Heima er bezt - 01.11.1951, Síða 2

Heima er bezt - 01.11.1951, Síða 2
258 HeIMA ER BE'ZT Nr. 9 Heima er bezt Keraur út mánaðarlega, 32 síður. i 1 Ritstjóri: Vilhj. S. Vilhjálmsson. 1 Útgefandi: Bókaútgáfan Norðri. ! Sími 3987. Pósthólf 101. Áskriftarverð, 12 blöð, kr. 67.20. ' Útsöluverð kr. 7.00 eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. ~~~Á Þökk fyrir bréfin o— Sagt er... SAGT ER, að eitt sinn, þegar Pétur biskup Pétursson var á efri árum sínum á yfirreið um Vesturland, hafi hann dag nokkurn riðið heim á kirkjustað hesti einum, sem var mikill og fríður — og fjörlegur og ganggóður að sama skapi. Þegar biskup var genginn í bæinn, mælti einn af bændunum, er komið höfðu til kirkju, við bróður sinn, sem einnig var bóndi og átti stóð mikið: „Hvernig lízt þér á biskupskempuna, Jón bróðir?“ „Mér sýnist hann lítil kempa, þetta er heldur ræfilsmaður," svaraði Jón. „En þetta var nú mesta hetja og skörungur — á sínum yngri árum.“ „Ekki veit ég það,“ sagði Jón, „en hitt veit ég, að ég hefði gjarna viljað, að hesturinn hans hefði visiterað hjá mér stóðið, þegar hann var upp á sitt bezta!" ★ HEIMA ER BEZT fær mörg bréf frá vinum sínum og velunn- urum víða um land. Jóhann Sigurðsson, Reykjavík segir í bréfi nýlega: „Ég vil þakka ykkur fyrir blaðið. Það er í raun og veru eitt bezta lestrar- efnið á mínu heimili, jafnt fyr- ir okkur hjónin sem börnin okk- ar. Það, sem ég álít vera aðal- kostinn við ritið er, að það birtir bæði innlendan alþýðufróðleik, sagnir og þætti og erlendar sagn- ir af líku tagi. Smásögurnar, sem það hefur birt, hafa verið sæmi- legar og mér fannst sagan, sem kom í tveimur blöðum, vera á- gæt, vekjandi til skilnings á kjörum þeirra, sem eru orðnir aldraðir og veikir. En ég held aö ekki ætti að birta erlendar smá- sögur í ritinu, heldur aðeins inn- lendar sögur. Ég vil sérstaklega þakka fyrir þátt Hagalíns um Þórhildi bænakonu. Ég þykist vita, að þessir mánuðir, sem liðn- ir eru síðan blaðið hóf göngu sína, hafi nægt til að sýna og sanna tilverurétt þess.“ Bóndakona í Skagafirði segir: „Lausavísnaþátturinn í blaðinu líkar mér vel, og helzt vildi ég óska, að hann væri aukinn. Draugasögur þykja mér leiðin- legar og ekki óska ég eftir þeim, enda hafið þið ekki birt margar. Forsíðumyndirnar eru á við langar greinar og ég hygg að fá- um ritum hér á landi hafi tekist að búa ytra útlit sitt svo glæsi- lega sem ykkar riti. Eitt sinn auglýstuð þið eftir héraðasöngv- um og lofuðuð að birta þá, en ekkert hefur orðið úr því. Hvað veldur? Ég hygg, að framtíð þessa rits sé tryggð. Það hefur Myndirnar á forsíðu 1. Réttir eru nú afstaðnar. Þær hafa löngum verið kær- komnar ungu kynslóðinni, sem fagnað hafa vini af fjalli. Þessi mynd er tekin á réttarvegg, að Stafholtsrétt- um í Gnúpverjahreppi. Þar situr ung bóndadóttir og lítur undrandi yfir almenn- inginn, en vinur hennar, sárfættur af fjalli, hvílist við hlið hennar. 2 . í sumar hafa endur verið fjölmennari á Tjörninni í Reykjavík en nokkru sinni áður og hafa Reykvíkingar mjög stundað það að gefa þeim brauð. Er eins og heill floti komi siglandi í odd- fylkingu þegar brauði er varpað á skyggðan flötinn af einhverjum bakkanum. ekki brugðist þeim heitum, sem það gaf í upphafi og er það meira en hægt er að segja um flest öll önnur rit, sem hafið hafa göngu sína hin síðari ár.“ K. S. B., Akureyri segir í bréfi: „Heima er bezt“ er að mínu viti bezt allra þeirra rita, sem koma út mánaðarlega. Ég býst varla við að allir séu sammála um það, en þetta er mín skoðun. Viðtölin við fólk, sem birt eru í hverju 3. Kynslóðir koma og kynslóð- ir fara, sagði einhver og þótti mæla spaklega. — Að Þjórsárholti í Gnúpverja- hreppi hefur fé verið fer- hyrnt í marga áratugi — og gefur hér að líta eina „úr kvenlegg“, en nú er féð fellt í Árnessýslu — og með því hið sérkennilega Þjórsár- holtsfé. 4. Kolbeinn Jóhannsson, Ham- arsheiði í Gnúpverj ahreppi, er þúsundþjalasmiður sveit- ar sinnar. Hann gerir við allt, og er hinn mesti völundur, en ekkert hefur hann lært, nema af sjálfum sér. Hann hefur komið upp myndar- legu verkstæði heima hjá sér og gerir við landbúnað- arvélar og bifreiðar sveit- unga sinna. — Á öllum tím- um höfum við átt í sveitum landsins slíka smiði, en nú er mjög breytt frá því sem áður var, vélar komnar og verkstæði í stað ljáanna, skeifnanna og smiðjanna. hefti, munu verða merkileg sögu- leg heimild þegar stundir líða — og einnig munu geymast í ritinu margar sagnir, sem annars mundu fara forgörðum. Það gleður mig að sjá frá því skýrt í ritinu að vinafjöldinn sé ætíð að stækka, enda óttast ég ekki um framtíð svona alþýðlegs og fróðlegs blaðs.“ Kærar þakkir fyrir bréfin og heillaóskirnar.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.