Heima er bezt - 01.02.1952, Page 12

Heima er bezt - 01.02.1952, Page 12
44 Heima JSK bezt Nr. 2 Mikligarður, höfuðborg Árið 949 tólc biskup að nafni Liutprand frá borginni Cre- mona á Norður-Ítalíu sér ferð á hendur og létti eigi fyrr en hann kom til borgarinnar Byzants við Bosporus-sund, eða Konstan- tínópel, sem borgin var lengst af nefnd. Þá réð þar ríkjum Kon- stantín VII. keisari, með því nafni. Biskupinn reit ferðasögu og lét í ljós álit sitt á ýmsu, er hann sá og heyrði. Er auðséð á ferðalýsingu hans, að hann hef- ur orðið mjög hrifinn af skrauti því og auðæfum, sem hann sá í þessari frægu borg, en hann hafði hvergi séð neitt því líkt annars staðar. Einkum dáðist hann að keisarahirðinni, og lýs- ir nákvæmlega öllu, er fram fór við móttöku erlendra sendiherra og annarra stórmenna: „Við hliðina á keisarahöllinni í Kon- stantínópel stendur önnur höll dásamlega fögur. Grikkir kalla hana „Magnaura“ eða „hina miklu, gylltu höll“. Konstantín keisari lét ryðja til í henni, er hann tók á móti mér, ásamt ný- komnum sendiherra frá hinum mikla Kalífa og Liutefred, stór- kaupmanni frá Mainz, en hann var erindreki hins þýzka keis- ara. Fyrir framan hásæti keis- arans stóð gyllt „tré“ úr járni. Greinar þess voru prýddar fugl- um úr málmi, er einnig voru logagylltir og gátu sungið hver sitt lag. Hásæti keisarans var þannig útbúið, að það lyftist upp hægt og hægt. Fyrst leit út fyr- ir, að hann sæti í stól, en að lok- um var hann kominn hátt upp í loftið. Kringum þetta risavaxna hásæti stóðu ljónslíkön úr járni og tré, sem einskonar verðir. Voru þau prýdd gulli. Slógu þau öðru hverju í gólfið með halan- um og öskruðu. Tveir geldingar leiddu mig fram fyrir hásæti keisarans. Er ég kom nálægt Ijónunum, tóku þau að öskra og fuglarnir sungu. En þetta kom mér ekki á óvart, því að vinir mínir höfðu sagt mér frá þess- um tilfæringum, svo að ég varð hvorki hræddur né undrandi. Eftir að ég hafði varpað mér þrisvar sinnum til jarðar, en svo mæla hirðsiðirnir fyrir, leit ég upp, og þá sá ég að keisarinn var kominn hálfa leið upp und- ir loft hallarinnar. Ég gat ekki skilið í þessu fyrst í stað, en seinna komst ég að raun um, að honum hafði verið lyft með vél- arafli. Hann sagði ekki eitt ein- asta orð við mig, því að jafnvel þótt hann hefði langað til þess, myndi slíkt hafa verið álitið ó- viðeigandi og brot á öllum hirð- siðum.“ Þetta líkist mest lýsingu á æf- intýrahirð. Og þegar biskupinn af Cremona, einni ríkustu borg Ítalíu, varð svona frá sér num- inn af dýrðinni, má nærri geta, hvort þetta hefur ekki gengið í augun á hinum menningar- snauðu Serbum, Búlgörum eða Skýþum, er komu til keisara- borgarinnar frá hinum frum- stæðu fj allabyggðum eða enda- lausu sléttum Suðaustur-Evrópu. Býzants, „drottning borganna" (he basilis tón pelón), var í augum hinna frumstæðu mið- aldamanna ævintýraborgin, eða réttara sagt: „Borgin“. Engar borgir komust í nokkurn sam- jöfnuð við hana. f raun og veru var Konstantínópel eina borg miðaldanna, sem nokkuð kvað að, kringum aldamótin 1000. Rómaborg var ennþá í viðjum miðaldanna. Byzants dró alla að sér — ítalska kaupmenn og bankamenn og verzlunarprang- ara af gyðingaættum. Bjuggu þeir í hverfi út af fyrir sig, er nefndist „Ghetto“. Voru húsin þar eingöngu úr tré. Hvað eftir annað brann gyðingahverfið til grunna. í borginni var fjöldi þræla frá Núbíu, margir skart- gripasalar frá Sýrlandi og víðar að. íbúar borgarinnar — bæði menn og konur — elskuðu að hlaða utan á sig skartgripum. Fjöldi silkiiðnaðarmanna höfðu atvinnu í borginni. Silkinu var smyglað frá Kína. Fólk gekk að miklu leyti í klæðum úr silki. f borginni voru leiguhermenn úr miðaldanna öllum áttum. Borgin var eins- konar ráðningarstöð fyrir þá menn, sem höfðu gert hernað að atvinnu sinni. Ríkidæmi Byzants lokkaði forfeður vora til sín. Og þar sem biskupinn dáðist svo mjög að glæsileik borgarinnar. hefur hún óefað verið ennþá dá- samlegri í augum Norðurlanda- búa þeirra tíma. Enda nefndu þeir hana Miklagarð á sínu máli. Norrænir höfðingjar, eins og Ólafur Tryggvason, Haraldur harðráði og Sigurður Jórsalafari sóttu mikinn frama til Mikla- garðs. Draumur margra hraustra drengja var að komast í flokk Væringjanna. Bysantz var París sinnar tíð- ar, borgin, þar sem þjóðirnar mættust — allt, sem var eftir- sóknarvert í veröldinni, fannst þar. Þar voru mikil listasöfn, bókasöfn, frægir háskólar og skemmtanalíf, sem hvergi þekkt- ist annarsstaðar. Enginn efi er á, að Byzants þolir fyllilega sam- jöfnuð við hvaða stórborg nú- tímans, sem vera skal, hvað fjöl- breytni skemmtanalífsins snert- ir. Hin mikla þýðing borgarinnar hófst með valdboði. Fyrir árið 330 e. Kr. hafði hún að vísu ver- ið talsverð verzlunarborg, sem ýms ríki börðust um. Lega henn- ar við innsiglinguna til Svarta- hafsins hlaut að hafa það í för með sér. En í stjórnmálalegu eða menningarlegu tilliti stóð hún ekki framar öðrum borgum samtímans. En þegar Konstan- tín mikli hafði gert kristindóm- inn að ríkistrú og fluttist frá Rómaborg til Byzants, er hann þaðan af nefndi Konstanínópel (eiginl. borg Konstantíns), breyttist þetta í einni svipan. Ástæður keisarans til að skipta um höfuðstað voru margar. Rómaveldi náði á þeim tíma yfir allan hinn menntaða heim, er þá þekktist. Konstantlnópel var svo að segja í miðju ríkinu, með- an Róm lá í útjaðri þess. Hann notaði tækifærið um leið til að tryggja keisaravaldið í sessi og

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.