Bjarmi - 01.10.1991, Síða 6
GYÐA KARLSDÓTTIR:
Onnlii
A HEIMSÞINGI
KFUM í SEOUL
Það er ekki á hverjum degi sem fólk fer héðan frá
íslandi alla leið til Kóreu til að sitja KFUM-fund. Það
gerðist þó á liðnu sumri því dagana 23.-29. ágúst sl.
fóru hjónin Gyða Karlsdóttir og Þórarinn Björnsson
til Seoul í Suður-Kóreu á heimsþing KFUM sem þar
varhaldið. Hérá eftir fer frásögn Gyðu afferðinni.
Yfir hálfan heiminn
Snemma morguns þann 20. ágúst sl. lagði
flugvél í loftið frá Kastrup-flugvelli. Undarlegur
fiðringur í maganum, tilhlökkun og óvissa. Að
baki var nokkurra vikna dvöl í Kóngsins Köben,
fyrir höndum langt ferðalag. Stefnan var tekin
á Seoul í Suður - Kóreu, þar sem heimsþing
KFUM átti að fara fram dagana 23. - 29. ágúst.
Eftirum 18tímaflugogmillilendinguíZurich,
Bombay og Hong Kong vorum við hjónin loksins
komin til Kóreu, rúmum sólarhring eftir að við
lögðum af stað frá Kaupmannahöfn, ef tíma-
mismunur er tekinn inn í myndina. Það var ekki
laust við að manni létti, að hafa loksins fast undir
fótunum! A flugvellinum biðu móttökumenn og
konur frá KFUM í Kóreu og kom þá í ljós að
meðal farþega þotunnar voru margir gestir
heimsþingsins, t.d. þeldökkur náungi sem hafði
setið við hlið mér hálfa leiðina og angrað mig
með dúndrandi diskómúsík!
Var nú mönnum ekið á gististaði sína, flestum
á Hilton hótel en þarfór heimsþingið fram, öðrum
á KFUM hótel og vorum við í þeim hópi. Sökum
Gyða Karlsdóttir
þess að á milli þessara staða var dágóður spotti
og hins að dagskrá heimsþingsins var þéttskipuð,
urðum við alltaf að fara út á morgnana með það
fyrir augum að koma ekki heim fyrren að kvöldi.
Konur og ungt fólk
Við vorum ekki fyrr búin að taka upp úr
töskum og tey gj a úr tám, á fremur fátæklega búnu
hótelinu, þegar dagskráin hófst. Ekki dagskrá
heimsþingsins sjálfs, húnhófstekki fyrr en tveim
dögum seinna, heldur dagskrá tveggja funda,
kvennafundar sem ég sótti og æskulýðsfundar,
sem Þórarinn tók þátt í. Markmiðið með fund-
unum var að gefa konum og ungu fólki innan
KFUM tækifæri til að miðla reynslu sinni og
undirbúa virka þátttöku á sjálfu heimsþinginu.
A æskulýðsfundinum, en hann sóttu um 100
manns, var sérstök samþykkt gerð þar sem
KFUM-félög í heiminum eru hvött til þess að
gefa ungu fólki í félögunum tækifæri til að móta
stefnu og axla ábyrgð.
Spornað við spillingu
Kvennafundinn sóttu að þessu sinni um 130
konur. Fyrir heimsþingið í Aruba, sem haldið
var fyrir þremur árum, hittust konur innan
KFUM í fyrsta sinn með þessum hætti. Þá fór
fram nokkur umræða um misrétti sem konur víða
um heim búa við. Var rætt um kynferðislega
misnotkun á konum og börnum og í framhaldi
af því ákveðið að þeirri umræðu skyldi haldið
áfram með markvissari hætti í Kóreu. Það varð
úr að fyrir kvennafundinn í Kóreu fóru tveir
s liptanfi