Bjarmi - 01.03.1994, Blaðsíða 8
DÚDDHADÓMURINN
DUGÐIEKKI
- Dúddhadómurinn vorð mér einungis iðjo sem ég
fromkvœmdi. Honn fullnœgði ekki dýpstu þro
minnir segir Rufh Inez Knudsen í somfoli við norsko
bloðið TS-AVISA sem er fylgirif með For Foffig og
Rik. Þegor hún vor við nóm í búddískum hóskólo í
Dondoríkjunum vorð hún krisfin.
- Ég fonn Guð sem lœfur sér onnf um mig og gefsf
ekki upp ó mér, segir hún.
Að sifjo olein ó
púðo í íhugun
klukkusfund
effir klukku-
sfund vorð
smóm somon
filgongslousf.
Ég soknoði
somfélogsþóff-
orins.
8 DJARMI
- Móðir mín lést þegar ég gekk til prestsins
og bjó mig undir að fermast. Það leiddi til
þess að ég sneri baki við öllu saman skömmu
fyrir fermingardaginn minn. Eg var reið út í
Guð. Hvernig gat hann, þessi almáttugi Guð,
látið mömmu mína deyja þegar ég þurfti mest
á henni að halda?
Djúp þró
Þetta atvik varð til þess að Ruth Inez Knud-
sen frá Bergen hætti smám saman að taka þátt
kirkjustarfinu og tensingkórnum sem hún
hafði verið í. Aður en framhaldsskólinn var á
enda hafði hún sagt skilið við allt slíkt.
- Þegar ég var við nám í háskólanum í
Bergen var kristindómurinn mér fjarlægur.
Aðeins einu sinni hitti ég kristna manneskju á
skólanum. En mér leið illa og ég hrópaði á
hjálp til einhverra æðri máttarvalda.
Ruth lagði stund á ýmis fög áður en hún
ákvað að verða félagsráðgjafi. Hún hafði
vænst þess að sem félagsráðgjafi fengi hún að
starfa með fólki en vinnan varð að miklu leyti
stjómunar- og skrifstofuvinna. Hún glímdi
við sjúkdóm um alllangt skeið og á meðan
velti hún því sífellt fyrir sér hvernig hún ætti
að nota líf sitt.
- Eg þráði eitthvað utan við sjálfa mig en
ég vissi ekki hvað. Ég fór að lesa samkomu-
auglýsingar í dagblöðunum og langaði að
komast í samband við eitthvað. Ég man að
auglýsingar kvekara höfðuðu til mín: „Komið
og eigið kyrrlátt samfélag.“ Samt dreif ég mig
aldrei af stað.
Til fundor við búddhodóm
Ruth Inez fór til Bandaríkjanna til að læra
hópmeðferð. Dvölin vestra varð gjörólík því
sem hún hafði reiknað með.
- Ég hellti mér út í sálfræðinámið. Tilfinn-
ingar mínar voru afhjúpaðar og ég fór að
skilja hver ég var, segir hún, en bætir við að
enn hafi eitthvað, sem hún gat ekki skilgreint,
vantað.
Ruth ákvað að taka meistarapróf í sálfræði
og af þrem háskólum, sem til greina komu,
valdi hún búddískan háskóla vegna áherslu á
andlegar víddir í kennslunni.
- Skólinn var byggður á búddískum hug-
myndum. Það fól m.a. í sér að á hverjum
morgni voru kennslustundir og íhugun sam-
kvæmt tíbetskum búddhadómi. Við fengum
öll sérstakan fræðara í hugleiðslu sem sá um
að leiðbeina okkur.
- Að sitja alein á púða í íhugun klukku-
stund eftir klukkustund varð smám saman til-
gangslaust. Ég saknaði samfélagsþáttarins.
Þetta snerist allt um mig sjálfa og varð því
býsna sjálfhverf tilvera.
Áhrifomikill boðskopur
Rulh varð ófrísk í miðju náminu og meðan
hún gekk með barnið varð ljóst að hún yrði
ein með það. A þessu misseri átti allur bekk-
urinn að dvelja á býli nokkru upp til fjalla til
að einbeita sér að búddískum fræðum og íhug-
un. Margir urðu búddistar eftir þá dvöl.