Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.01.1984, Qupperneq 9

Bjarmi - 01.01.1984, Qupperneq 9
ióður smaður Suds Þjóðirnar að lærisveinum" (Matt. 28,16-20). Það er líka léleg ráðsmenrtska að téta undir höfuð leggjast að biðj'a Guð að blessa það fé, sem við höfum handa á milli. Óneitanletja er líka til eins konar blessun þess að gefa. Henni er lýst í Lúk. 6,38: -Qefið, og þá mun yður gefið verða". Ef til vill er það stundum svo, að Quði þóknast að trúa þeim fyrir Peningum, sem eru sjálfir gjaf- mildir og hugsa ekki einungis um Það, sem þeirra er. Að gefa vegna Þess, sem að ofan greinir, felur því eitthvað meira og dýpra í sér en Þegar einungis er gefið til þess að Qreiða kostnað af ýmis konar fram- kvæmd að útbreiðslu trúarinnar, Þó að sá kostnaður sé hið beina tilefni til þess, að menn gefa. Hversu mikið? ..Allt vil ég afhenda þér", segir í söngnum. Það er í raun og veru eina rétta svarið. Það er ekki unnt að setja neinar reglur um, hversu mikið ég á að nota handa sjálfum mér og hve mikið til efiingar guðsríkinu, enda væri það ekki í samræmi við fagn- aðarerindið. Ef við biðjum reglu- lega um hjálp og leiðbeiningu, gefur Quð okkur örlátara hjarta. Ef við biðjum: „Leið oss ekki í freistni", veitist okkur hjálp til að sneiða hjá freistandi gluggasýning- um, svo að dæmi sé tekið. Það er ekki heldur hættulaust að gæla við Þýtt úr sænsku. einhvers konar fátæktarhugsjón. Drottinn segir: „Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, og þá mun allt þetta veitast yður að auki". Gefum reglulega Ekki nægir að hafa stöku sinnum fjársöfnun, þar sem höfðað er til tilfinninganna, ef kristileg starf- semi á að verða rekin til lengdar með nokkrum árangri. Því miður er mörgum svo farið, að þeim er ekki Ijós nauðsyn þess að gefa reglulega heldur láta þeir eitthvað af hendi rakna, þegar minnst varir, ef þeir finna hvatningu hjá sér til þess. Að sjálfsögðu skal hver maður hafa fullan rétt til þess að gefa gjöf sína á þeim tíma og með þeim hætti, sem hann ákveður sjálfur. En nú eru fiestir kostnaðarliðir í kristilegu starfi reglubundnir, til dæmis mannahald, o.fl. Því er nauðsynlegt, að við höfum þetta í huga og gefum með reglu. Gefum reglulega. Það hjálpar okkur til að gefa, líka þegar við finnum enga sérstaka hvatningu til þess, þó að þörfin sé ætíð fyrir hendi. Svo er Quði fyrir að þakka, að hann á marga góða ráðsmenn, sem líta á þarfir kristilega starfsins og leggja sitt af mörkum. Þessi grein er einkum rituð til þess að þeir, sem lítið hafa leitt hugann að þessum málum, staldri við og skoði hug sinn — og biðji Drottin að leiða sig í ráðsmennsku sinni. KtNA: Margir vilja verða prestar „Vi5 höíum fram a6 þessu a6- eins verið með eitt prestanám- skeið fyrir mótmœlendur en nú í haust hófust tvö ný- En þaö er hvergi nœrri nóg. Þörfin hefur vax- ið meöan erfiðu árin stóðu yfir. Það er nú fyrst allra síðustu órin sem við höfum getað unnið án þess að vera í felum". Það er ungur guðfrœðistúdent í Nanking. Zhao Zhi-Lian, sem segir þannig frá: „Við erum 72 sem hófum nám á námskeiðinu sem ég hef tekið þátt i, en ég veit ekki hve margir byrjuðu á námskeiðunum sem hóf- ust í haust. Kirkjan hefur blómstr- að í sólinni sem hefur skinið eftir að dimmum árum menningarbylt- ingarinnar lauk. Nemendur á nám- skeiöinu eru víðsvegar að úr Kína. Námið tekur fjögur ár". „Vöxturinn i kirkjunni verður bœði vegna guðsþjónustulífsins og vegna vitnisburðar kristinna manna í daglegu lífi þeirra," segir Zhi-Lian. „Flestir taka ákvörðun um að verða kristnir í guðsþjón- ustum, en það byggist á því að sérhver kristinn maður beri vitni fyrir þeim sem hann umgengst. Þannig óx kirkjan á dimmu árun- um og þannig mun hún halda áfram að vaxa. Það sem við lœrðum fyrst og fremst á erfiðu árunum var að daglegt líf kristins manns er besti vitnisburðurinn. Slíkt vekur oft undrun og spurningar. Þegar ein- hver gerir eitthvað gott er það vitnisburður. Þjónustan við náung- ann er merki um lifandi kristna trú," segir Zhi-Lian. RÚMENÍA: Fáir guðfræðinemar Kommúnistar ráða ríkjum í Rúmeníu. Stjórnvöld þar hafa fyr- ir nokkru sett ströng ákvœði um það, hversu margir megi lœra guð- frœði. segir kaþólska fréttastofan KIPA í Sviss. Rómversk-kaþólskir menn í Rúmeníu eru 1,8 milljónir og mega þeir einungis láta 30 menn á ári hefja guðfrœðinám. Lútherskir Rúmenar eru 180 þús- und, og geta aðeins þrír stúdent- ar úr söfnuöum þeirra byrjað nám í guðfrœði. Eins er um reformerta í hópi mótmœlenda. Þeir eru um ein milljón. en mega láta þrjá fulltrúa sína Iœra til prests. Þess- ar hömlur hafa ekki áhrif í rétt- trúnaðarkirkjunni í landinu. 9

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.