Heima er bezt - 01.02.1952, Qupperneq 2
34
HEI]VÍA er beszt
Nr. 2
Hcr birtist mynd aj forsetasetrinu að Bessastööum. Ems og ai'i)]óð er kunnugt liafði tunn nýlátni
forseti mikinn úhucja á ejlingu íslcnzks landbúnaðar og lagði kapp á að búskapurinn á Bessastöð-
um yrði til fyrirmyndar. Ahugi lians á rœktun og alls konar tilraunastarjsemi á þeim sviðum var
víðkunnur. Skilningur hans á þýðingu landbúnaðarins, sem grundvaUaratriði fyrir framtíð hinnar
íslenzku þjóðar, mun eklci hvað sízt halda nafni hins jyrsta forseta lýðvcldisins uppi með ókomn-
um kynslóðum.
Myndirnar á forsíðu
1. Þó að snjórinn baki mönn-
um margvísleg óþægindi
með samgönguerfiðleikum
og öllu sem þeim fylg'ir,
býður hann oft upp á töfr-
andi fegurð. Mynd þessi er
tekin hér í bænum og sýnir
nýfallinn snjó. Því hei'ur
oft verið viðbrugðið hve
vetrarskógurinn á Norður-
löndum er ljómandi falleg-
ur, þegar greinar trjánna
svigna undir lognsnjónum.
Nokkuð af slíkri „stemn-
ingu“ kemur fram í mynd-
inni.
2. Þegar ís og hjarn liggur yfir
landinu og reiðfæri er gott,
fara hestamennirnir að
hugsa sér til hreyfings. Hér
er verið að járna gæðing-
inn með traustum skafla-
skeifum áður en lagt er upp
í hressandi ferð út í ís-
lenzka vetrarnáttúru. Geta
þá margir tekið undir með
Páli Ólafssyni:
Þegar gljána Glæsir rann,
gaman var að sjá ’ann.
Hann í allra augum brann,
allir vildu fá ’ann.
3. Hundurinn hérna á mynd-
inni virðist vera hinn á-
nægðasti með tilveruna.
Þennan tíma ársins hafa
smalahundarnir í sveitinni
hæga daga, þegar fé er á
gjöf og óviða er beitt, eins
og í gamla daga, þegar hey-
fengurinn var lítill og nota
varð hverja snöp. Þá voru
hundarnir ómissandi við að
bjarga fénu undan hriðum,
og margar sögur eru til um
hunda, sem sýndu óvenju-
lega hæfileika við að finna
fé í fönnum.
4. Snjórinn hefur ekki aðeins
verið slæmur farartálmi á
vegum úti. Oft hefur verið
eríitt að komast um götur
höfuðstaðarins vegna hálku
og snjókomu, og hefur það
einkum verið erfitt fyrir
gamla fólkið, eins og mynd-
in sýnir.
HEIMA ER BEZT • Heimilisblað með myndum • Kemur út mánaoarlega • Áskriftagj.
kr. 67.00 • Utgef.: Bókaútgúfan Norðri • Ábyrgðarm.: Albert J. Finnliogason • Ritstjóri:
Jón Björnsson • Heimilisfang blaðsins: I’ósthólf 101 Reykjavík • Prentsm. Edda h.f.