Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1931, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.09.1931, Blaðsíða 5
BJARMI 133 einu hljóði; vai- þá fundur settur og gengið til dagskrár. Á fundinum voru mættir 5 prestar: Vígslubiskup sra Hálfdan Guðjónsson. Sra Guðbrandur Björnsson, Viðvík. Sra Gunnar Árnason, Æsustöðum. Settur próf. sra Björn Stefánsson, Auð- kúlu, og- fjölmennur söfnuður. Fundurinn hófst með því, að sra Björn Stefánsson innleiddi umræður um kirkju- rækni. Taldi frummælandi hana víða í ólagi og myndi fremur hnignandi en hitt, og örfaði fundarmenn til að taka málið til rækilegrar umhugsunar og umræðu, sem til bóta mætti horfa. Strax að loknu inngangserindi sr. Björns hóf sra Guðbrandur í Viðvík máls á er- indi, er hann nefndi: Kirkjan og æskulýðs- hreyfingin. Mintist ræðumaður sjerstak- lega á afstöðu æskulýðsins til kirkjunnar og taldi kirkjunni mikinn vinning að því, ef ungmennafjelögin, sem nú eru svo út- hreidd til sveita, rjettu kirkjunni örfandi hendi og samstarf milli presta og hlutað- eigandi ungmennafjelaga tækist á kirkju- legum og kristilegum grundvelli. Að þessum erindum loknum hófust al- mennar umræður. Til máls tóku allþ’ við- staddir prestar auk fundarstjóra. Frá hendi safnaðarmanna frú Elísabet Guð- mundsdóttir, Gili í Svartárdal, Sigvaldi Björnsson, bóndi á Skeggstöðum, Guðm. Jósafatsson á Brandsstöðum. — Þá gaf fundarstjóri 15 mínútna fundarhlje. Að þeim loknum söfnuðust menn aftur saman í kirkjunni og.fundi haldið áfram. Flutti þá sra Lárus Arnórsson ítarlegt og fræðandi erindi um altarissakamentið. Sýndi fram á, að af trúarleg'um ástæðum væri ekki ástæða til að fráfælast altaris- borðið og- í Helgisiðabók þjóðkirkjunnar nyti athöfnin sín í öllum sínum hátignar- fulla innileik, með Getsemane og Golgata í baksýn. — Um erindið urðu ekki umræður, en fundarmenn voru snortnir helgum tilfinn- ingumi undir hinu snjalla erindi. Þá kvaddi Klemenz bóndi Guðmunds- son, í Bólstaðahlíð, sjer hljóðs, og lýsti afstöðu sinni til kirkjunnar frá sjónar- miði kvekara. Síðast flutti sra Guðbrandur Björnsson í Viðvík stutta bæn og sungu safnaðar- menn sálm 193 í Sálmabók. Fundarstjóri þakkaði viðstöddu safnað- arfólki góða fundarsókn, óskaði öllum blessunar Guðs og að íslenska kirkjan mætti eflast sem mest. Fundi slitið. Hálfdan Guðjónsson. Guðbr. Björnsson. Fundarskr. Að afloknum trúmálafundinum var skotið á stuttum deildarfundi af viðstödd- um prestum, og var vígslubiskup áfram fundarstjóri, en sra Guðbrandur í Viðvík fundarskrifari. Á fundinum var fyrir tekið: 1. Kosin stjórn fyrir deildir Skagaf. og' Ilúnavatnssýslu til næstu þriggja ára. Þessir hlutu kosningu. Próf. sra Björn Stefánsson, Auðkúlu. Sra Guðbrandur Björnsson, Viðvík. Sra Gunnar Árnason, Æsustöðum. Stjórnin tilnefndi sra Guðbrand í Við- vík sem formann. 2. Ákveðið var að halda næsta ár al- mennan trúmálafund um 17. sumarhelgi, og helst tilnefnt að hafa hann á Miklabæ í Blönduhlíð. — " Fleira ekki fyrir tekið. — Fundi slitiö. Hálfdan Guðjónsson. Guðbr. Björnsson. -----»:-«*->---- <>jiii'ii-. í jólakveðjusjóð: Kennari í Staðarhr. 10 kr.k sr. II. G. 5 kr. Til Strandarkirkju: Kona í Skagaf. 10 kr. Til Hallgrímskirkju I Saurbæ: Ekkja á Akra- nesi 5 kr. Til Elliheimilisins í Rvík: Frá Láru 10 kr. (í júlí), sr. J. F. Djúpavogi 10 kr.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.