Heima er bezt - 01.11.1951, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.11.1951, Blaðsíða 10
266 HEiaÍA ER BEZT Nr. 9 Gömul trú og fomar sagnir: Arnarfætur — og ásatrú Eftir Þorstein J. Jóhannsson MARGT ELDRA FÓLK, sem uppalið er í sveit og sérstaklega þar, sem smiðjur voru á bæjum, mun kannast við arnarfæt- urna, sem hafðar voru til að halda í á taug þeirri, sem lá til smiðjubelgsins, sem blés afl- inn, þegar smíðað var í smiðj- unni. Hætta var auðvitað alltaf á, að slík hús brynnu, ef eldur leyndist eftir að kveldi, svo að í gæti kviknað að nóttu til. Það var trú fólks, að ef einhver hlut- ur af örn, eða fálka — val — væri í húsinu eða smiðjunni, þá mundi það hús ekki brenna. Ég ætla að segja hér frá öðru, sem á víst til sama uppruna að rekja, þótt það væri ekki almenn venja að sinna því. Ég er uppalinn á eyjajörð, þar sem töluvert varp var á heima- eyjunni ásamt nærliggjandi eyj- um og hólmum. Ég man eftir því, að það kom oft fyrir á vorin, stuttu áður en æðarvarp byrj- aði, að faðir minn lét safna saman á tveim til þremur stöð- um, þurrum og hálfþurrum marhálmi, sem skolað hafði upp um stærstu flóð um vetur- inn, kom svo með dálítið af mó og öðru eldsneytisrusli og lagði svo eld í. Þegar eldurinn var vel lifnaður í mónum, var bætt á marhálminum eftir þörfum, en ekki svo mikið, að eldurinn kafnaði. Við þetta myndaðist töluverður eldur og reykjarhaf mikið, sem lagði langt yfir, ef vindur var. Þetta var kallað að bræla varg eða að fjarlægja hann varplöndin. En vargur hét bæði örn, fálki (valur) og hrafn. Fuglar þessir voru allir skaðlegir i varplöndum, en þó mismunandi. Örn var að vísu skaðleg ef hún heimsótti varp- land, og mun brælan helzt hafa átt að fæla hana frá varpland- inu, en örn var þó fremur sjald- gæf til spillis í varplandi, ef hún ekki hafði orpið í nærliggjandi klettaeyju eða fjallshömrum. En ef hún kom í varp, var hún mjög skæð og allir fuglar hræddir við hana, og æðarkolla, sem hún sá á hreiðri sínu, átti það víst að lenda í klóm hennar, annaðhvort til átu strax við hreiðrið, eða til burtflutnings. Á þeim tímum var dálítið um örn, þó hún megi nú heita horf- in úr landinu. Það var töluvert um fálka hér á landi fyrir 60 ár- um, en ekki gat hann talizt mjög skaðlegur í æðarvarpi, því að hann ræðst frekar á smærri fugla, þó allir fuglar séu hrædd- ir við hann. Þá er að minnast á hrafninn. Hann er í reynd- inni skæðastur þessara hræ- fugla í æðarvarpi, þó að hann drepi ekki fullorðna fuglinn, því að hann er gráðugur í æðaregg- in á meðan þau eru ný. Æðar- kollan fer ekki að liggja á eggj- um sínum í hreiðrinu fyr en við þriðja egg, sem hún hefur orpið í hreiðrið, heldur fyllir hún hreiðrið með allskonar rusli, svo að sem minnst beri á, að þar séu egg undir, og fer svo til sjávar í bili. Hún er því ekki viðlátin að verja þessi fyrstu egg sín, og öllum fuglum er ekki nærri því eins annt um egg sín, á meðan þau eru ný, eins og þegar þau fara að verða unguð. Krummi veit vel, hvernig æðar- kollan hagar varpi sínu og skyggnist því vel um, eftir þess- konar hreiðrum, ekki sízt snemma á morgnana, því það er venja hans að taka daginn snemma. En æðarkolla, sem tapað hefur fyrstu ’eggjum sín- um úr hreiðri, verpur aldrei aft- ur á því vori í sama hreiðrinu, heldur býr hún sér hreiður ein- hvers staðar annars staðar, jafnvel í annarri eyju, sem til- heyrir öðrum varpeiganda. Þetta eggjarán krumma getur því orð- ið skaðlegt varpeiganda, ef mik- ið kveður að því, sem stundum vill verða. Ekki étur krummi eggin við hreiðrin, heldur flýg- ur burt með þau í nefinu, til bú- staðar síns, og getur farið marg- ar ferðir sama dag. Hér getur því verið um töluvert tjón fyrir varpeiganda að ræða, ef hrafn- vargur sækir mikið í varpland í byrjun varps. Stundum hafa fundizt ný æðaregg t. d. í smá- fylgsni, þar sem er moldarkent í þúfu, og er sagt að það sé eftir krumma, sem hafi komið því þar fyrir, þegar veiðin er góð hjá honum, og ætli sér að sækj a það seinna, þegar hann þarf með, en til þess að finna það aftur, tek- ur hann mið, en miðin eru ský- in, en skýin eru óstöðug eins og menn vita, og finnur hann því eggið ekki aftur. Þaðan er kom- ið máltækið um það sem er ó- stöðugt eða vafasamt: að miða við skýin eins og hrafninn. — Þessi trú á skýjamiðun krumma, mun vera komin af því, að þeg- ar hann situr, er hann venju- lega að halla til hausnum sitt á hvað, eins og hann sé að horfa upp til skýjanna. Það er sagt, að hrafninn verpi fugla fyrstur á vorin, jafnvel nokkru fyrir sumar. Geri þá hart kuldakast með snjókomu, sem stundum vill verða, en krummi á hreið- ur sín í fjöllum eða fellum, og sé hann svo óheppinn að vera áveðra eða illa settur þar, þeg- ar mikinn kulda gerir, helzt hann þar ekki við, er þá sagt, að hann éti sín eigin egg, éti undan sér, eins og það er kallað, og verður þá á eftir því gráðugri í annarra egg. Þessi aðferð krumma er ekki talin eftir- breytnisverð, en nauðsyn getur brotið lög hjá krumma eins og öðrum. Þaðan er komið mál- tækið: að éta undan sér, eins og hrafninn. Nú er bezt að reyna að vita hvort nokkuð það sé finnanlegt, sem bendi til hvaðan þessi trú fólks er komin, að eldur og reykur sé til þess fallið, að hræ- fuglar (sérstaklega örn) forðist að koma nálægt þeim stöðum, sem eldur hefur verið kyntur á, þó nokkuð sé umliðið. Eða að betra sé en ekki að hafa ein- hvern part af arnarham, til dæmis arnarfót í húsi því, sem eldhætta er, og forða með því húsbruna, því eitthvað eða eitthvert dularafl sé að verki frá arnarhamnum eða hluta af

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.