Heima er bezt - 01.11.1951, Page 24

Heima er bezt - 01.11.1951, Page 24
280 Heim'a er bezt Nr. 9 Frá borði ritstjórans: Hvers vegna fagnar fólk bókum með alþýðlegum sögum og fróðleik? ekki fýsilegt fyrir þreyttan og þjakaðann mann, sem loks var búinn að fá í sig hita, að fara út í frostið og nóttina aftur. En það var ekki nema um tvennt að velja, að verða hungurmorða, eða að ná í fiskinn. Báðir kost- irnir voru vondir. En hann valdi þann síðari og kofa hurðin skall að baki hans eins og leiksviðs- tjald að loknum sjónleik. Hinir tóku til óspilltra mála við að tálga til steikarteina úr tré, því þeir ættluðu að steikja fiskinn yfir eldinum. Veiki maðurinn stundi og bylti sér í óráði á gólfinu og urðu þeir að hafa vakandi auga með hon- um, því hætta var á að hann fálmaði í eldinn með hendurnar. En næst honum varð hann samt að vera til að hafa hlýjuna. Varð því einn að gæta hans og kasta sprekum á eldinn, því hætta var á að hann kulnaði út og eldfærin í kofanum voru slög- uð og óvíst að hægt væri að tendra eld aftur. Þá var þeim dauðinn vís. Eftir skamma stund kom fé- lagi þeirra aftur, fannbarinn frá hvirfli til ilja. Hann hafði fisk- inn með sér eins og ætlast var til. Urðu þeir mjög fegnir komu hans. Þíddu þeir fiskinn við eld- inn, því hann var svo freðinn að teinarnir gengu ekki í hann. Eft- ir nokkra stund sátu þessir fimm menn kringum hlóðirnar, með sinn steikarteininn hver og steiktu sér fisk yfir rauðri glóð- inni. Frummennskan var átak- anleg umhverfis þá. Þeir voru eins og vofur aftan úr úlfgrárri forneskjunni, þama sem þeir sátu við glæðurnar og stýfðu hálfhráan fiskinn úr hnefa, sugu safann úr beinunum með græðgi glampa í augunum. Þarna í ver- manna-kofanum urðu þeir að hírast í 3 sólarhringa. Þá lygndi og slétti sjóinn. Var nú, farið að hugsa til heimfarar. Heima töldu víst allir þá dauða. Þá var ekki síminn til að spyrjast fyrir um báta, sem ekki skiluðu sér í höfn á réttum tíma, eins og nú. Þá urðu menn að treysta á guð og gæfuna, sem oft vildi þó bregðast. Gættu þeir svo að vörunni, en hún var lítið LÆRÐIR SPEKINGAR með þjóð vorri hafa oft undrast þaö, hve mikið kemur hér út af bók- um um innlendan fróðleik, per- sónusögum, sögnum af starfi og lífsbaráttu forfeðranna, og hve vel þær seljast, hversu vel þeim er tekið af alþýðu manna. Þetta hefur valdið enn meiri furðu ýmsum í hópi spekinganna, sem fyrst og fremst eru fagurkerar og þykir það skipta mestu máli hvernig sagt er frá, en minna um hvað sé skrifað, því að ó- neitanlega hefur stundum skort á listræna framsetningu í þess- um bókum, enda margar af þeim skrifaðar af mönnum, sem ekki gera kröfur til að litið sé á þá sem listræna rithöfunda. Ég hef oft rætt við menn, sem hafa látið undrun sína í ljós yf- ir þessu, en ég hef aldrei verið hissa á því, líkast til vegna þess, að allar slíkar bækur gríp ég feg- ins hendi, og enga bók fæ ég kærkomnari en þá, sem segir frá liðnum tíma hér á landi, styðst við sanna sögu og skýrir fyrir mér þann jarðveg, sem ég er vax- inn upp úr. í þessari minni eig- in tilfinningu þykist ég skynja tilfinningu þess almúga, sem skemmd, enda höfðu þeir gengið vel frá henni, breitt yfir hana segl og sjóklæði. Báru þeir svo félaga sinn í bát- inn og ýttu úr vör. Síðan var haldið austur og segir ekki af ferðum þeirra fyrr en þeir komu að Hvammi. Höfðu allir talið þá dauða. Var nú svo dregið af veika mannin- um, að hann talaði hvorki í ráði né óráði. En á þriðja degi eftir heimkomuna andaðist hann úr lungnabólgu að haldið var. Læknavísindin voru þá ekki komin á það stig, sem þau eru nú komin á og ekki var styttra til læknis en til Eskifjarðar, en þar var danskur læknir Zeuten að nafni. fagnar svona bókum og kaupir þær. En undirrót þessarar tilfinn- ingar er áreiðanlega sú, að þjóð- félagsleg bylting hefur orðið hér svo snögg, að við höfum ekki enn áttað okkur á henni. Móðir mín virðist nýstigin út úr hlóðar- stybbu eldhússins í sveitinni, þar sem skánar- og móhlaðinn var út við einn vegginn, en bjúgu og hangikjöt hékk í rjáfri, faðir minn er nýbúinn að sleppa ár- inni á sexæringnum, og eldri bróðir minn nýstiginn af segl- skútunni. Hálffertugt fólk man símalaust land eða svo gott sem, rúmlega tvítugt fólk man þá tíma, þegar ekkert útvarp var, þrítugt fólk man tíma þá, þegar bifreið var fjarlægur draumur. Hvað eru mörg ár síðan fólk í dreifbýli þorði varla að vona, að það fengi nokkru sinni að njóta rafmagns? — Það er alveg áreið- anlegt, að það, hve breytingin hefur orðið leiftursnögg hér á landi veldur því, að við lesum um líf forfeðra okkar og finnst sagn- ir um það eins og furðuleg ævin- týr, að vísu ekki vafin ljóma og rómantík, en þá ævintýr um frá- bært þrek, hugrekki, þolgæði og hetjulund. En til viðbótar við þetta kem- ur svo það, að við höfum farið á svo miklu spani í leit okkar að gleðinni á tiltölulega fáum ár- um, að við erum tekin að þreyt- ast. Við æskjum eftir friði og kyrrð heimilanna. Þetta á ekki aðeins við þá, sem nú gerast aldraðir, eða okkur, sem nú er- um miðaldra, heldur og unga fólkið. Ég finn þessa tilfinningu í æ ríkari mæli hin síðari ár ein- mitt hjá því. Þetta er enn ein sönnunin fyrir þeirri eilífu sögu- legu staðreynd, að eitt skipulag fæðir af sér annað, að mannfólk- ið stefnir fram, stundum blint af augum, og lendir því í sjálfheldu, en leitar þá aftur uppruna síns og síns raunverulega eðlis. Og ég held, að við höfum undanfarið,

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.