Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1984, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.01.1984, Blaðsíða 8
KlNA: Besta hjálpin Kristnir menn um allan heim gleSjast af fréttum um íramgang fagnaðarerindisins í Kína, þrótt fyrir ofsóknir undanfarinna óra, og velta sífellt fyrir sér hvernig þeir megi styrkja trúsystkin í „Miðríkinu" og hjálpa þeim að kunngjöra Krist. Leiðtogar kristniboðsvina á Vesturlöndum sem þekkja hvað best til í Kína leggja áherslu á að „kapp er best með forsjá" einnig í þessum málum. Venjulega kristniboða er ekki unnt að senda til Kína. Ýmsum hefur komið í hug að nota gamla aðferð þar sem kristniboðar mega ekki vera: Kristnir menn fara til landsins og gegna ýmsum störfum, einkum þeir sem eru sérfrœðingar á ein- hverjum sviðum, og vitna svo um Krist í frístundum og þegar tœki- fœri gefst að öðru leyti. Þó að þetta hafi stundum gefið góða raun má benda á að útlend- ingar einangrast oft í nýju um- hverfi. Auk þess er kínverska mjög erfitt tungumál. í raun og veru hefur kirkjan i Kína varað við þessari aðferð, enda mundu yfirvöld stöðva slíka starfsemi ef þau yrðu hennar vör. Forystumenn kristniboðsfélaga benda á að kristnir menn í Kína hljóti að vera þeir aðilar sem fyrst og fremst sinni því verkefni að boða Krist meðal þjóðarinnar, og því sé besta hjálpin sem við kristnir menn á Vesturlöndum get- um veitt þeim að efla á ný tengsl við þá og veita þeim alla upp- örvun sem verða má. Með fyrir- bœn, umhyggju og áhuga styðj- um við þá á göngunni með Kristi og í þjónustunni að útbreiðslu fagnaðarerindisins. Sífellt berast fregnir um „Bibliu- hungur" í Kína. Gleðilegt er að frétta að nú hefur Biblían verið prentuð í Kína. Fyrst voru prent- uð 135 þúsund eintök. Þá hefur verið heimilt um skeið að senda Biblíur til Kína frá útlöndum. Sum kristnboðsfélög hafa notfœrt sér þetta. Ferðamenn geta tekið nokkur eintök með sér í farangr- inum. Biblíuf élagið í Hongkong dreifir Biblíum og hlutum hennar í Kína í mörg hundruð þúsund eintökum. Þetta sýnir að yfirvöld hafa opnað dyr í þessu efni, og meðan svo er hefur verið varað við „smyglstarfsemi", svo að yfir- völd loki ekki aftur og kristnir menn sitji eftir með sárt ennið. Biðjum fyrir Kínverjum! r L c Víða talar Biblían beint og óbeint um það, að við séum ráðsmenn Quðs. Sjá til dæmis Róm. 15,16; 1. Kor. 4,1-2; 1. Tím. 2,15; 1. Pét. 4,10. Hér hvílir áherzlan á því, að okkur kristnum mönnum beri að breiða út fagnaðarboðskapinn. Postuiinn talar um góða ráðs- menn. Þeir starfa með þeim náðar- gáfum, er þeim hafa verið gefnar. (1. Kor. 12,11). Guðf tilheyrir gullið og silfrið En Biblían talar líka um ráðs- mennsku í efnaiegu tilliti. Silfrið og gullið tilheyrir Quði (Hagg. 2,9). „Efnalegur" merkir oft „Qárhagsleg- ur" og er þá tíðum tengt við peninga, en getur líka átt við aðrar eignir. Þegar um er að ræða ráðs- mennsku í efnalegu tilliti í þessu sambandi, er um að tefla, hvernig við ráðstöfum bezt þeim efnis- gæðum, sem þörf erá til útbreiðslu trúarinnar á Krist: Peningum, fast- eignum o.s.frv. Peningarnir verða svo auðveld- Iega „okkar" peningar, enda höf- um við sannarlega unnið fyrir þeim sjálf. Já, en hvað hefur hjálpað okkur til þess? Líkaminn og skyn- semin, sem okkur hafa verið gefin. Ég á því ekki peningana, heldur Quð. Þess vegna þarf ég ekki að vera áhyggjufullur, þó að ég hafi lítið fé handa á milli, né heldur hafa vonda samvizku, ef ég er auðugur, því að ég er jafnfátækur eða ríkur, hvort sem um er að ræða. Það er ráðsmennskan eða notkunin, sem allt veltur á. Því verður aldrei lögð á það of mikil áherzla, að Drottinn á allt og að við erum ráðsmenn orðs hans ogjarðar hans. Hvers vegna gefa? Orðið gefa er notað í ýmsum myndum á mörgum stöðum í Bibl- íunni. Minnumst þess hér, að gjafir eru ekki bundnar við eignir, heldur er líka um að ræða að gefa líkama sinn og vilja. Guð sækist ekki fyrst og fremst eftir peningum okkar, heldur hjarta okkar. „Leitið fyrst ríkis Quðs" (Matt. 6,33). Gjöfokkar ætti því að vera þakkargjöf fyrir, að við megum kallast börn Guðs, en ekki eins konar fórn, sem við færum til að friða samvizkuna. Sú hætta ríkir í efnishyggjuþjóð- félagi okkar, að við höldum að mikil blessun sé fólgin í miklum peningum. Við lítum á skort og bresti í samfélagi okkar og í út- breiðslustarfi trúarinnar, og þá ræðum við oft um, hversu mikilla peninga sé þörf til að ráða bót á vandanum. En vandinn ristir oft miklu dýpra. Þess vegna skulum við ekki gleyma, hvers vegna við ættum að gefa: „Ókeypis hafið þér meðtekið, ókeypis skuluð þér af hendi láta" (Matt. 10,8), og minnumst hins nána sambands þessa við kristni- boðsskipunina: „Farið því oggjörið 8

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.