Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.08.1934, Side 10

Bjarmi - 01.08.1934, Side 10
120 BJARMI starfi. Enginn þarf að efast um að þetta er þýðingarmikiö atriði á vorum tímum. Pað er frumskilyrði þess að vinnan geti g'öfgað manninn. 1 handavinnu er sjer- stakt tækifæri til að hjálpa nemendum á þessa leið. Handavinnukennarinn hefir tækifæri til að kynnast nemendum ítar- lega. Mikils virði er það, að þeir skólar, sem hafa verklegar deildir, ná einnig í nemendur, sem annars hefðu tæplega þor- að að koma í skólann vegna þess að þeir eru ef til vill engin »skólaljós« í vanaleg- um skilningi. 1 handavinnudeildinni geta þeir þó fundið áhugaefni fyrir sig. En það liggur í augum uppi hve þýðingarmikið það er að nemandi finni ánægjuna, sem er því samfara, að vinna að því, sem hæfi- leikarnir eru til. Vetrarvist á norskum alþýðuskólum er vanalega frá fyrsta október til um miðj- an apríl. En á sumrin maí og júní, eru haldin tveggja mánaða námskeið fyrir stúlkur í matreiðslu og nokkurri handa- vinnu. Kostnaður við þessi námskeið er mjög lítill og öll kennsla hefir það fyrir augum að veita stúlkum kunnáttu og æf- ingu í vanalegum innistörfum á sveita- bæjum. Pær læra að búa til ódýran en hollan mat, þvo og sljetta lín, hirða um fatnað, hjúkra veikum í viðlögum, sauma og gera við vinnuföt, gera hreint o. þ. u. 1. Og alltaf er reynt að hjálpa þeim að finna ánægju í því að vinna vel og sýna skyldu- rækni og trúmennsku í öllu. Að endingu má spyrja hvort hægt sje að benda á sýnilegan árangur æskulýðs- skólastarfseminnar í Noregi. Því getur maður tæplega svarað fullnægjandi, vegna þess að hjer er aðallega að ræða um á- hrif á persónulegan þroska unglinganna. Þó munu allir kunnugir telja að fátt eða ekkert hafi jafn göfgandi áhrif á æsku vorra tíma eins og góðir skólar. Pví æskan þráir þekkingu og þá er mikilsvarðandi að skólarnir reyni ekki aðeins að gefa unga fólkinu fróðleik, en lyfti henni einnig í öllu góðu. Pýðingarmikið atriði er það að á æsku- lýðsskólunum opnast augu nemenda fyrir því til hvers þeir duga og hvað þeir vilja verða. Oft eru kennarar spurðir til ráða, þegar nemendur eru að bollaleggja hvaða starfsvið þeir ætla sjer. Mjer virðist daugn- aður og háttprýði, sparsemi og áhugi vera eiginleikar sem einkennir marga þá sem hafa orðið fyrir áhrifum góðra alþýðu- skóla. Unglingar, sem hafa dvalið á þess- um skólum, verða oft góðir starfsmenn í fjelögum, sem styðja góð málefni. Nú þurfa bændur í Noregi ekki að kvarta yfir fólksleysi í sveitunum, og þó það sje ekki eingöngu æskulýðsskólunum að þakka, þá hafa þeir áreiðanlega gert mikið til þess. - — »Við trúum ykkur svo vel fyrir börnunum okkar,« hafa margir norskir foreldrar sagt við mig, þ’egar sam- talið barst að æskulýðsskólunum. Þetta al- menningstraust er besta meðmæli starfs- ins. — Það er alls ekki reynsla Norðmanna að æskulýðsskólarnir dragi fólkið úr sveit- unum, en frekar hitt, að nemendur Jiess- ara skóla fái meiri áhuga fyrir ölíum sveitastörfum. Yfirleitt getur maður sagt að æskolýðsskólarnir gefi þjóðum hugsjóna- ríkan og aðgætinn æskulýð sem vill þókn- ast Guði og verða þjóð sinni til Idessunar. Albert Ólafsson, kennari. Sagavoll ungdomsskule, Gvarv st. Telemark, Norge'. Halleslty próíessor í Osló hefir orðið fyrir þeirri »sæmd« að einhver Geir Jónasson ritar um hann tveggja dálka háðgrein 1 blaðið Dag 12 júlí. Er þar engum skilningi á kristindómi fyrir að fara, og sennilegt að Hallesby verði eftir sem áður tal- inn f fremstu röð prjedikara Norðurlanda, og bækur hans, sem skifta tugum, renni út eftir sem áður.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.