Heima er bezt - 01.11.1951, Side 22
278
Heima ER BE'ZT
Nr. 9
um mínútum með íhugun og
rökréttri hugsun.
4. Maðurinn gengur stöðugt
þangað sem lofsöngur lífsins
hljómar, hin bitra lífsreynsla
leiðir hann ávallt í þá áttina.
5. Þú finnur aldrei dauðann,
af því að hann hefur aldrei ver-
ið til öðruvísi en sem hugsuð
andstæða lífsins.
6. Ekkert mannlegt vald get-
ur staðið gegn andlegum og efn-
islegum lögmálum náttúrunnar,
sannleikurinn og veruleikinn
munu alltaf sigra að lokum.
7. Engin þjáning jafnast á við
þá örðugu leið, sem liggur frá
trúnni til veruleikans.
8. Enginn getur orðið sann-
kristinn eingöngu fyrir trú.
9. Trú er andstæða allra and-
legra framfara.
10. Trú og þjáning er jafn ó-
leysanlega tengt hvort öðru sem
trú og umburðarleysi.
11. Aðeins fyrir þá sem trúa
eru guðs vegir órannsakanlegir.
12. Trú er aðeins dropi í því
kærleikshafi, sem lífsskilningur-
inn hefur komið auga á.
13. Lífsskilningurinn hefur
einkarétt á að bera virðingu fyr-
ir sérhverri skoðun, trúin hefur
einkarétt á umburðarleysi.
14. Hið sanna ljós kristninnar
skín því bjartar, sem maðurinn
verður veikari í trúnni.
15. Allt sem þú kallar efni er
lífið séð frá efnishliðinni, og allt
sem þú kallar líf er efnið séð frá
lífshliðinni. Hið anddlega og hið
efnislega er ein órjúfandi heild.
16. Sérhver breytni hefur sín-
ar afleiðingar, sem eru nauðsyn-
legar fyrir þróun einstaklings-
ins.
17. Sérhver skoðun er ávallt
afleiðing andlegs þroskastigs
hlutaðeigandi manns.
18. Maðurinn vill ennþá held-
ur þjást en hugsa.
19. Ekkert er illt nema van-
þekkingin.
20. Hið góða getur aðeins
hjálpað þeim, sem hefur hæfi-
leika til að nota það rétt.
21. Alkærleikur skapast aðeins
af skynsemi og tilfinningu í sam-
einingu.
22. Efnisvísindin eru aðeins
efnislegar afleiðingar alóþekktra
orsaka.
Nýjar Norðra-bækur
Söguþættir landpóstanna III.
Lokabindi af hetjusögnum landpóstanna gömlu, svaðilförum
þeirra og mannraunum. Helgi Valtýsson safnaði og bjó til prent-
unar. — 236 bls. Heft kr. 50,00.
Austurland
í bók þessari birtist sögulegur fróðleikur, margvíslegir þættir
um menn og atburði, sagnaþættir og ævisöguþættir fjölmargra
Austfirðinga. Af mikilli frásagnalist er hér brugðið upp ógleyman-
legum myndum frá liðnum árum. — 390 bls. Heft kr. 48,00,
innb. kr. 68,00.
Að vestan III. — Sagnaþættir og sögur
Hér er sagt frá Rannveigu stórráðu, séra Jóni Eiríkssyni, Tungu-
Halli, Eiríki í Ormarslóni, Markúsi á Nauteyri, Ólafi á Sandá, svo
nokkurra sé getið, en alls eru þættirnir 13. Svo koma 35 sögur um
ýms dularfull fyrirbrigði, sérstæðar og athyglisverðar. — 238 bls.
Heft kr. 38,00, innb. kr. 55,00, skinnb. kr. 65,00.
Færeyskar sagnir og ævintýri
Þýddar og valdar af Pálma Hannessyni rektor og frú Theodóru
Thoroddsen, úr þjóðsagnasafni hins merka fræðimanns, dr. Jakobs
Jakobsens. Langflestar sögurnar falla undir þá flokka, er nefndir
eru afreksmannasögur, en auk þess eru sagnir frá seinni öldum
og ævintýri. — 191 bls. Heft kr. 36,00, innb. kr. 55,00.
Hvað viltu mér?
Hugrún hin vinsæla skáldkona sendir hér frá sér 18 hugljúfar
og yndisfagrar smásögur fyrir börn og unglinga. Þær eru fjöl-
breyttar eins og sjálfur barnshugurinn og eiga erindi til allra
ungra hjartna. — 105 bls. Innb. kr. 22,00.
Hilda efnir heit sitt
Bók þessi er framhald sögunnar Hilda á Hóli, sem kom út fyrir
nokkrum árum og margir töldu beztu unglingabók, er út hefði
komið hér á síðari árum. Nú gefst mönnum kostur á að kynnast
því, hvernig Hilda fer að því að efna heit sitt, umvafin vandamál-
um og erfiðleikum daglegs lífs. — 175 bls. Innb. kr. 28,00.
Hreinninn fótfrái
er sænsk saga þýdd af Stefáni Jónssyni námsstjóra. Segir frá
hreininum Tjapp og stráknum Kapp, svaðilförum að vetrarlagi í
hríð og hörkufrostum, hreindýraþjófum, blysförum, bardaga úlfs
og hreins o. m. fl. Bókin er prýdd fjölda mynda, hún er ævintýra-
leg og heillandi. — 108 bls. Innb. kr. 25,00.
Petra hittir Áka
Allir þeir, sem lásu bókina Petra á hestbaki, munu hafa beðið
þessarar þókar með óþreyju. Nú er Petra 17 ára og les undir
stúdentspróf. Ánægja hennar og yndi af Faxa verður samt ekki
endaslepp, en smám saman fjölgar áhugamálunum og viðhorf
lífsins breytast. Hún hittir glæsilegan bóndason — og þar með
hefst ævintýri æskunnar. — 132 bls. Innb. kr. 25,00.
Beverly Gray og upplýsingaþjónustan
Þetta er 12. bindið í sagnaflokknum um hina snjöllu og
dugmiklu Beverley Gray. Nú gerast hörð átök og umsvifamikil,
ný ævintýri, furðuleg og spennandi. — 167 bls. Innb. kr. 25,00.
Bókaútgáfan NORÐRI
P'ísthólf 101 — Reykjavík.