Heima er bezt - 01.11.1951, Qupperneq 31
Nr. 9
Heim'a er be-zt
287
inn á það afmarkaða svið, sem
þau áttu að koma inn á, en há-
vaðatæki að tjaldabaki komu
þeim til að fetta sig og bretta og
láta sjást í hvítar tennurnar, auk
þess sem fimm menn hleyptu af
skammbyssum til þess að gera
atriðið sem allra áhrifamest.
í lokaatriðinu, sem var mjög
áhrifamikið, var stærsta ljónið
látið hlaupa fram, þegar ég
stappaði niður fætinum. Þetta
ljón var sauðmeinlaust og hafði
verið æft sérstaklega í því að
leggja hramminn á öxl mér og
veltast með mér um gólfið, rétt
eins og um átök væri að ræða.
Loks lá það grafkyrrt, samkvæmt
því sem því hafi verið kennt, en
ég stóð á fætur, með annan fót-
inn á ljóninu liggjandi, rétt eins
og fyrsta flokks sigurvegari.
En hvað Frakkarnir gátu
öskrað sig þegjandi hása af
hrifningu yfir þessu atriði! Það
var engu líkara en þeir hefðu
misst vitið. Tjaldið var fellt og
dregið frá fimm sinnum. Að lok-
um tókst mér að fá ungu, fallegu
leikkonuna til þess að koma með
mér fram á sviðið, ásamt ljón-
unum, svo að áhorfendur sæju.
En á meðan hún stóð þar, skalf
hún svo af hræðslu, að ég átti
fullt í fangi með að styðja hana.
Fagnaðarlætin voru dæmalaus,
tjaldið féll í fimmta skipti, og
þegar það var fallið, tók ég eftir
því, að hin bjarta kinn mótleik-
ara míns hafði fengið á sig kol-
svartan blett. Hún hafði nefni-
lega, sökum ótta við ljónin, hall-
að sér upp að öxlinni á mér —
sem var svartmáluð.
Aftur var gefið klukkustund-
arhlé, ljónin tekin burtu, og
borgarstjórinn, blaðamennirnir
og allt mektarfólkið kom upp á
sviðið. Leikhúseigandinn var svo
ánægður, að hann kyssti mig,
samkvæmt frönskum sið, á báð-
ar hinar svartmáluðu kinnar
mínar. Öllum bar saman um það,
að sýningin hefði verið stórfeng-
leg. En þar sem klukkan var nú
orðin fimm að morgni og engin
sýning eftir, sem ég þurfti að
taka þátt i, dró ég mig í hlé —
sannarlega meira en lítið þreytt-
ur. Ég get að lokum sagt, að með
hinum eiginlega blökkumanni
og ljónunum mínum var leikur
þessi sýndur í sex mánuði og
skilaði drjúgum skilding í vasa
hins hamingjusama og hug-
myndasnjalla leikhúseiganda.
qicftp hBfir staöizt dóm reynslunnar
Framleiðum meðal annars til he imilisnotkunar:
ELDAVÉLAR
KÆLISKÁPA
ÞVOTTAPOTTA
OFNA ALLS KONAR
BRAUÐGERÐAROFNA
HITUN ARTÆKI
H.f. Raftækjaverksmiðjan
HAFNARFIRÐI