Bjarmi - 01.12.1997, Qupperneq 23
Kjartan Jónsson
inu í Betlehem. Þeir sem til
þekkja segja mér að einmitt
það langi jólsveinana mest til
að gera. íslensku jólasveinamir
hafa íyrir löngu tekið upp mildi
Nikulásar hins tyrkneska og
líka tekið upp alþjóðlegan
einkennisbúning sem ku vera
hannaður af Coca cola kompani.
cirnir
Og NOTABENE, sá búningur
sækir einnig fyrirmynd sína í
heilagan Nikulás. Rauði liturinn
er litur jólanna samkvæmt
kirkjuárinu.
Nikulás var góður karl og
gegnheill, búningur kóka kóla-
sveinsins kirkjulegur og
íslensku jólasveinarnir orðnir
kurteisir. Því vil ég meina að
nær væri fyrir hinn kristna
heim að færa sér þjónustu
þessara barngóðu karla í nyt
og láta þá segja frá frelsara
heimsins sem fæddist á
jólunum. Trúlega nær enginn
betur til barnanna með þann
boðskap en einmitt jóla-
sveinarnir. Gleymum því ekki
að jólin eru fom sólstöðuhátíð
sem kristnir menn í öndverðu
fylltu nýju innihaldi. Hið sama
þarf að gera fyrir jólasveininn.
Gefa lífi hans nýjan tilgang.
Það er ekki í anda hógværra
jólasveinanna að stuðla að
meiri verslun fyrir jólin. Jóla-
sveinana langar miklu heldur
að benda á barnið í jötunni.
Neyðaróp jólasveinanna til
okkar er: „Bjargið okkur frá
Kaupæðis-Grýlu." Bregðumst
þeim ekki.
... og a moti
Jólasveinqjól
Amínum yngri árum var það
hluti aðventunnar að leika
jólasvein. Það var mjög gam-
an og vafalaust skemmti ég
mér oft betur við þunn skemmtilegheitin
en blessuð bömin. En mikið vatn hefur
mnnið til sjávar síðan og jólasveinninn
hefur afskræmst og breyst í afbrota-
mann því að hann er langt kominn með
að stela jólunum frá okkur.
Ég ætla ekki að koma með neinar
vandlætingar yfir jólagjöfum og góðum
mat. Það tíðkast í öllum samfélögum
manna að halda hátíðir og gera sér glað-
an dag og hví skyldum við ekki njóta
þess? Að vísu fer umgjörð hátíðahald-
anna út í öfgar hjá sumum. En sem
kristnum manni finnst mér frábært að
tilefni hinnar miklu hátíðar við sól-
stöður skuli vera tileinkað þeim stór-
kostlega atburði að Guð vitjaði okkar
með því að gerast
einn af okkur til
að geta náð tali af
okkur með þann
stórkostlega boð-
skap að hann þrái
að „nema land í
brjósti þínu og
gjörast eitt með
þér um tíma og
eilí fð“, eins og
Heimir Steinsson
komst að orði fyrir
skömmu í Morgun-
blaðinu.
Það veldur mér sífellt meira hugar-
angri að athygli manna skuli beinast í
stöðugt meira mæli að jólasveininum.
Okkur þykir gaman að uppátækjum ís-
lensku jólasveinanna sem klæðast þjóð-
legum alþýðufatnaði að gömlum sið. Þeir
eru sem góðar þjóðsögur. Áhrifin frá
heilögum Nikulási, biskupi frá Spáni sem
útbýtti kærleiksgjöfum og varð fyrirmynd
að náungakærleika, eru góð. Það var því
ekki ástæðulaust að kaþólska kirkjan
skyldi taka hann í helgra manna tölu.
Ef ég man rétt er 4. desember helgaður
honum í Hollandi og fólk gefur jólagjaf-
imar þann dag. Þessi jólasveinn er þvi
sannkristinn.
En hin síðari ár hefur jólasveinn
mammons komið til sögunnar. Hann er
góður við bömin og lætur gjaman mynda
sig með þau í fanginu. En aðalstarfi hans
er að sannfæra okkur um að það sé
nauðsynlegt og hjálpsamlegt að kaupa
girnilegan varning kaupmannanna.
Hann verður sífellt fyrirferðarmeiri fyrir
hver ný jól. Söngvamir, sem sungnir em
á aðventunni, ættu að hjálpa okkur að
hugleiða undur jólanna. En þess í stað
fjalla þeir meir og meir um jólasveininn,
uppátæki hans og skemmtilegheit,
jólasnjóinn, jólamatinn og jófaboðin.
Þetta er allt gott og blessað í hófi en nú
er svo komið að tilefni jólanna og
innihald er alveg að hverfa fyrir
jólasveininum og ytri umgjörð jólanna.
Þess vegna má segja að ég, sem er
yfirleitt seinþreyttur til vandræða, sé
búinn að fá jólasveininn upp í háls og
líti á hann sem höfuðóvin hinna kristi-
legu jóla og hlýt því að taka upp baráttu
gegn honum.
Vinkona mín í útlöndum gekk með
merki á sér á jólaföstunni sem á stóð:
Jesus is the reason for this season, sem
e.t.v. mætti útleggja: Jesús er tilefni
þessarar hátíðar.
Jesús er hinn sanni jólasveinn. Hann
er sveinninn sem fæddist við fátæklegar
aðstæður í Betlehem forðum daga. Lát-
um kaupmannajólasveininn ekki ræna
okkur jólunum. En notum aðventuna til
að hugleiða innihald þeirra og undirbúa
hugann undir komu jólanna.