Heima er bezt - 01.11.1951, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.11.1951, Qupperneq 25
Nr. 9 HEIM'A ER BBZ'T 281 Einn af landpnstunum. og að vissu leyti í ríkum mæli enn, stefnt blint af augum. Eg gat ekki minnzt þjóðlegra bóka, sem mig langaði að gera að umtalsefni, án þess að hafa þennan formála, svo að lesend- ur mínir skildu skoðun mína í þessum efnum. En hér vil ég minnast á þrjár bækur, sem Norðri er að senda frá sér. Ein þeirra er skáldsaga, „Valtýr á grænni treyju“, eftir Jón Björns- son, önnur þriðja bindið af „Söguþættir landpóstanna“ og sú þriðja „Austurland“, þriðja bindi. „Valtýr á grænni treyju“ er 6. skáldsaga Jóns Björnssonar eftir heimkomu hans, en hann dvaldi lengi í Danmörku og rit- aði bækur á dönsku, en auk þess hafa komið út eftir hann fjórar unglingabækur síðan. Mér hefur enn ekki gefist tækifæri til að lesa hina nýju skáldsögu Jóns, en nafn hennar er girnilegt. Sagan er byggð á samnefndri þjóðsögu um austfirzkan bónda, sem ákærður var fyrir morð. Mun höfundurinn leggja áherzlu á sögumátt þeirrar aldar, sem þjóðsagan gerist á, flétta inn í bók sína réttarhöld, lýsingar á réttarfari, hjátrú og hindurvitn- um á 18. öld, en höfða þó til nútímans og milli línanna knýja fólk til að leita að hliðstæðum í nútímanum. Þessi nýja skáld- saga Jóns Björnssonar er um 300 síður að stærð. Þegar „Söguþættir landpóst- anna“ komu út fyrir nokkrum árum, vöktu þeir mikla athygli og umtal, enda seldust bækurn- ar frábærlega vel. Þá skrifaði ég um þessa þætti. Ýmsir hafa gerzt til að gagnrýna framsetninguna á þessum sögnum, en höfundur- inn, Helgi Valtýsson, hefur aldrei gert kröfu til þess, að á verk hans væri litið sem vísinda- rit og heldur ekki sem listaverk. Hann hefur tekið sér fyrir hend- ur á gamals aldri og af alkunn- um dugnaði að safna saman sögnum og heimildum um land- póstana í þann mund, sem stétt þeirra var að líða undir lok. Og ég leyfi mér að spyrja: Hver hefði gert það, ef hann hefði ekki hafizt handa? Það er alveg víst, að Helgi Valtýsson hefur bjarg- að frá glötun sögunum um land- póstana. Og það er víst, að sög- urnar, sem hann segir í þessum bókum, munu lengi ylja íslend- ingum. Inú er komið út þriðja bindi þessara sagna, en það hef- ur inni að halda fyrst og fremst viðbæti við fyrri sagnir, leiðrétt- ingar og nokkrar nýjar. í for- mála fyrir bindinu gerir Helgi grein fyrir tilgangi sínum með verkinu, og svarar að nokkru þeim, sem gagnrýnt hafa starf hans. Eg verð að þakka honum fyrir starf hans. Ég fellst á þá skoðun hans, að hinir hafi ekk- ert gert, að hann hafi safnað gögnunum og komið þeim fyrir almennings sjónir, og svo geti hver sem vill unnið úr þeim á vísindalegan hátt eins og þeir vilja. „Austurland“ er orðið mikið og voldugt rit. Áður eru komin út tvö bindi og hér er hið þriðja. í ritnefnd þess eru Halldór Stef- ánsson fyrrverandi alþingismað- ur, sem hefur lagt fyrir sig ágæt fræðastörf, þegar degi hefur tekið að halla, en það hefur lengi verið siður ýmissa ágætra manna hér á landi, Sigurður Baldvins- son póstmeistari og Bjarni Vil- hjálmsson magister, hinn ágæti fræði- og bókmenntamaður. í þessu þriðja bindi er fyrst og fremst Papeyjarsaga og Papey- inga eftir Halldór Stefánsson og Eirík Sigurðsson. Þarna er mik- inn fróðleik að finna um þessa sögufrægu eyju, sem nú virðist vera að eyðast, og er sagan rak- in frá' upphafi til Gísla bónda, föður Ingólfs læknis, sem ritað hefur nokkrar greinar um fugla- líf í Papey hér í ritið. Þessi bók er full af fróðleik og skemmtilegum sögnum, en þó ber af þáttur Sigurð- ar Baldvinssonar um Steindór Hin- riksson. Þar er gefin lýsing á frá- bærum persónu- leika, manni, sem virðist næsta eins dæmi — og þó svo rammíslenzkur, að við könnumst næstum því við hvern svipdrátt i lýs- ingu hans. Mér finnst, að ég heíði misst mikils, heföi ég aldrei kynnzt Steindóri Hinriks- syni, þótt aðeins hafi orðið af þessum þætti. Eg læt útrætt um þessar þrjár bækur. Norðri hefur sent frá sér Færeyskar þjóðsögur, sem Pálmi Hannesson og Theódóra Thor- oddsen hafa þýtt og einnig marg ar barnabækur. Um barnabæk- urnar get ég ekki rætt, en þær eru vel út gefnar og líkast til hinar skemmtilegustu. Fær- eysku þjóðsögurnar eru einnig myndarlegar að öllu útliti og gera má ráð fyrir að þær gefi góða hugmynd um Færeyinga og þjóðlif þeirra. VSF. F~* ’ i Steindór í Dalhúsum sérkenmlegur kvistur d austfirskum stofni.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.