eftir megni að útbreiða þær bækur
eða rit, sem þeir sjá að líklegar eru
til að spilla siðfeiði manna«.
2. »Fundurinn leyfir sjer að skora
á þá, sem ráða bókakaupum til lestr-
arfjelaga, að vera vandlátir í vali
bókanna og forðast öll óþverrarit, sem
líkleg eru til að spilla trú eða sið-
ferði æskumanna«.
— Ulmælin í »Straumum« til fund-
arins út af þessum tilllögum eru stað-
lausir stafir. En venjuleg avíðsýni og
sanngirni« úr þeirri átt. —
Ennfremur var samþykt undir
fundarlokin »að fela framkvæmda-
nefndinni, í samráði við biskup og
hlutaðeigandi presta, að blutast til
um að kristiieg erindi væru flutt í
dómkirkjunni og fríkirkjunni í Rvík,
eftir því, sem við verður komið í
sambandi við hátíðahöldin næsta
sumar«.
Sömuleiðis taldi fundurinn æskilegt
að þessi nefnd gengist fyrir trúmála-
fundum utan Reykjavíkur og þá helst
austanfjalls, einbvern sunnudag næsta
sumar.
í framkvæmdanefnd til undirbún-
ings næsta aðalfundar voru kosnir:
Síra Eirikur Albertsson, Hesti, sira
Guðmundur Einarsson, Mosfelli, frú
Halldóra Bjarnadóttir, Rvík, sira
Ófeigur Vigfússon, prófastur í Fells-