Heima er bezt - 01.02.1952, Page 3

Heima er bezt - 01.02.1952, Page 3
Nr. 2 Heima er bezt 35 Sveinn Björnsson, forseti Með forseta íslands, herra Sveini Björnssyni, er til moldar genginn einn af áhugasömustu og af- kastamestu mönnum aldamótakynslóðarinnar. Fá- ir munu hafa verið jafn bjartsýnir á framtíð lands og þjóðar og hann, þegar hann kom fyrst fram á svið opinberra mála. En bjartsýni og trú á land- ið einkenndi þá kyn- slóð, sem var að kom- ast á þroskaaldur kringum aldamótin. Hannes Hafstei’n talar fyrir munn þessarar kynslóðar í hinu fræga aldamótakvæði sínu. Sveinn Björnsson var sonur hins mikilhæfa stjórnmálaforingja Björns Jónssonar ri't- stjóra ísafoldar og síð- ar ráðherra og konu hans Elísabetar Sveins- dóttur. Hann var fædd- ur 27. febrúar 1881 og varð því nærri 71 árs er hann lézt aðfara- nótt 25. janúar s.l. Æskuheimili Sveins Björnssonar var eitt af myndarheímilum höf- uðstáðarins. Faðir hans var, eins og kunnugt er, einn áhrifaríkasti st j órnmálaf oringi' landsins og blað hans, ísafold, var stórveldi í landinu á sínum tíma. Mun Sveinn Björnsson þá hafa kynnst þjóðmálum fyrst, eins og hann lýsir í minni'ngagrein um æskuheimili sitt, sem kom út fyrir nokkrum árum. Var hann snemma settur til mennta og lauk stúdentsprófi frá háskólanum í Kaupmannahöfn. Eftir að hann kom heím hafði hann málfærslu á hendi í mörg ár, var í bæjarstjórn og alþingismaður og margt fleira, sem hér yrði of langt að telja. Á þessum ár- um vann hann að ýmsum merkum framfaramál- um, svo sem stofnun Eimskipafélags íslands og varð fyrsti formaður þess. Enginn vafí er á því að Sveinn Björnsson hefði átt glæsilegan stjórnmála- feril framundan, ef hann hefði helgað sig þeim málum. En starf hans átti að liggja á öðru sviði. Eftir að ísland komst í tölu sjálfstæðra ríkja áríð 1918, voru mörg verkefni óleyst með til- liti til að tryggja hið nýfengna sjálfstæði og afla því viðurkenníng- ar annarra ríkja. Var því sett á stofn sendi- herraembætti í Kaup- mannahöfn árið 1920. Sveinn Björnsson var skipaður fyrsti sendi- herra íslands erlendís og veitti hann sendi- ráðinu í Kaupmanna- höfn forstöðu í tvo ára- tugi. Munu störf hans í því embætti tæpast kunn alþýðu manna enn, en það starf, sem hann innti þá af hönd- um, mun verða merk- ur þáttur í sögu þess- ara ára, þegar hún verður rítuð. Á þessum árum mótaði Sveinn Björnsson utanríkis- þjónustu hins unga ríkis og samningalip- urð hans og glögg- skyggni á ríkan þátt í því, hve fljótt ísland varð víðurkennt meðal ann- arra ríkja. Reynsla hans í þessu vandasama starfi gerði hann því sjálfkjörinn til að takazt á hendur æðstu forstöðu ríkisins, þegar styrjöldin lokaði öll- um samgöngum víð hið fyrra sambandsríki okkar. Varð Sveinn Björnsson, eins og kunnugt er, kjör- inn ríkisstjórí íslands árið 1941, og þegar lýðveldið var stofanð 1944 var hann sjálfsagður sem fyrsti forseti hins unga lýðveldis. Varð hann tvívegis sjálfkjörinn í þá stöðu síðar. Það var míkið happ fyrir þjóðina, að maður eins

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.