Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.1933, Page 3

Bjarmi - 01.10.1933, Page 3
BJARMI 147 Þetta fávitahæli var eina hælið af þeim 6, sem jeg sá í sumar, þar sem fávitar voru hafðir í lokuðum girðingum úti við. Var það líklega nauðsynlegt þar, því að borgin var komin umhverfis hælið. — En eftir því tók jeg, að börnin leituðust við að laumast út jafnskjótt og hlið var opnað á þeirra girðingu, og betur skildi jeg eftir en áður danska fávitalækninn, er sagði: »Blessaðir, minnist þjer ekki á girðingar; það er nógu döpur tilvera þess- ara aumingja, þótt þeir sjeu ekki þar á ofan hafðir í fangelsi.« — Sem betur fór, sá jeg þó ýmsa ljósbletti í fávitahælunum, sem jeg heimsótti. Jeg sá í þeim öllum hjúkrun, nærgætni og þolinmæði, sem jeg dáðist að. »Er ekki leiðinlegt að gæta þessa fólks?« spurði jeg oftar en einu sinni gæslukonurnar, bæði hjá stórum og smáum, og svörin voru öll á sömu leið: »Nei, það er ekki leiðin- legt, ef manni þykir vænt um þá, sem eiga bágt« og stundum bættu þær við: »Við höfum verið hjer sumar í 10 ár og sumar lengur.« Jeg bjóst við þeim svörum, því að mjer var kunnugt, að fórnfús kristilegur áhugi hafði lagt hyrningarsteinana að þessum hælum. Sjerstaklega dáðist jeg að gömlum forstöðumanni á skólaheimili fávita í Oslo. Hann var að fara frá, er jeg kom þangað, var kominn yfir sjötugt, og hafði í lang- an aldur verið þarna skólastjóri, þar sem á 2. hundrað hálfvitum var kent bæði til munns og handa, eftir því sem unt var. Hann nam staðar í einni skólastofunni, þegar hann var að sýna mjer húsið, og mælti: »Þessarar stofu sakna jeg mest, er jeg fer hjeðan.« Og þegar jeg spurði um ástæðuna, svaraði hann: »í þessari stofu hefi jeg ár eftir ár undirbúið fávitana mína undir fermingu, og það hafa verið mínar bestu stundir að hjálpa þeim til að kynnast frelsaranum.« »Jeg hefi aldrei orðið eins gramur við gest,« bætti hann við, »eins og þegar hátt- settur gestur sagði við mig út af kristin- dómsfræðslunni: »Því segir þjer þeim ekki heldur norrænar þjóðsögur í staðinn fyrir þessar Gyðingaþjóðsögur?« — Jeg held jeg hafi svarað: »Það er auðheyrt, að þjer þekkið hvorki hálfvitana nje Krist«.« Honum þótti vænt um, þessum gamla skólastjóra, að eftirmaður hans var sama sinnis og hann í þessum efnum, kennari frá hálfvitaskóla í Björgvin og mörg ár formaður innri missiónar sjómanna í Nor- egi, sem sendir sjómannaprjedikara til Siglufjarðar á sumrin. Annan ljósblett, og hann allverulegan, sá jeg hvar sem jeg kom í hálfvitahæli og vinnuhæli. Hann var sá, að fávitum var þar hvarvetna kennd ýms vinna —, og tókst margoft á þann hátt, að reka brott þunglyndi, koma í veg fyrir illar venjur, og hjálpa sumum hálfvitum til að verða nærri sjálfbjarga. — Jeg varð alveg forviða að sjá allan þann vefnað, sem mjer var sýndur í sænskum skólaheimilum, og útsaumi hálfvita og fávita í Kellerska- hælinu í Danmörku. Drengir, 12—16 ára, sem alls ekki gátu lært lestur, gátu saum- að og ofið, eins og vellærðar konur gjöra, og sömuleiðis var mjer sagt, að ýmsir lærðu að starfa að garðrækt. Þegar jeg sá aumingjana mestu í hæl- inu við Oslofjörð, í Helsingborg og við Vejlefjörð, hugsaði jeg: Hjer hafa mann- vinir verkefni og tilefni til að tala til til- finninga fólksins, ljetta byrði heimila og gjöra aðbúð góða fyrir þá, sem ekkert geta sjer til bjargar. Þegar jeg sá handavinnuna í skólaheim- ilum hálfvita og vinnuhælum fávita, hugs- aði jeg: Hjer er verkefni þolinmóðra kenn- ara og tilefni til að benda sveitarstjórn- um og ríkisstjórnum á, að það getur borg- að sig fjárhagslega að koma upp hælum fyrir hálfvita. Þeir verða sjaldnast alveg sjálfbjarga, satt er það, en þó margsann- ar reynslan, að þeir hálfvitar, sem góðrar

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.