Heima er bezt - 01.11.1951, Side 26

Heima er bezt - 01.11.1951, Side 26
282 HEIfcíA ER BE'ZT Nr. 9 Sjóferðir og landafundir: Vasco da Garaa — maðurinn, sem olli aldahvörfum í sögunni SNEMMA MORGUNS þann 8. júlí komst fylkingin á hreyfingu. Klæddir hvítum kyrtlum ferða- mannanna og með blys í hendi hópuðust liðsforingjarnir með stóran prestaskara, munka og aðra fylgdarmenn á eftir sér, hinn langa veg frá kapellu nokk- urri fyrir vestan Lissabon og til Rastello við Tajo-fljót, þangað sem flotinn lá úti fyrir og kippti í akkerisfestarnar. Á veginum slóst fjöldi fólks í för með skrúð- göngunni. Sálmasöngurinn steig til himins, og brennandi heitar bænir fyrir hvítklæddu mönnun- um. Fremstur gekk ungi aðalsmað- urinn Vasco da Gama ásamt bróður sínum Paolo og Nicolaus Reykjavíkurþáttur... Frh. af bls. 271. þess ævintýris, þar sem söngur fugls er hin eina tónlist. Hér ríkti þrumandi rödd, rödd aflsins, sem stiginn var af þrekvax- inni rauðhærðri konu, er hélt á glóandi töng með sviðahaus á endanum. En einn- ig hér var veröld ævintýris. Eg og stalla mín fengum gefins eins mörg hrútshorn og við gátum með okkur tekið. Mikla og óttablandna virðingu bar ég fyrir þeirri konu, sem var drottning í þessu ríki. Hún var kölluð Odda. Og hvað sem karlarnir í hinum skúrunum kepptust við að svíða, nótt og dag, þá var sagt svo, að Odda væri iangduglegust; enginn sveið eins marga kindarhausa og hún. Ég sá að stalla mtn leit á hana með opinn munninn, og ég veit, að hún hugsaði alveg það sama og ég: Þarna var engin venjuleg kona. Þetta var , ævintýrakona. Við stóðum drjúga stund fyrir innan skúrdyrnar og horfð- um á neistana rjúka upp um þakið, svit- ann perlast á heitu enni þeirrar, sem stóð við aflinn — og svörtum kindarhausun- um fjölga úti í horninu. Þangað til allt í einu, að mér heýrðist nafn mitt kallað í fjarska. Kannske var það ekki annað en hugarburður, en mér fannst eitthvað Coelho, sem hvor um sig átti að hafa skipstjórn á skipum leið- angursins. Nóttina höfðu þeir legið á bæn í kapellunni og hug- leitt þá ferð, sem fyrir höndum var. Hlutverkið, sem beið þeirra, hafði sjálfur konungurinn, Ma- nuel, útskýrt fyrir þeim í kveðju- móttökunni á sumarheimili sínu við Montemor daginn áður. — Fyrsta og helzta ætlun ferð- ar þessarar er að finna sjóleiðina til Indlands, sagði hann við Vas- co da Gama og nánustu sam- starfsmenn hans. Framtíð Portú- gals krefst þeirrar nauðsynjar, að við aukum verzlunarviðskipti okkar. Þar sem Spánn hefur nú lagt undir sig nýja heiminn í kippast við í brjósti mér. Skyldi fóstra mín vera orðin hrædd um mig? Ég greip um hönd stöllu minnar og leiddi hana með mér upp Vitatorg. Það var komið myrkur. Skyldum við fá bágt fyrir að hafa verið of lengi úti? Gunna átti stjúpu. Ég átti fóstru, sem aldrei blakaði við mér, hversu óþægur sem ég var. Hún varð að- eins sár. Og mér þótti leiðinlegt að særa hana. Hinsvegar er fagurt haustkvöld og draumheimur æskunnar eitt og hið sama: Ferskur svali kvöldsins. Okennileg ang- an, sem kitlar nasirnar og vekur mann. Þreyta — óþekkt hugtak. Vissan um bernskuleiki morgundagsins — auðlegð, sem hinn fullorðni glatar. Það er sælt að láta eftir þeirri freistingu að vera úti þangað til kallað er á mann í háttinn, já, jafnvel svolítið lengur. En stalla mín er áhyggjufull á svip. Og ég fæ skýring- una, þegar hún segir: „Guðmann. Ég verð að fara inn. Ef ég fer ekki inn núna, fæ ég kannske ekki að fara hitt á morgun." Þá man ég eftir því, sem hún hafði sagt mér. Og við kveðjumst. Tvö reykvísk börn á kreppuárunum fyrir stríð. Hún fer niður í kjallarann undir stóra húsinu. Ég fer inn í trésmiðjuna á baklóðinni, þar sem ég og fóstra mín erum til húsa. Þar tekur við heirnur annars draums. Kaupmh. 7. sept. F.lía* Mar. Vasco da Gama. vestri með hinum ótæmanlegu og óvæntu auðæfum þar, er nauðsynlegt fyrir okkur að leysa gátuna um sjóleiðina til Ind- lands, lands dýrgripanna. Hlut- verkið liggur fyrir! Farið i guðs nafni! Og þegar þeir gengu nú í kyrr- látu morgunsárinu í átt til Ra- stello, voru það einkum tvö nöfn, sem hvað eftir annað komu Vas- co da Gama í hug. Nöfn þessi hljómuðu í eyrum hans gegnum allan sönginn og bænirnar. Hann gat ekki lokað eyrunum fyrir þeim. Þau urðu einskonar orðtak fararinnar og allrar framtíðar hans. Máney var fyrra nafnið, So- fala hið síðara! Máney var nafn það, sem Ar- abar höfðu gefið Madagaskar, og Sofala var þekkt nafn í Portú- gal á hafnarstað einum við sunn- anvert Sambesi-fljót, höfn hins gullauðuga lands, svo auðugs, að stundum hafði manni komið til hugar, að það væri eitt af auð- ugu löndunum, sem talað er um í biblíunni. Máney og Sofala voru raun- verulegu lausnarorðin að gát- unni um sjóveginn til Indlands, lausnin á leyndardómunum, sem hugdjarfir menn höfðu fórnað lífinu til að geta leyst og nú átti endanlega að ráða fram úr, hvað sem það kostaði. Hvernig hafði verið komizt að orði í bréfi Pedro de Covilhaos, þar sem hann sagði frá rann-

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.