Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.05.1934, Qupperneq 16

Bjarmi - 15.05.1934, Qupperneq 16
BJARMI Oxford-hreyÚngln breiðist út og mœtti segja mörg dœmi eftir erl. blöðum. Meðal annars hefir það vakið eftirtekt að enskir þingmenn taka henni ágætlega. Sir Eric Fremantle þingmaður I neðri málstofu parlamentisins bauð samþings- mönnum sínum á samkomu, sem halda skyldi með sama sniði og Oxfordmenn gjöra. Var fyrsta samkoman haldin 6. des. í vetur og átti að vera í nefndarherbergi sem tekur 60 manns og standa I fjörutíu mínútur, en hún stóð klukkutma leng- ur, og varð tvisvar að flytja sig í stærri sali, því að um þriðjungur þingmanna neðri málstof- unnar sóttu samkomuna. — Fyrsti ræðumaður var ungur stúdent frá Oxford, er sagði frá hvern- ig Kristur hefði snúið honum frá hæðni og guð- leysi að öruggu trúarþreki. Væntanlega hafa fleiri samkomur jafngóðar farið á eftir. Pessi hreyfing hefir þegar haft nokkur áhrif á Norð- urlöndum. Bækur um hana, þýddar og frumsamd- 'ar, hafa flogið út og orðið til að vekja trúar- alvöru og hjer og hvar hafa verið haldnir fundir með sama sniði og í Englandi, — og þátttak- endur talið þá' blessunaruppsprettur. Eftirtekt hefir það og vakið að formaður stór- þingsins norska C. J. Hambro hefir gjörst tals- maður þessa starfs og þýtt bókina »Life Chang- ers« á norsku. En þar er sagt frá afturhvarfi fjölda manna fyrir áhrif frá hreyfingunni. — Kagagva, frægasti kristniboðsfrömuður Jap- ana, hefir þýtt hana, »For simmers only« o. fl. hreyfingar-bækur á japönsku. — Hambro stórþingsmaður kynntist þessari hreyf- ingu i Geneve, þar sem hann sat þjóðabandalags- fundi. Og hefir hann síðan oftar en einu sinni sagt þingmönnum heima og erlendis, að sú nýja lifandi kristindómshreyfing, sem hann hefði kynnst hjá Oxfordmönnum«, væri það eina, sem frelsað gæti heiminn frá þeim ófarnaði og úr því öngþveiti sem alstaðar ríkti. Pjóðabandalags- fundir ráðalausir og áhrifalausir. Pjóðabandalags- byggingin nýja, sem mest var gumað um, stæði með tómar gluggakistur, sem nýr Babelsturn, sýnishorn af vanmætti mannkynsins. Kristur einn getur bjargað, og starfsaðferðir Oxfordmanna ná bestum tökum á samtíð vorri. — Þetta segir nú Alþingisforseti Norðmanna. Prentvllln. Síða§ta tölubl. er þvi miður dagsett 1. mai 1932! Eru kaupendur, sem ætla siðar að binda inn árganginn, beðnir að skrifa nú þegar 4 ofan í þessa 2, svo að ártalsskekkjan valdi ekki síðar misskilningi. Bækur. Varför jag ar en Kristen, Fastlagstankar, Krist- endomen och den nya moralen, svo heita 3 ný- prentuð erindi (hvert á 50 aura), sem prófessor Hallesby flutti í Uppsölum liðinn vetur, aðallega fyrir stúdenta, en Evangel. Fosterlands-stiftelsen gaf út. Hallesby fer á hverjum vetri fyrirlestra- för til Danmerkur og Sviþjóðar; safnaðafólk 1 Danmörku og stúdentar í Svíþjóð gangast fyrir því og má af því marka að erindi hans vekja eft- irtekt. Lcvande Vatten, 3 góð smáerindi um »vatn lifsins« eftir Visen Nyström (v. 50 aura), sama forlag. Op fra Dybct, heitir góð og fróðleg bók frá forlagi »Kirkjuklukkunnar« í Khöfn, þai sem lýst er dálítið starfi þjóðkunnrar enskrar skáld- konu, Josephine P. B. Horton, sem skrifaði mjög vinsælar kristilegar- sögur og tók mikinn þátt í ýmiskonar björgunarstarfsemi. Hold fast livad du har, eftir Ivar Welle. Pessi bók er ætluð fermingarbörnum og flytur 31 hug- vekju, og textarnir allir úr fræðum Lúters og biblíumynd með hverri hugleiðingu. Bókin er svo góð að manni þykir raunalegt að engin svipuð bók skuli til handa ísl. fermingarbörnum. — Hún er 68 bls. og kostar einar 2 kr. í bandi. Útgef. er Lílthersstiftelsen, Osló. Aandsfylte Kristne úr ensku, Kirkeklokkens Forlag 92 bls. v. 1,35 kr. Eins og nafnið bendir til er þessi bók ætluð trúuðu fólki, og veitir hún því margar þarfar áminningar og leiðbein- ingar. Stanley Jones, hver er hann og hvað vill hann'? heitir nýútkomin ágæt bók (64 bls.) eftir Sær- mark metodistaprest í Khöfn. Nyt Nordisk For- lag. Þeir sem dönsku lesa og vilja kynnast ágæt- um manni ættu að eignast bókina. Kaupendur sem hafa flutt sig eða flytja sig í vor eru vinsamlega beðnir að láta afgreiðslu Bjarma vita um það sem fyrst. — Munið eftir að gjalddagi Bjarma er í júní. Ritstjóri: S. Á. Gíslason. Prentsmiðja Jóns Helgasonar.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.