Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.05.1933, Page 8

Bjarmi - 01.05.1933, Page 8
72 BJARMI um barnanna og berorðastir um það, semjj þeim þótti ábótavant. 2. Enda þótt víða hvar væru eng'in van-l gæf börn nje siðferðilega veikluð, þá voru ‘i samt slík börn hjer og hvar um allt land,® bæði í sveitum og kauptúnum, — og oft-| ast var heimilum þessara barna talið veru- lega ábótavant. — Jeg undirstrika þetta atriði vegna þess, að sumir alþingismenn virtust líta svo á, er barnaverndarlögin voru þar til umræðu og afgreiðslu, að lítil ástæða væri til að setja þessi lög nema íyrir Reykjavík, og engin ástæða til að velja sjerstakar barnaverndarnefndir, »nema- ef til vill í kaupstöðunum«. En brjef barnakennaranna og' prestanna sanna, að það var því miður rangt. 3. Mjög voru skoðanir skiftar um, hvern- ig ætti að ráða bót á því, sem áfátt var. Sumir töldu ágætt að koma vangæfum kaupstaðabörnum í sveit, og þektu þess dæmi, að vel hefði gefist, en aðrir voru á gagnstæðri skoðun og vissu dæmi sinm skoðun til styrktar. Töldu þeir oftrú að ímynda sjer, að hvert óvalið heimili í sveit gæti endurreist siðferðilega veikluð börn, úrvalsheimilin mundu oftast ófús til að taka þau, vegna annara barna á hetm- ilinu, og' fólksleysið valda, að umhirðan yröi minni en skyldi gagnvart öllum töku- börnum, hvort sem þau væru talin van- gæf eða ekki. Minntust ýmsir þá á, að æskilegt væri, að barnahælum fjölgaði, og að vangæf börn fengju þar leiðsögn og uppeldi. 4. Loks sýndu svörin, að þau olnboga- börn, sem erfiðast eiga og mest fara var- hluta af allri vernd þjóðfjelagsins, fávit- arnir, voru mikið fleiri en margur ætl- aði, eins og sýnt var fram á í fyrra er- indi mínu. Enginn fjelagsskapur styður þá — og erfitt er að fá þing og stjórn til að sinna málum þeirra, svo nokkru nemi. En hvað er þá gjört fyrir önnur bág- gstödd börn? — Það er rjett að athuga það Eofurlítið um leið. R| Daufdumb börn hafa alllengi átt kost I á nokkurri tilsögn, og í lögum frá 19. júní f 1922 um kennslu heyrnar- og málleysingja, | er aðstandendum slíkra barna bæði gjört skylt að senda þau í Daufdumbraskóla og heitinn jafnframt mikill styrkur til þess. Sömu lög gjöra ráð >fyrir, að senda megi og »vitsljó börn« (líklega hálfvita) í þenna skóla. — En sú ráðstöfun mundi talin frá- leit erlendis, þar sem lengi hefir verið sinnt uppeldi »olnbogabarnanna«. Blindravinafjelagið hugsar um blindu börnin. Pað er ungt að vísu, stofnað haust- ið 1931, en hefir þegar fengið svo g'óðar undirtektir, að líkur eru til, að það geti komiö verulega til hjálpar blindum börn- um. Berklaveiku börnin munu vera 4. flokk- urinn, þegar um hjálparvana börn er að ræða. — Barnadeildin á Vífilstaðahæli kemur þeim til hjálpar, eftir því sem hús- rúm leyfir. En kirtlaveiku börnin, sem mörg eru á leiðinni til heilsuleysis, ef þeim kemur ekki hjálp nógu snemma, eru miklu fleiri en þar rúmast. Sumarheimilin tvö, sem þeim eru ætl- uð, eru bæði góð, það sem þau ná, en geta þó heldur ekki tekið nema nokkurn hluta kirtlaveiku barnanna í Rvík einni, og börn- in þurfa flest miklu lengri hælisvist en 2 eða 3 mánuði, ef þau eiga að ná fullri heilsu. Þessi sumarhæli (bæði frá 1930) eru Glaðheimar við Silungapoll, skammt frá Hellisheiðarvegi, um 15 km. frá Rvík. Oddfellowar í Rvík hafa reist það og sjá um það að öllu leyti. Um 40 kirtla- veik börn úr Rvík hafa verið þar 2 sum- ur alveg ókeypis, en rúm er þar fyrir 70 börn. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur og barnaverndarráðið vilja, að hús þetta sje notað á vetrum fyrir heimavistarskóla

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.