Heima er bezt - 01.02.1952, Síða 14

Heima er bezt - 01.02.1952, Síða 14
46 Heima er bezt Nr. 2 FRÁ Séra Ólafur Ólafsson var einn af merkustu kennimönnum á sínum tíma. Hann var mælsku- maður mikill og ræður hans á- hrifaríkar, höfðinglegur á velli og sópaði að honum hvar sem hann fór. Er séra Ólafur var prestur í Guttormshaga flutti hann fyrirlestur að Árbæ í Holtum 3. ágúst 1890, er nefnd- ist „Hvernig er farið með þarf- asta þjóninn?" Fyrirlestur þessi vakti geysimikla athygli. Þar var tekið föstum tökum á mál- efni, er almenningur átti ekki að venjast að flutt væri úr ræðu- stól prestlærðra manna á þeim tímum. Fyrirlestur þessi var sér- prentaður og gefinn út af Sigurði Kristj ánssyni árið eftir. Þótt ekki væri um stóra bók að ræða, aðeins 40 bls. í litlu broti, vakti kver þetta mikla athygli um land allt og varð á skömmum tíma ófáanlegt, hefur eflaust verið „metsölubók“ ársins 1891. Bæklingur þessi, sem gengið hefur undir nafninu „Þarfasti þjónninn“, en nú í höndum ör- fárra manna og lítt fáanlegur nema fyrir geypilegt verð. Ný- skeð var manni nokkrum boðn- ar kr. 500.00 fyrir eitt eintak, sem hann átti, en því boði var hafnað. í fyrirlestri sínum ræðir séra Ólafur um hestinn, hinn þarfa þjón íslendinga, finnst honum margt á- fátt um meðferð og kjör þau, er hann átti við að búa víðast hvar á land- inu og telur þau ekki í samræmi við þá miklu þjónustu er hesturinn hefur látið þjóð og landi í té. Á einum stað segir svo í fyrirlestrinum: „.... Það er engin skepna hér á landi og að því er snertir oss sveitamenn, eins hand- genginn manninum, og, að ég komizt svo að orði, eins samvaxin og sam- gróin lífi mannsins, eins og hesturinn. Það fæðist svo að segja varla nokk- 1890 ur maður til sveita, að það þurfi ekki á hesti að halda, og frá því að maður- inn fæðist og þangað til hann er kominn undir græna torfu, þá er hesturinn jafnan hans önnur hönd. Yfirsetukonan, hún ljósa okkar, þarf hest, presturinn, sem skírir okkur, þarf hest, læknirinn, sem hjálpar okkur í sjúkdómum og í slysum, þarf hest, piltarnir þurfa hest, þegar þeir fara að biðja sér stúlku, brúðhjónin þurfa hest, þegar þau eru gefin saman, stúlkurnar þurfa hest til þess að komast á mannfundi, svo að þær þurfi ekki að setja ljós sitt undir mæliker, það er með öðrum orð- um, svo að þær geti látið pilt- ana sjá, hvað þær eru fallegar sjálfar og sjölin og svunturnar og slypsin, sem þær hafa fengið úr kaupstaðnum, og piltarnir þurfa hest til að geta komizt þangað sem stúlkurnar eru til sýnis. Það er ekki hægt að hafa neina skemmtun fyrir fólkið upp til sveita svo að hesturinn sé ekki við það riðinn, og til þess að allt sé upptalið, þá þurfa kjaftakerl- ingarnar hest, svo að sögurnar, sannar og lognar, berist rétta boðleið með tilhlýðilegum, lög- boðnum hraða og ekki falli nið- ur boðburðuf, já, oft vænan hest, því sögulaunin eru að jafnaði reidd undir sér, og þau eru oft vel úti látin, ef fréttirnar eru mergjaðar, það er eina bótin, að þær geta sagt eins og karlinn: „Ekki ber hesturinn það sem ég ber,“ því væru mikil þyngsli eða vigt í því, sem þeim er innan- brjósts, þegar þær leggja upp með póstinn, þá veitti þeim ekki af að hafa 2 eða 3 til reiðar, og að lokum þurfum vér allir hest, er vér fötum um þverbak á síðasta áfangastaðinn. En svo maður haldi sér við hið alvarlega, þá er líf sveitamann- anna að öllu komið undir því, að þeir ekki séu hestlausir, eins og öllu er enn fyrir komið hér á landi. Það var ekki þýðingarlaus athöfn hjá fornmönnum, að þeir létu haugleggja hestinn sinn með sér. Þeir könnuðust við það, að hesturinn hefði verið þeirra önnur hönd í lífinu, því vildu þeir og að hann fylgdi þeim í dauðanum. Meira að segja, að þeir gátu ekki hugsað sér sælustaðinn hinum megin hestlausan, þeir sköpuðu því hestunum annað líf eftir þetta. Þó að þeir væru heiðnir, þá voru þeir samt tryggir, og það svo, að vér, niðjar þeirra og afkomend- ur, sem að flestu ættum að standa þeim framar, megum bera blygðun fyrir tryggðaleysi vort í samanburði við þá. Gott og girnilegt þótti fornmönnum gull og silfur og lögðu tíðum mikið í sölurnar til þess að öðl- ast það, en það tel ég samt víst, að þeir hefðu ekki orð- ið svo á gullinu ginntir, *að þeir hefðu selt reið- hestana sína á gamals aldri útlendum þjóðum í argasta þrældóm. Þeir kunnu betur en svo að meta trúa og dygga þjónustu, að þeir létu þann ódrengskap eftir $ sig liggja, þeir voru oft harðir í horn að taka, en ódrengir voru þeir sjald- an .... “ Það eru nú liðin 62 ár síðan þetta var mælt. Margt hefur breytzt á landi voru á liðnum ára- tugum. Sumt til góðs, annað ekki.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.