Bjarmi - 01.10.1991, Page 10
AÐALSTÖÐVAR KFUM OG KFUK Á HOLTAVEGI:
Framkvæmdum miðar
vel áfram
Framkvæmdir við nýjar aðalstöðvar KFUM
og KFUK við Floltaveg í Reykjavík hafa
gengið mjög vel í sumar. Fimmtudaginn 19.
september sl. var þeim áfanga náð að húsið
var risið og burðarbitar fyrir þak komnir á sinn
stað. Af því tilefni voru haldin risgjöld á
Floltavegi og boðið til þeirra þeim sem höfðu
unnið að byggingunni. Þarna voru saman-
komnir hönnuðir, verktakar, fólk úr bygg-
ingarnefnd og fjáröflunarnefnd og stjórnum
félaganna o.fl. Veður var fallegt þennan dag
og blöktu fánar yfir húsinu, bæði íslenski fán-
inn og fánar félaganna.
Sverrir Axelsson, formaður bygginga-
nefndar, bauð fólk velkomið. Pá las Helgi
Elíasson ritningarorð og bað bæn. Sverrir
rakti síðan gang framkvæmda og kom fram
hjá honum að vel hefði gengið í sumar, enda
tíðin góð, og að vel hefði verið að verki staðið
á allan hátt. Síðan voru bornar fram veiting-
ar og áttu gestir góða stund saman á Holta-
vegi.
Aætlað er að verktakar skili húsinu fok-
heldu og frágengnu að utan í nóvember. Ekki
hafa verið teknar ákvarðanir um framhaldið
en næsti áfangi er að innrétta efrihæð hússins
þar sem fundar- og samkomusalir verða ásamt
eldhúsi og veitingaaðstöðu. Miklu máli skiptir
að fjáröflun gangi vel og ræðst það að veru-
legu leyti af gangi hennar hversu fljótt verður
hægt að taka húsið í notkun.
Risgjöld á Holtavegi
19. september sl.
Fánar blakta yfir
nýju húsi
KFUMogKFUK.