Bjarmi - 15.05.1935, Qupperneq 16
88
B J ARMI
kostun og fúsum vilja. 2) Að fylgja strax því
ljósi, sem maður fær í Biblíunni, hvernig sem
kringumstæður mannsins eru. 3) »Sá, sem hefur
hreinar hendur, verður enn styrkari«. — Fyrstu,
aðra og fimmtu Mósebók er gott að byrja með,
auk Efesusbrjefsins, Kólossumannabrjefannsi,
Tímóteusarbrjefann'a, Títusarbrjefsins, Orðskvið-
anna, Jobsbókarinnar og Dómarabókarinnar. Frh
B. S. G.
Hvaðanæva.
lliim almenni klrkjufundur verður í Rvík
23.—25. júní. Aðalmál fundarins verður presta-
kallaskipunin, út af lagafrumvarpi launamála-
nefndar, og samvinna presta og safnaða. Sra
Friðrik Rafnar ætlar að flytja erindi um fyrra
málið í dómkirkjunni sunnudagskvöldið 23. júní
og skólastjóri Vald. Snævarr um safnaðafræðslu
kvöldið eftir á sama stað, væntanlega verður
þeim erindum útvarpað.
Væntanlega fjölmenna kirkjuvinir til þessa
fundar', þar sem nú eru í aðsigi örlagaríkar ráða-
gerðir um framtíð ])jóðkirkjunnar.
Sainbandsfundur kristniboðsfjelaganna og
styrktarfjelaga kristniboðs verður, ef Guð lofar,
haldinn á Akureyri 15.—17. júni. Ráðgert er að
fulltrúar að sunnan haldi kristilegar samkomur
og útbreiðslufundi á leiðinni, þannig: Á Blöndu-
ós fimmtudagskvöldið 13. júní, á Sauðárkrók
þriðjudagskvöldið 18. júní og á Hvammstanga
miðvikudagskvöld 19. júhí. Æskilegt að þeir, sem
ætla að taka þátt í förinni norður, láti Hróbjart
Árnason forstjóra Burstagerðarinnar, Laufásveg,
vita sem fyrst um það.
haiisn frá iiicstskaii hafa fengið þessir fjórir
prestar frá 1. júnf næstk.: Sra Bjarni prófessor
Borsteinsson á Siglufirði, 74 ára gamall, eftir
47 ára prestskao á einum og sama stað. Sra Arn-
ór órnason í Iívammi í Laxárdal, 75 ára garn-
all, eftir 49 ára prestskap. Sra Gfsli Einarsson
f Stafholti, 77 ára gamall, eftir 47 ára prest-
' skap. Sra Hallgrímur Thorlacius í Glaumbæ,
70 ára gamall, eftir 47 ára prestskap, þó með
leyfi til að þjóna embætti sínu til haustsins sem
settur prestur. Heir prófastarnir sra ólafur
Magnússon í Arnarbæli og sra Sigtryggur Guð-
laugsson á Núpi hafa báðir fengið leyfi til að
halda áfram prestskap fyrst um sinn, uns öðru
vísi verður ákveðið, samkvæmt mjög eindregnum
tilmæium hlutaöeigandi safnaða. (Mbl.).
Kristniboð Pjóðverja
hefir um alllangt skeið verið langöflugasta trú-
boð frá meginlandi Norðurálfunnar. Á ófriðar-
árunum (1914 1918) beið það mikinn hnekki,
en náði sjer furðu fljótt aftur, þrátt fyrir fjár-
hagsvandræði heima fyrir og tortryggni óvin-
veittra þjóða gagnvart Þjóðverjum; enda er al-
mennt játað, að þýskir kristniboðar standi eng-
um að baki í trúaralvöru, dugnaði og fórnfýsi.
í þýsku kristniboðsblaði ritar einn kristniboð-
inn á þessa leið: .
Vjer kristniboðar erum sendir til að boða:
hjálpræði, en ekki veraldarvisku, — fagnaðar-
erindið, en ekki hagfræði, lausn úr synda-
fjötrum en ekki fjelagsmálaumbætur, — aft-
urhvarf, - en ekki menningu, fyrirgefningu,
en ekki þjóðernisvakningu, nýja sköpun —
en ekki nýtt skipulag, kristindóm — en ekki
óákveðna trúrækni. Vjer erum sendiboðar
Guðs en ekki fulltrúar stjórnmálafiokka.
Evangelisku kristniboðsfjelögin á Pýskalandi
eru 26, auðvitað hvert um sig í ótal smádeildum.
Pau hafa verið alveg sjálfstæð innbyrðis, og þá
líklega ekki iaus við óholla samkeppni, en þegar
þjóðernisaldan setti á oddinn: allir Pjóðverjar
samtaka«, þá mynduðu öll þessi fjelög eina heild
eða samband árð 1933. Tölur þær sem hjer fara
á eftir eru úr skýrslum þessa sambands i árs-
lok 1933 en þær, sem eru í svigum, eru tekn-
ar úr aðalskýrslum fjelaganna í ársiok 1929.
Kristniboðar frá Norðurálfu, er evangelisk
kristni studdi voru 1586 (um 1400, þar meðtaldar
513 konur kristniboða) þarlendir aðstoðarmenn
10951 (9748, af þeim 413 prestvígðir). Pessi hóp-
ur starfaði á 524 aðalstöðvum (547 og 3827 auka-
stöðvum) hjer og hvar um alla Afríku og Asíu.
Safnaðarfólkið, er trú hafði tekið, var 1,225,792
og trúnemar um 67 þús. (990,583 og 53,800).
Barnaskólar og unglingaskólar kristniboðsins voru
3982 (3472) og 109 (110) æðri skólar. Nemendur
þeirra alls um 250 þús. (222 þús.). Sjúkrahúsin
voru 31, (29), og lærðir trúboðslæknar 37, (35)
þýskir. Gjafir til þessa kristniboðs voru árið
1933 um 5 milljónir marka heima fyrir, minnk-
uðu það ár um 66 þúk. mörk, en fara vaxandi í
kristniboðslöndum. Fjölgað hafði um 47 þús. f
söfnuðum trúboðsins. Árið 1932 störfuðu 3673 kaþ.
trúboðar þýskir I heiðnum löndum 2002 nunnur
voru í þeirra hóp. 1 söfnuðum þess trúboðs voru
um 743 þúsund, en trúnemar voru taldir 126,144.
Kaþólskir menn eru hálfu færri í Þýskalandi,
en hinir og gefa þó tvöfalt meira til kristniboðs.
Hitstjörl: S. Á. Gíslason.
Prentsmiðja Jóns Helgasouar.