Bjarmi - 01.09.1931, Side 1
XXV. árg.
1. séptember 1931.
17. tbl.
Sra Pórður Tómasson.
7. des. 1871 — 22. ágúst 1931.
Það eru 30 ár síðan jeg sá hann fyrst.
Hann var þá prestur í Horsens í Dan-
mörku, en jeg kom þangað á landsfund
K. F. U. M og K., sem var svo fjölmennur,
að allir dáðust að gestrisni Horsensbúa og
nágranna þeirra, sem hýstu ókeypis um
1700 manns í 3 eða 4 daga. Kaupmanns-
fjölskyldan, sem hýsti mig og fimm aðra
fundarmenn, sagði mjer frá sra Þórði og
taldi hann »Mode-Præst« Horsensbúa, alt
»fína fólkið« vildi helst hlusta á hann. Jeg
kom heim til hans og leist vel á alla fjöl-
skylduna, 2 broshýrar smámeyjar, og pabbi
þeirra og mamma einstaklega fyrirmann-
leg. Ekkert kyntist jeg þó sra Þórði í það
skifti. Átta árum síðar kom jeg þar aftur.
Þá var skugginn mikli kominn yfir heim-
ilið, konan hans ástúðlega komin á geð-
veikrahæli, og engin von um bata. Enginn
sá það ókunnugur, að húsbóndinn bæri svo
þunga hjartasorg, en mjer virtist hann
hafa vaxið og dáðist að hinu mikla starfs-
þreki hans út á við og alhliða umhyggju
fyrir heimilinu.
Upp fr.á því kom jeg til hans í hvert
sinn, sem jeg kom til Norðurlanda, og' síð-
ast er jeg fór utan 1928 vorum við hjónin
nokkra daga á heimili hans í Vemmetofte,
svo að jeg þekti hann vel bæði heima og
heiman.
Jeg hygg að kirkja Islands hafi engan
skilningsbetri vin átt í Danmörku en hann.
Blaðið »Dansk-Islandsk-Kirkesag«, sem
hann sá um að mestu leyti, sýnir það. Hann
var íslenskur í föðurætt og danskur í móð-
urætt, og unni báðum þjóðunum, sem eðli-
legt var; en eins og hann getur um í síð-
asta hefti fyrrnefnds blaðs, stefndi starf
hans fjarri öllum stjórnmálum að því einu
að efla viðkynni milli kirkna þessara
landa og- forða kirkju vorri frá einangrun.
- Þau Ingibjörg Ölafsson og sra Haukur
Gíslason eru nú eftir í ritstjórn blaðsins
og- verður hlutverk þeirra ekki auðvelt einp
og sakir standa. Sjálandsbiskup er að vísu
formaður samnefnds fjelags, en jeg sje
ekki hver getur fylt sæti sra Þórðar.
Ræktarsemi hans við kirkju vora dró
mig fyrst að honum, en vænst þótti mjer
um að kynnast einörðum áhuga hans við
safnaðarstörf og órjúfandi trygð við veika
konu. Hann var ekki að hugsa um lög-
skilnað, þótt geðveiki hennar væri ólækn-
andi. Og við kvöldbænir heima hjá sjer
heyrði jeg hann biðja fyrir henni daglega
eftir 20 ára veikindi.
Sra Pórður Tómasson var fæddur á Akureyri
7. des. 1871. Pórður læknir faðir hans var sonur