Heima er bezt - 01.11.1951, Side 5

Heima er bezt - 01.11.1951, Side 5
Nr. 9 Heima er bezt 261 En fyrir það að þetta brást, réð- ist ég sjómaður til Þórðar Er- lendssonar, Torfabæ í Selvogi. Lagði ég af stað seint á Þorra, með föt mín og nesti á bakinu. Færur mínar voru komnar til Þorlákshafnar. Tvær kr. fékk ég til að kaupa hest undir pjönkur mínar út í Selvog. Aðra peninga átti ég ekki. Útgerð mín var 35 pund smjör, sauður í kæfu og hálf kind, reykt, eitt ullarteppi og brekán. Urð- um við 4 samferða, Guðjón bróð- ir og tveir aðrir, Eyjólfur mál- lausi frá Galtalæk og Halldór vinnumaður frá Næfurholti. Við fórum yfir Þjórsá á ís, en hláka var komin, svo að vatnið í ánni var orðið mikið, að ísinn var far- inn að svigna, það mikið að vatn- tók okkur í mitt læri. Var ísinn orðinn það meir að tveir okkar skruppu niður um hann með annan fótinn. Mátti eigi tæpara standa. Við fórum á Eyrarbakka þennan dag, næsta dag í Þor- lákshöfn, þriðja daginn komst ég alla leið í Selvog. Fékk ég hest hjá tilvonandi formanni mínum, undir mötu mína og skinnklæði. Ég býzt við að formanni mínum hafi eigi fundist ég vera neinn burgeis. Ég átti að róa á 6 manna fari og sagði formaður við mig að ef ég gæti ekki borið allar áramar til sjós, væri ég ekki hlutgengur. Mér tókst að bera 6 árar á annari öxlinni nið- ur að sjó, og sagðist hann verða að láta mig hafa heilan hlut, fyrst ég hefði getað afkastað þessu. Þá var ég 14 ára. Við byrjuðum svo að róa þegar gaf. Við vorum 7 á bátnum. Ég var yngstur, annar 15 ára, sá þriðji 17 ára, og 2 menn um sextugt, og tveir á bezta aldri, um þrítugt. Þetta var talin fremur léleg skipshöfn, en samt björguðumst við, með guðs hjálp. Tvisvar hrakti okkur út í Herdísarvík í norðaustan stormi. í annað skiptið er okkur hrakti til Her- dísarvikur, lögðum við til heim- ferðar daginn eftir, en þá leit enginn til sjávar í Herdísarvík. Við komust austur á móts við Strandarkirkju, var þá svo mikið siglt að skipið jós sig sjálft, og er það ískyggilegasta sigling sem ég hefi verið með í. Var þá snúið til sömu hafnar. Þar var ein ensk loggorta, sem sá til okkar, og sigldi hún til okk- ar og fylgdi okkur þar til hún sá okkur borgið. Samt komumst við heim næsta dag. Gekk svo ver- tíðin slysalaust. Fékk ég 210 fiska hlut yfir vertíðina og herti ég það allt. Húsbóndi minn sótti mig og aflann að lokum. Það er rétt að lýsa húsmóðurinni. Hún var komin töluvert á níræðisald- ur. Reykti hún mikið af skro úr stórri pípu úr járni. Kveikti hún í pípunni við glóðirnar, því hún hafði á hendi öll eldhúsverk. Það var ekki öðrum að ýta, og fórst henni það vel úr hendi, enda var hún heilsu góð. Sonur hennar Erlendur, var kominn í rúmið og steig ekki í fætur, nema á sum- ardaginn fyrsta. Hann var á sjötugs aldri og faðir Þórðar for- manns míns. Þessi þrjú mæðgin lásu og sungu á hverjum degi, út alla vertíðina. Gamla konan þurfti ekki að hafa bók við söng- inn, hún kunni alla sálmana ut- an bóka. Þá var lesið á hverju heimili sem ék þekkti, hvað mikil verk lágu fyrir. Og fram að þeim tíma lásu sjómenn á hverjum morgni, áður en þeir reru til miða. Var það góður siður. Eins settu formenn fram skipin sín í Jesú nafni og signdu sig á eftir, svo og öll skipshöfnin. Svo þegar komið var út fyrir sundið, tóku allir ofan og báðu guð að gefa sér björg og blessun, varðveita sig frá slysum og háska. Þá var lesin ferðamanna- bæn, er lagt var upp í langferð. Þórður falaði mig næstu vertíð, en húsbóndi minn kvað það eigi mundi geta gengið, og mislíkaði Þórði það, sem von var, þar sem hann var búinn að taka mig svona ungann upp á fullan hlut og kenna mér dálítið í sjó- mennsku. Næstu vertíð lagði ég svo af stað suður í Hafnir til Halldórs Sigurðssonar í Merki- nesi. Þetta var útgerðarmaður, sem hættur var að róa sjálfur, og hélt því formenn fyrir sig. Lögð- um við af stað á Þorra, því vertíð byrjaði annan febrúar. Voru þeir mér allir eldri. Fyrsta daginn ætluðum við út í Ölfus, en seinni part dagsins skall á okkur norð- anhríð svo að við vissum ekki gerla hvað gera skyídi, eða hvað við fórum. En seinna um kveldið vorum við komnir út á ís, og tveir okkar voru rétt hrataðir ofan í vök. Við vorum þá staddir í Ölfusi. Snérum við aftur og þræddum niður með ánni, þar til við hittum Laugadælahverfið og gistum þar um nóttina. Svo var uppstytta næsta morgun, en hvasst og mikið frost. En er við komum suður í Svínahraun, gekk í slyddu af austri. Ég varð allur holdvotur og þreyttur. Hinir kvörtuðu líka um slæma liðan. Vorum við að hugsa um að gista í sæluhúsi sem var fyrir neðan vötnin. En þegar þangað kom, sáum við fram á það, að við myndum tæplega lifa af nóttina fyrir vosbúð og kulda, því í kofanum var ekkert sem gat skýlt okkur. Það var aðeins eitt þrep, sem hægt var að sitja á og rúm fyrir nokkra hesta. Réðum við því af að reyna að komast niður að Lækjarbotnum. Kom- umst við þangað með veikum burðum. Hvíldum við okkur þar vel og fórum til Reykjavíkur um kvöldið. Brá mér þá í brún að sjá alla þá ljósadýrð, því slíku var ég ó- vanur. Þar héldum við til Einars Jónssonar skósmiðs, því bróðir hans var samferða okkur, og fylgdum við honum. Vorum við settir þar við kaffidrykkju og á- fengi. Var ég því lítt vanur í þá daga, og var það víst í fyrsta skipti, sem ég neytti víns, enda varð mér ekki gott af því. Mér varð hálf illt og gekk ég því út með poka minn og ráfaði niður á götu, þar til það verður fyrir mér sexmannafar, býst ég til að gista þar um nóttina, sem ég líka gjörði. Náði ég þar í strigasvuntu, er hékk þar á stagi. Lagði ég mig því næst niður í framstafni hafði poka minn undir höfðinu, en svuntuna yfir herðunum. Að því búnu sofnaði ég rólega eins og ég væri heima, en vaknaði síðla nætur og var mér þá hrollkalt, en albata. Fékk ég mér Þá góðan bita af hangi- kjöti, því ég var orðinn svangur og hafði ekki bragðað mat frá

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.