Bjarmi - 01.09.1931, Síða 8
136
BJARMI
Bækur.
Andlegir sálnnar og kvœöi Hallgríms
Pjeturssonar, 12. útgáfa, kostnaóarmaóur
Guðmundur Gunnlaugsson. 328 bls.
»IIal]grímskver« var kært liónum kyn-
slóóum, og enn kann sumt gamalt fc'lk
furðu margt úr því, og enginn getur full-
Hakkað þá »kunnáttu«, begar sjónin bilar
og fólk býr í kyrþey að endurminningum
sínum. — Því mióur hefir unga kynslóðin
nú lítið tóm og minna aöhald við hann lær-
dóm, en óskandi væri að þessi nýja útgáfa
af Hallgrímskveri eignaðist marga nýja
vini. Hún er vönduð og af kærleika gerð.
Þaó eru nú 74 ár síðan 11. útg. Hallgríms-
kvers var prentuó, en áóur komu út 10
á 102 árum. Fyrsta útg. frá 1755. — Það
væri óskandi að 19. öldin sæi fleiri útgáfur
bókarinnar en bessa einu. Kaupió, lesiö,
lærið ljóð vors besta trúarskálds.
Skeljar I. og II., barnasögur og ljóð meó
myndum eftir Sigurbjörn Sveinsson. Höf-
undurinn er svo góðkunnur börnum Is-
lands, að þessar nýútkomnu bækur hans fá
vafalaust skjóta útbreióslu. Fremst er fag-
ur söngur um Vestmannaeyjar, og er síð-
asta erindió á þessa leið:
Yridislega eyjan mín,
ó, hve þú ert morgunfögur!
Líti jeg til lands mjer skín
ljcámafögur jöklasýn,
sveipar glóbjart geislalín
grund og dranga, sker og ögur.
Yndislega eyjan mín,
ó, hve þú ert morgunfögur!
Það er ekki undarlegt, þótt Vestmanney-
ingar syngi slíkan söng við hátíóahöld sín
á sumrin.
I’iá Al|>iiifci. 2 frumvörp kirkjumálanefndar
náðu samþykki siðasta Alþingis, með nokkrum
breytingum annað þeirra, en bœði þó til stórra
bóta. Annað þeirra var um hýsingu >i prestssctr-
um, en hitt um embættiskostnað presta og auka-
verk þeirra.
Slðarnefndu lögin hljóða svo:
1. gr. - Sóknarprestar fá greiddsn ferða- og
skrifstofukostnað embættis sins, með 500 eða 700
krónum hver, og fer upphæðin eftir stærð presta-
kalla, erfiðleikum og kostnaði við þjónustu þeirra.
Ráðherra ákveður, að fengnum tillögum bisk-
ups, fyrirfram til 5 ára í senn, embættiskostnað
hvers prestakalls. Upphæðin greiðist síðan prest-
inum mánaðarlega á sama hátt og embættislaun.
2. gr. — ltáðuneytið leggur sóknarprestinum til
löggiltar embættisbækur, svo og eyðublöð undir
lögboðnar skýrslur og embættisvottorð.
3. gr. Fyrir aukaverk ber prestum þóknun
eftir gjaldskrá, er ráðuneytið setur til 10 ára
í senn.
4. gr. -— Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1932.
Frá þeim degi er úr gildi numin kgsbr. 11. des.
1812 og tilskipun 27. ján. 1847, að því leyti er
hún fer í bága við lög þessi.
Frumvarp var flutt að tilhlutun sóknarnefndar
Reykjavíkur um að væntanleg ný kirkja eða
kirkjur í Rvík fengju full sóknarkirkjurjettindi,
en það kom aldrei úr nefnd.
Prestsekkjur, 38 að tölu, eru á fjárlögunum, en
smátt er þeim skamtað og af handahófi. Ein fær
500 kr., 15 fá 300 kr. og hinar allar minna. 132
kr. er lægst, eða 11 kr. á mánuöi, og sú næsta
135 kr. og 37 aura til viðbótar! Vonandi færir
næsta Alþing allar préstsekkjur upp I 300 kr.
Ríkissjóð dregui’ það ekki að neinu, en fátæka
ekkju munar um að fá 25 kr. í stað 11 kr. á mán-
uði eða með dýrtíðaruppbót 35 kr. i stað 15 kr.
og 40 aura.
Fáeinar þessar ekkjur fá úr ríkissjóði meðgjöf
með börnum sínum, það er hvorki meira nje
minna en 100 kr. með hverju á ári. Er varla svo
aumt sveitarfjelag að meðgjöfin hjá því sje ekki
hærri en þetta. Eru því fáar ekkjur ver komn-
ar efnaiega en fátækar prestsekkjur með börn-
um í ómegð.
------—-
Otgefandi: Slgurbjörn A, Gíslason.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.