Bjarmi - 01.10.1991, Side 14
Á alþjóðamóti í
Bandaríkjunum í
fyrra: Sigurbjörn Þor-
kelsson (t.v.) og Scott
Mayers, formaður al-
þjóða útbreiðslunefnd-
ar Gídeonfélaga.
Guð segir um orð sitt, „það er útgengur af mínum
munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo
búið, eigi fyrr en það hefur framkvæmt það, sem
mér vel líkar, og komið því til vegar, er ég fól
því að framkvæma“ (Jes. 55,11).
Ég held að Guð hafi kallað mig til þessa starfs
að útbreiðslu Biblíunnar. Ég varð fyrir miklum
áhrifum af Gídeonhreyfingunni í æsku eins og
vænta mátti. Ég man enn þegar ég hlustaði á
frásagnir útlendra Gídeonmanna, sem gistu
heima hjá okkur, um undursamleg áhrif Biblí-
unnar. Og þegar þar kom fyrir rúmum fjórum
árum að ég var beðinn að taka að mér þetta starf
fannst mér það vísbending frá Guði.“
Eitt hlutverk Sigurbjörns er að heimsækja
árlega allar félagsdeildirnar. Þær eru þrjár í
Reykjavík og næsta nágrenni, einnig í Keflavík
og Vestmannaeyjum, á Akranesi, Isafirði og
Akureyri. Kvennadeild er í Reykjavík og önnur
á Akureyri. „Konumar gegna afar mikilvægu
hlutverki. Þær bera starfið uppi í bæn. Skrif-
stofan hér á Vesturgötu er líka bænastaður.
Hingað koma fjórir litlir hópar manna í hverri
viku, árla morguns, í hádeginu eða að loknum
vinnudegi,ogbiðjastfyrir.Bæninþarfaðhaldast
í hendur við dreifinguna. Við biðjum hver fyrir
öðrum og fyrir þeim sem fá bókina í hendur. Og
að sjálfsögðu er alltaf bænastund á félagsfund-
unum.“
Austur-Evrópa opnast
Nú eru Gídeonmenn að verki í 148 löndum
um víða veröld og hafa þeir dreift um 550
milljónum bóka, einkum Nýja testamentinu.
„Það sem er einna markverðast í seinni tíð er
stofnun Gídeonfélaga í Austur-Evrópu þar sem
orði Guðs hefur verið úthýst í áratugi. Jafnvel í
Sovétríkjunum hefur yfir 30 félagsdeildum verið
komið á fót. Vinir okkar þar hafa úthlutað meira
en þremur milljónum eintaka frá því í desember
1989. Þeir telja sig geta dreift um 400 þúsund
bókum á mánuði. Hinn alþjóðlegi biblíusjóður
Gídeons, sem við nutum stuðnings frá í mörg ár
en leggjum nú fé í, styrkir þá svo að þeir geta
gefið 150 þúsund eintök á mánuði. Þeim er frjálst
að fara í alla skóla, í gistihús og jafnvel til her-
manna. Kína er enn lokað. I sumum löndum þar
sem fátækt er mikil er Nýja testamentið eina
gjöfin sem fólk fær um ævina. Ef það kann ekki
að lesa lætur það aðra lesa fyrir sig.“
Gídponhreyfingin bindur sig ekki við eina
kirkjudeild en hefur mjög ákveðinn grundvöll
þar sem játuð er trú á guðdóm Jesú Krists og að
Biblían sé óskeikult orð Guðs. „Markmið okkar
er fyrst og fremst að leiða menn til trúar á Jesúm
Krist. Við hvetjum hver annan til að vitna með
djörfung og við viljum dreifa hinni helgu bók
með skipulögðum hætti, í von um að menn beini
sjónum til frelsarans og feli sig honum á vald.
Þá er markinu náð.“
- ba
BIBLÍAN BREYTIR ÖLLU
Margir vitnisburðir eru til um blessunarrík áhrif
þess ermenn tóku að lesa orð Guðs sem Gídeonfélag-
ar höfðu gefið á sjúkrahús, í skóla o.s.frv. Hérfara á
eftir nokkur dæmi.
Hef hlotið styrk og kraft
Síðustu vikuna í maí 1991 hringdi til mín
kona sem ekki vildi láta nafns síns getið. Eftir
rödd hennar að dæma hefði hún getað verið á
aldrinum 25-45 ára. Hún sagði eftirfarandi:
„Hvernig fer ég að því að styrkja starf Gíde-
onfélagsins fjárhagslega án þess að láta nafns
míns getið? Ég er ein sjálfsagt fjölmargra sem
fengið hafa styrk og kraft við lestur Nýja testa-
mentisins, sem þið hafið gefið. Þið vinnið
einstakt starf og því fylgir ómetanleg blessun
fyrir marga.“
Tveimur dögum síðar kom bréf og í því
stóð:
Guð blessi ykkar starf, megi Guðs orð ber-
ast inn á öll heimili hér á íslandi. Með þessu
smáræði langar mig að styrkja starfið. Vel-
unnari og systir í Kristi - Mark. 16:15.
Meðfylgjandi var ávísun kr. 18.000,-
Sigurbjörn Þorkelsson