Heima er bezt - 01.02.1952, Page 18

Heima er bezt - 01.02.1952, Page 18
50 Heima er bezt Nr. 2 Úr sandfokinu á Rangárvöllum Næst vistaðist ég að Austvaðs- holti til Ólafs frænda míns. Þar var ég 3 ár. Voru þar 15 manns í heimili, þar af 3 vinnukonur og 3 vinnumenn. Hitt fólkið var fjölskyldan. Þessi ár var ég meira við sjó en sláttinn, utan einn vetur. Kom ég heim fyrir nýár árið 1903. Þá fórum við mörg til aftansöngs að Árbæj- arkirkju. En daginn eftir eina slíka kirkjuferð lágu 13 manns rúmfastir af skarlatssótt. Var ég og ein vinnukonan uppi stand andi af öllu heimilisfólkinu. Höfðum við ærinn starfa þann tíma, því skepnurnar voru marg- ar og sinna þurfti hinu fárveika fólki, sem þjáðist mjög af þorsta vegna hinnar illkynjuðu hitasóttar. En skaparinn lagði líkn með þraut, gaf svo góða tíð, að það mátti heita auð jörð all- an janúarmánuð, og nærri því út Þorrann. Blessað fólkið fór smátt og smátt að rétta við með Þorrakomu, og 3 vikur af Þorra var búið að sótthreinsa húsið. Héraðslæknirinn, Ólafur á Stór- ólfshvoli, framkvæmdi sótt- hreinsunina og sagði, að ég hefði borið þessa veiki að sunnan, af því að hann sá kuldaskinn á ilj- um mér. En þetta var víst ekki tilfellið. Þessi veiki gekk þá víða um sveitir og einnig í Reykja- vík. Nú átti ég að vera kominn suð- ur á vertíð 2. febrúar, en kom ekki fyrr en i Þorralok. Og það hið versta var að fáir þorðu að hýsa mig á leiðinni. Var ég því í stökustu vandræðum að leita mér hvíldarstaðar á nóttinni. Þó tók það út yfir allan þjófabálk á einum bæ í Flóa, er ég ætlaði að fá þar næturgistingu. Komst ég þar inn í bæjardyrnar og beiddist næturgistingar. Var ég þá spurður, hvar ég ætti heima og skýrði ég þar rétt frá. Varð húsmóðirin þá æfareið og sagði með þjósti miklum: „Nú ertu bú- inn að smita allt heimilið með þessari andskotans pest. Réttast væri, að ég léti vinnumennina flengja þig.“ Þar næst kom hús- bóndinn vaðandi með mann- drápssvip, hratt mér út á hlað og sigaði á mig hundunum. Því er ekki að leyna, að ég bað þessu hyski bölbænir ófagrar, en ég vona, að þær hafi ekki orðið að áhrínsorðum. Samt fékk ég gistingu í Tryggvaskála hjá Bjarna Símonarsyni. Sagðist hann ekki hræðast neinar pest- ir. Sagði ég honum viðtökurnar, sem ég fékk á bænum, og kvað hann húsfreyjuna þar fullt svo skapstóra. Síðan gekk ferðin sæmilega að Býjarskerjum í Miðnesi. Var ég búinn að róa þar 3 vertíðir áð- ur. Gerði ég mig því heimakom- inn og gekk í bæinn. Karlmenn- irnir voru allir niðri við sjó að gera að afla sínum. Eftir að ég hafði þegið góðgerðir, gekk ég til sjávar til að hitta menn að máli og frétta um aflabrögðin. Páll var þar líka að líta eftir björginni. Heilsaði ég upp á þá alla og tóku þeir vel kveðju minni og buðu mig velkominn í verið, nema Páll, sem tók dauft undir og sagði: „Þú hefðir ekki átt að koma. Ég hef frétt um þessi miklu veikindi og skrif- að á móti þér, að koma ekki. Vil ég ekki stofna heimili mínu í hættu með því að taka við þér.“ Ég kvaðst enga veiki hafa feng- ið og þar að auki væri ég sjálf- ur og öll mín föt vel sótthreins- uð. „Það er sama, ég vil ekkert eiga á hættu,“ sagði hann. Sagði ég þá, að það myndi ein- hver verða til að gefa mér að éta, þó að hann gengi undan. Tók ég því næst poka minn og fór í fússi til næsta bæjar, og fékk þar næturgistingu umyrða- laust. En skipshöfnin hjá Páli voru þessir: Jón, formaðurinn, sonur hans og þrír aðrir synir Páls, hálfbróðir konunnar og uppeldissonur. Mátti þetta heita mest skyldulið. Sá sjöundi var útgerðarmaður úr Rangárvalla- sýslu, Símon Símonarson. En þegar bræðurnir, synir Páls, voru búnir að ganga frá aflan- um, komu þeir allir til mín og báðu mig að gera það nú fyrir sig að fara til þeirra og róa með þeim um veturinn. Sögðust þeir ekki geta án mín verið og ekki vera hræddir við veikina. Ég lét því tilleiðast að vera með þeim, því þeir voru drengir góðir og fengsælir sjómenn. Voru þeir þá búnir að afla hálft sjötta hundr- að til hlutar. Átti ég að fá kr. 10.00 í kaup af þorskhundraði, en kr. 2.00 af ýsuhundraði. Seint í vertíðarlok í annarri viku góu rérum við sem oftar. Það var vestanrok um nóttina, en lygndi með morgninum. Klukkan var því orðin 11, þegar við létum úr vör suður í Staf- nesdjúp. Er þangað kom, var þar haugasjór og ekki árennilegt að fleygja lóðinni í sjóinn og eiga það á hættu að tapa henni. En sjómenn verða að eiga svo margt á hættu og ekki dugði að fárast um það. Úr því við á ann- að borð vorum komnir til miða, var ekki annað en að kasta dræsunni í hafið og láta skeika að sköpuðu með afdrifin. Var því baujan látin fara og öll lóðin lögð og látið liggja í hálftíma, sem var venjuleg lóðarlega, ef veður var ótryggt. En þegar við vorum nýlega farnir að draga, rann á strekkings austanstorm- ur, sem færðist ört í aukana, þar til engin tök voru á að draga meira vegna sjógangs. Samt settum við upp framsigluna með rifuðu segli og byrjuðum að slaga, en ekki leið á löngu unz við misstum útleggj arann, sem fremsta seglið er spennt út á. Eftir það sigldum við með rifuðu framsegli og fokku. Myrkt var af nóttu og höfðum við stefnu á Snæfellsnes á að gizka. Ég hafði tekið eftir skipi um dag- inn, þegar við vorum að draga lóðina. Var það norður í sjó og áleit ég það vera fiskiskútu. Sagði ég Jóni frá þessu og ympr- aði á því, að við skyldum freista að halda í áttina til þess, og fannst honum það hyggilegast. Stakk ég einnig upp á því að létta skipið, með því að fleygja

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.