Heima er bezt - 01.02.1952, Side 8

Heima er bezt - 01.02.1952, Side 8
40 Heima er bezt Nr. 2 eru úr sögunni. Þó sýsla þeir sumir sitthvað þarflegt á vök- unni. En tamara er þeim samt að halla sér að hvílubekknum og lesa í blaði eða bók eða horfa á kvenfólkið og ræða við það um hagi heimilisins utan bæjar og innan, vandamál og viðhorf dagsins á bæ og af, gang lífsins í héraði og utan. Fólkið rabbar um daginn og veginn, menn og málefni, nýjustu frétt- ir úr blöðum, útvarpi og síma, bækur, sem verið er að lesa, og margt fleira. Hin f j ölþættustu og sundurleitustu málefni ber á góma. E. t. v. eru skoðanir all skiptar, svo að roði breiðist um vanga og gneisti kvikni í auga við umræðurnar. En það er að- eins til að krydda þær og gefa þeim líf og kraft. Það skýrir mál- in og gefur þeim fastara svip- mót, líf, innihald, að öldur ólíks smekks og gagnstæðra skoðana leiki um þau, og að sem flestir beini að þeim ljósi skilnings og íhugunar. Þegar það er gert af gleði og góðvilja, og jafnframt lögð stund á iðkun hugðarefna og skyggnzt inn í ríki skálda og listamanna, þá líður kvöldið í ljúfum unaði. Kvöldvökurnar á íslenzku sveitaheimilunum, þar sem fólk- ið, jafnframt því að stunda þjóð- nýt og merkileg störf, sat við „lista-lindir“ og auðgaði anda sinn við áhrif óðs og óma, söngs og sagna, þær hafa verið arin- eldur þessarar þjóðar í þúsund ár, athvarf hennar og unaðs- gjafi, háskóli hennar og helgi- vé. Þann sannleika túlkar breið- firzka skáldkonan einkar vel með þessum orðum: „Vetrarlöngu vökurnar voru öngvum þungbœrar, við Ijóðasöng og sögurnar söfnuðust föngin unaðar.“ Og: „ísaspöng af andans hyl íslands söngvaf þíða. Kalt er öngvum komnum til kvœða Lönguhlíða." Sú íþrótt að kveðast á, og svo rímnakveðskapur og flutningur fornbókmennta mun nú úr sög- unni sem heimilisskemmtun á kvöldvökunni upp til sveita á fs- landi, en um aldaraðir var þetta hvorutveggja: merkileg skemmt- un og verulegur lærdómur, hinn eini skóli margs alþýðumannsins. Nærfellt með hverju ári fer þeim og fækkandi heimilunum, þar sem lesið er upphátt úr blöðum og bókum. Það var áður þjóðar- íþrótt, er skóp listalesara og veitti þeim, er á hlýddu, ótal margar fræðslu- og ánægju- stundir, sem ógjarnan urðu metnar til verðs. Nú er þetta að verða eitt af því, sem heyrir for- tíðinni til, en verður þeim, er þess nutu, gull í sjóði minning- anna. Á fyrri tímum, þegar fátt var um menntasetur með þjóð- inni og leiðin til lærdóms var lokuð öðrum en örfáum útvöld- um. Þegar flestir voru bundnir við eina og sömu þúfu ævilangt, þegar lítið var um ljós og hlýju í híbýlum manna, stritið og fá- tæktin þrengdi að eins og álaga- hamur og ekkert varð til þess að rjúfa þá einangrun, sem fólkið bjó við. Þá varð hver bók, hver hljómur eins og æðri opinberun, auðlind, sem án afláts var aus- ið úr til svölunar og uppörfunar. Þá tóku menn eftir því, sem þeir heyrðu, og mundu það, sem þeir lásu; þá lærðu menn heila rímnaflokka, heil ljóðakver og sálmasöfn utanað og mundu það tíðum, lítið eða ekki brenglað, um langa ævi. Þegar brugðið hafði verið upp ljósglætu í bað- stofunni og kvöldvakan hófst, tók einhver heimilismanna sér bók í hönd og las í henni fyrir hina, sem höfðu verk með hönd- um. Þá breyttist hið lágreista, ljósvana skýli í uppljómaða ævintýraborg, fólkið hófst yfir amstur hversdagsins og tóm auðnarinnar og hvarf til dvalar í þeim ljósheimi, sem listin skóp. Það fylgdi fornköppunum til leikja og íþrótta, til vopnaþinga og í víkingaferðir. Það steig á gnoðina með höfðingj anum, sigldi með honum um hin víðu höf og fylgdi honum, er hann steig á framandi strönd, gekk í konungsgarð og gerðist hirðmað- ur. Það þeysti á gunnfáki yfir víðar lendur og festi sjónir á gózzi sigurvegaranna; það ók með „gullinhyrndum hreinum“ til álfheima, þar sem hallir luk- ust upp og fundinn var lykillinn að draumi lífsins. Það vaggaðist þýtt í værð og frið, er rekkjan rann og svanirnir sungu, og kenndi sælu við að svífa með töfraklæðinu um loftin blá. Það er þetta, sem um aldaraðir hef- ur verið þessari þjóð „langra kvelda jólaeldur“ og hennar brjóst við hungri og þorsta, hjartaskjól þegar bezt var sól- in“, eins og sr. Matthías orðar ar það. Og enn í dag er bókin eitthvert dýrsta gullið í sjóði ís- lendingsins. Enn er horfið til hillingalanda þjóðsagna og æv- intýra, enn eru gullaldarbók- menntir í heiðri hafðar víða, enn er hlustað á hljómana frá hörp- um þjóðskáldanna og atgjörvis- mönnunum í ríki andans goldin þökk og hylli. En þó gerist það nú æ tiðara, að lítt er hirt um að greina kjarna frá hismi. Reyfarar og dægurljóð eru tekin fram yfir ágætar sagnir og ódauðleg kvæði, léleg, erlend framleiðsla sett ofar sígildum listaverkum á eigin tungu. Þegar bókaútgáfan er orðin að þvíliku flóði sem nú, þá hungrar menn ekki lengur né þyrstir eftir hverri einstakri bók. Margir ruglast í ríminu, er að því kem- ur að velja og hafna, og það verður næstum tilviljun ein, hvort þeir hreppa góðan drátt. Hraðinn og. ólgan, sem ríkir í umhverfinu, slævir athyglisgáf- una og hæfileikann til að muna, í mörgu er kraflað, en fátt lesið eða lært til hlítar, og af þessu leiðir hnignandi smekk og dofn- andi dómgreind. En á meðan þjóðin geymir sinn dýra arf, á meðan hún elskar óminn frá hörpum þeirra, sem voru skáld af guðs náð, og greinir þá frá harmonikuleikurunum í heimi andans, á meðan hún dáir „and- ans form í mjúkum myndum“ og skilur, að „orð er á íslandi til, um allt, sem er hugsað á jörðu", þá á hún sín helgivé ofar ys og sþríði, sitt töfraklæði, er hún líð- ur með um loftin blá, sinn hvíta gæðing, sem ber hana yfir sér- hvert torleiði inn í ljósgeisla hinnar ljúfustu fegurðar. Þá verður eldurinn, sem þeir, er una í faðmi sveitanna, orna sér við á „vetrar löngu vökunum“, enn sem fyrr sá jólaeldur, sem rýf- ur rökkurraunir skammdegisins og gerir mögulegt að þreyja

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.